Færsluflokkur: Matur og drykkur
13.4.2012 | 09:56
Besti eftirréttur sem ég hef smakkað langa lengi, kókós desert
Þetta er einn besti eftirréttur sem ég hef smakkað. Ég smakkaði hann fyrst hjá bóndakonunni á Hálsi og fékk að sjálfsögðu uppskriftina.
Ég lét svo vaða í að prófa hann núna um páskana, sem eftirrétt á Páskadag. Ég var með svo miklar væntingar og vissi svo sem ekki hvort hann yrði jafn góður hjá mér. En, ég fylgdi uppskriftinni samviskusamlega og hann varð alveg jafn góður og sá sem lifði í minningunni.
Þannig að þessi uppskrift er skotheld og ég algjörlega gjörsamlega mæli með því að þið prófið þennan eftirrétt. Hmmmm, það sakar ekki að prófa!
Svona fallegur var eftirrétturinn hjá húsfrúnni á Hálsi
Kókós desert
- 400 ml kókósmjólk í dós
- 30 g kókósmjöl
- 120 g sykur
- 3 gelatin blöð
- 400 ml rjómi
- 2 msk ferskur sítrónusafi
- 10 g vanillusykur (eða 1 tsk vanilludropar)
Kókósmjólk, kókósmjól, sykur, vanillusykur og sítrónusafi sett í pott og fengin upp suða. Takið pott af hellu og látið standa í 5 mín.
Setjið kókósmjólkurblönduna í skál og bætið gelatíni við og hrærið því vel saman við, látið kólna í 40 mín. (Það er hægt að kaupa gelatín unnið úr plöntum!)
Þeytið rjómann og blandið honum saman við herlegheitin.
Kælið inn í ísskáp í a.m.k 2 klst
Berið fram með rifsberjasósu eða einhverri góðri berjasultu. Svo er hægt að skreyta hann með rifnu góðu súkkulaði og blæjuberjum.
Ég notaði þessa uppskrift af sultu með.
Skógarberjasulta
- 2,4 dl blönduð ber (frosin) ég notaði berjablöndu, jarðaber, hindber, bláber ofl.
- 1/2 bolli sykur
- 1/2 dl vatn
Allt sett í pott og leyfið suðu koma upp. Látið þá malla við meðal hita í 10 mín. Setjið sultuna í skál og leyfið henni að kólna. Ef þið viljið hana hana maukaða þá skellið þið henni í blender (eða maukið með töfrasprota)
12.4.2012 | 09:09
Hversdagslífið tekið við og 45 krydda blandan
Ég vona að þið hafið fengið ykkur páskaegg með góðri samvisku þetta árið því það er svo hol(l)t að innan. Er það bara ég eða spændust þessi egg upp eitthvað fyrr en í gamla daga. Ég man þegar maður var lítill þá gat maður verið að maula á einu eggi alla páskana. Nú setti ég brotið eggið á disk og það var horfið áður en ég gat lesið málsháttinn.
Við vorum svo heppin að eyða páskadeginum með nágrönnum okkar hér í sveitinni. Fyrst var farið í brunch til bændanna.
Þar eru skemmtilegir siðir sem húsfrúin kom með sér frá Sviss, þaðan sem hún er. Fyrri siðurinn er að bjóða upp á freyðivín eða Mimosa, ekki slæmur siður það og hinn er einhverskonar eggjaleikur.
Hún litar eggin með náttúrulegum litum, sýður þau með t.d lúsum eða laufum og fær þannig á þau mjög fallega liti. Þessi egg eru ekki hol að innan heldur eru þau soðin í öllu sínu veldi og síðan borðuð. En leikurinn er sá að tveir skella saman eggjum sínum og ef eggið þitt brotnar ekki þá máttu ekki borða það fyrr en einhver annar er með egg til að skella saman við þitt egg þar til það brotnar.
Brunchinn var svo ekki af verri endanum. Margt girnilegt í boði, enda miklir matgæðingar hér á ferð, professional matgæðingar sem reka nautabú og sælkeraverslunina Matarbúrið hér í Kjós.
Það sem mér fannst sérstaklega spennandi var nautatungan. Hún var svo meir og bragðgóð, alveg lungamjúk, eða ætti ég að segja tungumjúk?
Svo var farið heim og slakað á því ekki þurfti ég að sinna kvöldmat heldur. Nágrannarnir hér við hliðina á okkur komu nefnilega í heimsókn kvöldið áður og tóku með sér lambalærið mitt þegar þeir fóru.
Þau lumuðu á allskyns marakóskum kryddum og vildu bjóða okkur í páskamat. Þessir nágrannar eru einnig listakokkar (voðalega er ég heppin með nágranna, allir snillingar í eldhúsinu og hafa gaman að þvi).
Úr varð að þau tóku lærið því fátt fer betur saman en marokkósk krydd og lamb. Og ekki sé ég eftir því. Lambið smakkaðist ótrúlega vel og meðlætið var brilliant og félagsskapurinn draumur einn, því fyrir utan nágrannana í næsta húsi komu líka bændahjónin sem buðu okkur í brönsinn.
Eins og góðum kokki víst sæmir þá var ekki farið eftir neinni sérstakri uppskrift og kryddin sem voru notuð fást ekki hér, en þar var m.a ilmandi cumin og kryddblanda sem nefnist 45 krydda blandan.
Í Marakkó er hver kryddsali með sína eigin "45 krydda blöndu" sem getur þó innihaldið allt að 100 krydd. Þessi blanda nefnist Ras el hanout og er blandað saman af bestu kryddum salans.
Það er smá lesning um Ras el Hanout á wikipedia.
Einnig fór í pottinn sæt kartafla og laukur. Meðlætið var svo kryddaðar sveskjur, lambasoðið, kartöflur og jógúrtsósa. Ég sá um að gera sósuna og reyndi að hafa hana í marókóskum stíl. Því miður átti ég ekki myntu, en myndi eflaust bæta henni við næst svona upp á stílinn.
Magnið í þessari uppskrift er ekki svo nojið. Ég mæli með að þið smakkið hana til.
Jógúrtsósa
- Grísk jógúrt
- Rifin agúrka
- Rifinn sítrónubörkur
- Ferskur sítrónusafi
- Fersk mynta
- Hvítlaukur
- Salt
- Smá pipar
Öllu blandað vel saman í skál. Rífið agúrkuna með rifjárni.
Þetta voru með skemmtilegustu páskum sem ég man eftir.
Heilaga þrenningin var til staðar, góður matur, góð vín
og góðir vinir.
Þið fáið svo uppskrift af brálæðislega góðum eftirrétt næst, ég er að meina það, BRJÁLÆÐISLEGA góður! : )
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2012 | 16:31
Heimagerðar asískar núðlur og wok
Það hefur alltaf verið á dagskrá hjá mér að gera asískar núðlur, og loks lét ég vaða. Þær eru í sjálfu sér svipaðar í gerð og ítalskt pasta. Sem sagt, ekki flókið, smá dútl og algjörlega þess virði.
Það er hægt að nota pastavél til að fletja þær út og skera, eða þá bara kökuefli og hníf. Nema þið séuð núðlugerðameistarar og getið teygt þetta út í höndunum, stefnan er að sjálfsögðu tekin á að mastera þá list. Þessi hér er nokkuð góður...
Ef þið sláið inn hand pulled noodles á youtube koma upp þó nokkur myndskeið.
Heimagerðar asískar núðlur
- 1 3/4 bollar ískalt vatn (1 bolli er 2,4 dl)
- 1 tsk salt
- 1/2 kg hveiti
- 1 eggjarauða
Blandið salti og eggjarauðu við vatnið. Setjið hveiti á borð eða í skál, myndið holu og hellið vatninu smám saman við hveitið þar til þið eruð komin með gott deig. (það fer eftir hveitinu hversu mikið af vatninu þið þurfið).
Hnoðið deigið í höndum í korter þar til það verður mjúkt og flott. (Eða í Kitchen aid)
Hvílið deigið í nokkra klst við stofuhita. (3-8 klst)
Rúllið því út í núðlur, með pastavél eða kökukefli og skerið það niður í núðlustrimla.
Sjóðið í nokkrar mínútur, 4- 7 mín.
Wok
- 1 paprika
- Ferskur chile
- 3-4 hvítlauksrif
- 1 msk ferskur rifinn engifer
- Ferskur kóríander
- Rifin lime börkur af einni lime
- Vorlaukur, 2-3 stk
- 3-4 msk jarðhnetuolía til steikingar
- 2-3 msk Thai sweet chili sauce
- 1 msk soya sósa
- Lúka af salthnetum (sem ég var búin að mylja)
Steikið allt á wok, bætið við hnetum, kóríander, soya og thai sósu í lokin.
Blandið núðlunum saman við og berið fram með Thai sweet chili sauce og soya.
Þið getið leikið ykkur með grænmetið, síðast notaði ég þessa uppskrift og hún var ótrúlega góð, þar á undan notaði ég meira af grænmeti, t.d sveppi og gulrætur.
29.3.2012 | 19:19
Heimagerðar vorrúllur og vorrúlludeig
Ég er að verða óþolandi í öllu þessu heimagerða, en það er ekki fyrr en ég fer að rækta og mala mitt eigið hveiti sem ég verð sátt...
Nei, ekki alveg. Það er samt gaman að prófa að gera heimalagað frá grunni. Maður lærir ýmislegt á því og þá oftast hvað það er auðvelt að gera hlutina, stundum ögn tímafrekara en að grípa í tilbúið en yfirleitt alltaf þess virði þegar uppi er staðið, sérstaklega hvað bragð varðar.
Það er leikur einn að gera deig fyrir vorrúllur. Heimagerðar vorrúllur eru lostæti. Ég gerði fyllingu sem var að minnsta kosti ótrúlega góð.
Með þessu verður að vera heimagerð Thai sweet chili sósa.
Passið ykkur bara á að vera ekki í stressi að rúlla upp vorrúllunum, gefið ykkur góðan tíma í það. Ég hefði mátt vanda mig ögn betur, bara svona upp á presentatioooon. En útlitið að þessu sinni hafði engin áhrif á bragðið.
Vorrúllur (fyrir 4)
Deig
- Hveiti, magnið er eins mikið og þarf til að fá gott, mjúkt klísturslaust deig.
- 1.5 dl vatn
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt
Fylling
- 2-3 gulrætur
- 3-4 vorlaukar
- 1 rauð paprika
- 2-3 rif hvítlaukur
- 2-3 msk ferskt engifer
- 1 lúka af sveppum
- 1/4 haus kínakál
- Ferskt kóríander, góð lúka
- Skvetta af soyasósu
- 1-2 msk sweet chili sósa
Skerið grænmetið fínt, t.d í mjóa stutta strimla og saxið kálið. Raspið engifer og hvítlauk. Steikið allt ofantalið á wok pönnu. Bætið við chili sósu og soya. Bætið við kóríander í lokin. Leggið grænmetisblönduna til hliðar.
Rúllið út deiginu mjög þunnt og skerið í ferninga (ca 10x10 cm). Leggið 1-2 msk af grænmetinu á deigið og rúllið upp. Hér er góð myndskýring á hvernig hægt er að rúlla upp vorrúllum ásamt góðum ráðum við að gera vorrúllur.
Ég bar einnig fram hrísgrjón sem slógu í gegn. Þegar ég var búin að sjóða þau svitaði ég papriku og vorlauk á pönnu og bætti svo við hrísgrjónum, cashew hnetum, fersku kóríander og smá salti ásamt 2-3 msk af thaí sweet chili sósunni sem ég gerði.
Svo er mjög gott að hafa chili mayo með. Það gerði ég með þvi að blanda saman sýrðum rjóma og sriracha sósu. Það má líka nota mæjónes, heimagert að sjálfsögðu :D
27.3.2012 | 09:35
Einfaldur jógúrtís, engin sykur - bara hunang
Þetta er einstaklega einfaldur ís. 3 hráefni, jógúrt, hunang og ber.
Jógúrtís
- 1/2 L grísk jógúrt (eða venjuleg)
- 1,2 dl hunang
- 2,5 dl ber (ég notaði fersk bláber og jarðaber, mættu líka vera frosin ber)
Blandið saman jógúrti og hunangi.
Saxið berin, eins smátt og þið viljið og blandið við jógúrtið.
Ég tók helminginn af berjunum og maukaði með töfrasprota við jógúrtið.
Ég lét svo hinn helminginn vera fremur smátt skorið, bláberin þó bara til helminga. Bara smekksatriði...mætti alveg mauka allt eða ekkert og allt þar á milli...
Ég setti part af blöndunni í frostpinnaform og rest í kassalaga plastform. Frystið í a.m.k 3 klst.
Þegar ég bar fram ísinn úr kassanum þá skar ég hann í sneiðar (eins og ef ég væri að skera brauð í sneiðar).
Þetta er ís sem má þróa. Ég sé alveg fyrir mér að gera jarðaberjasýróp og blanda smá af því saman við. Þá yrði þetta jógúrt ís og sorbet í einum.
23.3.2012 | 17:03
EATING ANIMALS - Súpa með grænum linsum, kjúklingabaunum og fennel
Ég er að lesa bók, nýbyrjuð en hún lofar góðu. Hún er sem sagt um það að borða dýr. Rithöfundurinn er ekki að predika það að allir ættu að gerast grænmetisætur, heldur bara benda á ýmsa þætti varðandi það að borða dýr.
Það er þá helst meðferðin á dýrunum. Mjög ólystug meðferð og fjöldaframleiðsla. (Fyrir utan að sum fá að éta hunda, ketti, skúnka og rottur sem hafa drepist á þjóðveginum, nammi namm.) Það ekkert náttúrulegt við svona ofur fjöldaframleiðslu landbúnað, enda er þetta ekki landbúnaður heldur verksmiðja.
Það er einmitt til orð yfir þetta, Factory Farming.
Og hér er heimasíða bókarinnar, Eating Animals.
Mér finnst mikilvægt að vita hvað það er sem maður er að láta ofan í sig. Ég versla mitt kjöt beint af býli, býli þar sem ég horfi á kýrnar nánast út um stofugluggann. Ég kaupi kjúkling og svín ööörsjaldan. Svo þarf maður líka að vera meðvitaður um fiskinn, hvernig ferlið er í kringum hann, það er ekki alltaf glansmynd.
Og til gamans veltir hann fyrir sér afhverju við (flestir, sérstaklega á vesturlöndum) borðum ekki hunda...
En ég er bara rétt að byrja, sjáum hvernig þessi bók endar :)
Það er því við hæfi að koma með uppskrift af grænmetisrétti.
Það var svona mismikið til í ísskápnum en eitthvað til í niðursuðuskápnum sem er lítið notaður þannig að ég ákvað að ganga á birgðarnar þar.
Þar átti ég gæða tómata í dós og kjúklingabaunir. Svo fann ég grænar linsur sem ekki þarf að leggja í bleyti og aðeins sjóða í hálftíma eða svo.
Ef þið vitið ekki hvað þið eigið að gera við baunir, eins og þær eru nú hollar og góðar, þá er alltaf gott að skella þeim í súpur.
Með hjálp google eftir að hafa slegið inn Soup, green lentils tomatoes, þá fékk ég slatta af girnilegum uppskriftum og ein var innihélt einnig fennel, sem ég aldrei þessu vant átti.
Fennel er ótrúlega skemmtilegt hráefni. Það er afgerandi lakkrísbragð þegar maður smakkar það hrátt, en það mildast við eldun finnst mér og verður mun bragðbetra.
Ég átti ekki til allt sem uppskriftin bar fram, eins og t.d ferskt kóríander sem hefði verið skemmtilegt.
Krydduð linsu og kjúklingabaunasúpa (svolítið stór skammtur, örugglega fyrir 6)
- 1 fennel
- 1/2 laukur
- 1/2 rauðlaukur
- 1 dós crushed tomatoes
- 1-2 hvítlauksrif
- 1/2 tsk engifer (ferskt eða duft)
- 1 tsk turmeric
- 1 tsk kanill
- 2 dl grænar linsur (ósoðnar)
- Ferskt kóríander,
- 1 lúka
- Salt og pipar
- 1 dós kjúklingabaunir
- 1 L vatn og grænmetiskraftur
- Ólífuolía, 2-3 msk til steikingar
- Smá rjómi í lokin, ef þið við viljið, það var ekki í uppskriftinni, en ég átti smá og bætti, það var ekki verra.
Skerið lauk og fennel í litla bita eða ræmur. (Skiptir ekki máli ef þið ætlið að setja allt í matvinnsluvél í lokin.)
Svitið á pönnu, bætið við tómötum í dós, hvítlauk og kryddum.
Bætið við vatni, grænmetiskrafti og fáið upp suðu. Bætið út í kóríander og linsubaunum og sjóðið þar til baunirnar eru soðnar. Salt og pipar eftir smekk.
Bætið við kjúklingabaunum, látið malla í 5 mín.
Hér er einnig hægt að bæta við smá rjóma.
Svo er hægt að setja alla súpuna í matvinnsluvél (blender) eða bara helming og hana bæði "smooth and chunkey"
Svo var einnig uppskrift af pestó til að setja út í súpuna sem hljómaði vel en ég átti ekki kóríander, langar að prófa þetta samt við tækifæri.
Charmoula
- 4-5 msk ólífuolía
- 1 tsk cumin fræ, ristuð og maukuð (ground)
- 1 rif hvítlaukur
- 1 jalapeño
- Safi úr einni sítrónu
- 1 búnt ferskt kóríander
- Salt og pipar.
Allt maukað í matvinnsluvél.
19.3.2012 | 21:10
Granóla bar - nammi
Ég er búin að vera að gera tilraunir og sanka að mér granóla bar uppskriftum. Var með eina góða um daginn, en nú bætti ég við hnetusmjöri og salthnetum, en sleppti sykri.
Þetta var ótrúlega gott, algjört sælgæti en samt hollara. Ég er ekki vön að eiga amerísk morgunkorn á heimilinu en það var afgangur af Rice Krispies síðan ég var að baka fyrir barnaafmælið og ég notaði það einnig, very good!
Svo skar ég frá endana sem voru ljótir en þeir voru líka borðaðir, ekki verri þótt þeir væru ekki fallegir!
Granola bar með hnetusmjöri
- 1 1/2 bolli Rice Krispies
- 1 1/2 bolli musli (ég á eitthvað frá Himnesk Hollusta)
- 1/2 bolli sýróp eða hunang
- 1/2 bolli hnetusmjör (ég var með eitthvað lífrænt og fínt)
- 1/2 bolli rúsínur
- 1/2 salthnetur og heslihnetur (eða hvaða fræ og hnetur sem er)
- 1/3 bolla smátt skorið 70% gæða súkkulaði
Setjið álpappír eða bökunarpappír í form.
Setjið Rice Krispies, musli, rúsínur og hneturí skál.
Hitið sýróp eða hunang í pott undir meðal hita. Takið af hellu og hrærið saman við hnetusmjöri.
Hellið því yfir þurrefnin og blandið vel saman.
Helli þessu í eldfasta fatið og þrýstið því vel niður svo það haldist saman þegar það kólnar.
Kælið.
Skerið í hæfilega stóra bita. Mínir voru eins og Mini Snickers.
Eini gallinn við þessa uppskrift er að nú þarf ég að kaupa meira Rice Krispies til að búa til meira!
Ég er alltaf að leita að skemmtilegum uppskriftum af mauli eða einhverju með drekkutímanum.
Eitthvað sem inniheldur ekki alltaf 2 dl af sykri.
Þessir gullfiskar slógu í gegn og það er engin sykur í uppskriftinni. Krakkarnir geta svo dundað sér að búa til á þá augu og munn.
Gullfiskakex
- 1 bolli hveiti
- 4 msk kalt smjör, skorið í smáa bita
- 200 g Cheddar ostur
- 3/4 tsk salt
- 1/2 tsk svartur ferskur pipar
- 1 tsk lyftiduft
- Smá vatn (5-8 msk)
Setjið hveiti,salt, pipar og lyftiduft í matvinnsluvél, hristið þessu aðeins saman.
Bætið við osti og smjöri og mixið þar til þetta er mjölvað.
Bætið við 5 msk af vatni, einni í einu og bætið svo við meira vatni eftir þörfum, einni msk í einu þar til þið eruð komin með góða deigbollu. Uppskriftin var upp á 3-4 msk en ég notaði um 7 eða 8 msk. Passið bara að setja ekki of mikið, þess vegna mæli ég með 1 msk í einu, því þetta kemur svo allt í einu.
Setjið í plast og kælið í hálftíma eða allt að 24 klst.
Hitið ofn í 180°c.
Rúllið út deig og skerið út litla gullfiska ( eða litla hringi ef þið eruð ekki með gullfiskaform. Mínir fiskar voru um 2.5 cm á lengd.
Brjótið enda á tannstöngli til að gera augu og endann á tannstöngli til að gera munn.
Ég var sem heppin að vera með listrænan hjálparkokk við gerð fiskanna.
Hér er svo hægt að setja plötuna með fiskunum inn í ísskáp og kæla smá í korter, það er gert til þess að lögun þeirra haldi sér frekar við baksturinn segja þeir fróðu.
Bakið í 13-18 mín.
Geymist í lokuðu íláti í allt að viku.
Og hér er svo snilldin, heimagerða gullfiskaformið gert úr áldós. Takið ykkur áldós, klippið hana í tvennt, hringinn. Því næst í 1-2 cm þykkan strimil.
Mótið úr honum gullfisk sem þið límið saman með límbandi. Ef skilin eru að detta í sundur þar sem þið beyglið álið saman setjið þá límband þar líka (þar sem nefið er og í sporðurinn.
Þetta er frábær aðferð til að gera lítil heimagerð kökumót í hvaða formi sem manni dettur í hug.
Matur og drykkur | Breytt 25.4.2012 kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2012 | 19:49
Sveppasúpa með beikoni.
Mér finnst gott að hafa sveppi á pizzum en þess á milli, þá geri ég lítið við þá. Nú sat ég með fulla öskju af flúðasveppum inn í ísskáp og ákvað að gera sveppasúpu.
Mig langaði að hafa hana aðeins meira spennandi en bara sveppir og rjóma og fór að gúggla. Þá datt ég niður á mjög girnilega uppskrift í fallega vefritinu hjá Sweet Paul.
Þetta er "mikil" súpa, smjör, beikon, rjómi... þið skiljið... og mér fannst hún mjög góð en hún nýtur sín best sem forréttur í lítilli skál, svona sem "teaser" fyrir aðalrétt.
Ég notaði uppskriftina hans Paul til hliðsjónar og gerði svona.
Sveppasúpa (fyrir 2)
- 1 askja sveppir (ef þið eigið einhverja gúrmei sveppi þá er það ekki verra)
- 5-6 lengjur beikon, skorið í cm bita 1/2 laukur, smátt skorinn
- 2 rif hvítlaukur, rifinn
- 1/2 L vatn og grænmetiskraftur
- Smá skvetta hvítvín
- 2 dl rjómi
- Smjör og olía til steikingar (t.d 2 msk olía og 2 msk smjör)
- Pipar
Steikið lauk, beikon og hvítlauk á pönnu með olíu, bætið svo við sveppum og smjöri.
Piprið eftir smekk.
Takið frá ca 1/3 af sveppablöndunni. (Því þetta fer í blender, ef þið viljið smá "chunky" súpu).
Setjið út í vatn og grænmetiskraft. Bætið við skvettu af hvítvíni.
Látið malla í 20 mín. Setjið súpuna í blender, eða maukið með töfrasprota. Setjið súpuna aftur í pottinn.
Bætið við rjóma og látið malla í smá stund. Berið fram með góðu brauði.
Ég saltaði súpuna ekkert, fékk nóg salt frá beikoninu og smjörinu.
Þið getið leikið ykkur með ferskar kryddjurtir til að skreyta súpuna með þegar þið berið hana fram. Timian gæti gerið gott.
Matur og drykkur | Breytt 13.3.2012 kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2012 | 20:21
Efnisyfirlit með linkum
Nú er ég búin að flokka allar uppskriftir sem ég hef bloggað um og setja link á þær, allt hér á einum stað.
Sumar uppskriftir gætu átt heima í fleirum en einum flokk, en ég læt hverja uppskrift bara koma fyrir einu sinni og vel henni því flokk eftir því sem mér finnst ágætlega viðeigandi
Ef þið lendið einhverntíma á link sem virkar ekki þá megiði gjarnan setja það í komment hérna svo ég geti lagað það :D
Flokkarnir eru þessir:
- Asía
- Brauð
- Drykkir
- Grjón og pasta
- Grænmetisréttir - Salat
- Kjúklingur
- Kjöt
- Kökur og sætindi
- Mexikó
- Pizza
- Samlokur og aðrir brauðréttir
- Sjávarfang
- Sósur og ídýfur
- Súpur
- Tapas og smáréttir
- Ýmislegt
Asía
Brauð
Honey oat subway langlokubrauð
Rúgbrauð soðið í niðursuðudósum
Drykkir
Heitt kakó (eða kaffi) með núggati
Velkomin í Hvalfjörðinn (sumarlegur drykkur)
Grjón og pasta
Risotto með pancetta og rósmarín
Spagetti með pulsu og tómatsósu
Grænmetisréttir - Salat - egg
Agúrkusalat með myntu og kóríander
Grænmetisréttur með marókkóskum áhrifum
Kartöflubátar með lauksúpukryddi
Kjúklingur
Indónesískur karrý réttur með kjúkling
Kjúklingabitar með cashew hnetum og indverskum kryddum
Kjúklingabollur með indversku ívafi
Kjúklingaleggir með anis og austurlensku ívafi
Kjúklingur sem sesame fræjum sýrópi og vorlauk
Kjúklingabringur með sólþurrkuðum tómötum og pestó
Minn fullkomni steikti kjúklingur
Ofnbakaðar kjúklingabringur með grænpiparssveppasósu og krydduðum kartöflum
Risotto og kjúklingaafgangar á pönnu
Tagliatelle með rósmarínkjúklingi
Kjöt
Chile con carne meets quesadillas
Folaldaborgari með ofngrilluðu brie, pomegranate, steinseljmauki og möndlum
Heit frönsk sveitakæfa með sveppasósu og rúgbrauði
Ítalskar ótrúlega góðar lambakjötbollur
Lambaborgari með avacado, kirsuberjatómötum og mangó
Lambahakksbollur með indversku ívafi
Lasagna, eingöngu úr íslensku hráefni
Píta með kindahakkiPíta með lambabuffi og myntusósu
Kökur og sætindi
Biscotti með heslihnetum og möndlum
Biscotti með heslihnetum og möndlum
Bláberjakaka með musli crumble
Döðlu og apríkósu "kaka" (góð með ostum)
Kaka með ganache og "ís á hvolfi"
"Pull a part" brauð með kanilsykri
Skírnarkaka - Páska hátíðarkaka
Sykraður appelsínubörkur (konfekt)
Mexikó
Baunastappa með chilpotle í Adobo sósu
Quesadillas með hýðishrísgrjónum og baunum
Öðruvísi ostakaka með nachos og salsa
Pizza
Pizza með dijon, feta, ólífum og hvítlauk
Pizza með grísalundum og súrum gúrkum
Pizza með lambapepperoni og emmental osti
Tortilla pizza með jalapeno og vorlauk
Samlokur og aðrir brauðréttir
Hrísgrjónalummur með papriku og púrru
Klattar með byggflögum og grjónagraut
Samloka með nautahakki og sinnepssósu
Sólarlag í hvalfirði (klúbbaréttur)
Sjávarfang
Humar með mangói og sweet chili sósu
Hörpudiskur með salvíu, beikoni og puy baunum
Kræklingur í rjóma og hvítvíni
Kræklingur með hvítvíni og grænmeti
Pasta með hörpudisk og grillaðri papriku
Reykt hrefnukjöt með wasabi sesame dressingu
Steikt ýsa með tómötum og osti
Wok með grænmeti, hnetum og humar
Ýsu wok með wasabi sesaame dressingu
Sósur og ídýfur
Hummus
Súpur
Kjúklingabaunasúpa með blaðlauk
Súpa með canellini baunum og grillaðri papriku
Tómatsúpa með grillaðri papríku
Tapas og smáréttir
Aspas með myntusmjöri og hráskinku
Beikonvafðar döðlur með ferskum mossarella
Brandade með rauðbeðusósu og brokkolíspíru
Bruschetta með kirsuberjatómötum og mossarella
Brushetta með kúfskel, dvergrauðlauk og valmúga ediki
KanPan - snitta með kjötbollu með asísku sniði
Manchego með sýrópi og valhnetukjörnum
Tikka masala í hrísgrjónapappír
ÝMISLEGT