Færsluflokkur: Matur og drykkur

Húsið við sjóinn - Grissinistangir

Ég minni á að ég blogga hér, Húsið við sjóinn á wordpress.  Síðast skrifaði ég um frábærar Grissini stangir.

grissini


Jóladagatal fyrir börn og jólabörn

Ég ætla að telja niður dagana til jóla með börnunum á síðunni hennar Soffíu og félaga. Vonandi sjáið þið eitthvað sniðugt sem nýtist ykkur. Það er margt hægt að gera sem kostar ekki neitt og annað sem ekki þarf að kosta svo mikið, börnum til skemmtunar í desember.

23dagar 

 

Klisjan alkunna!  Það er tíminn sem við gefum okkur með börnunum sem er dýrmætastur fyrir þau og meira virði en nokkuð fjöldaframleitt plastdrasl frá Kína eða ódýrt súkkulaði.

Fylgist með frá byrjun:

http://joladagatalsoffiu.wordpress.com/

23dagarmynd 


Sykurlaust snakk fyrir krakka og alla hina líka

Þar sem allt er að drukkna í sykri þá er þetta ágætt.  

Húsið við sjóinn.

 


Soya sósa er ekki bara soya sósa og svo er sushi út um allt...fast food?

Ef þið kaupið soya sósur þá skuluð þið vera viss um að þið séuð að kaupa alvöru soya sósu.  Alvöru soyasósa inniheldur soyabaunir en gervi soyasósa inniheldur soyabauna "extract" og litar og bragðefni. Þær fást í flestum matvöruverslunum hér á landi.  

Kikkoman selur alvöru soya, þar sem innihald er vatn, soyabaunir, hveiti og salt.  La Choy er gervi soya sósa, eða "Chemical soy sauce" með bragð og litarefnum. 

Þeir á Serious Eats eru hér með góða samantekt um soya sósur.

Ég var að lesa bók sem heitir The fortune cookie chronicles og þar er ágætur kafli um soya sósur og skemmtileg lesning um kínverska veitingastaði í Ameríku, mæli alveg með þessari bók.

sushitrefill03

Sushi trefill sem ég prjónaði og prjónarnir með :)  

Nú er komið sushi í flesta stórmarkaði  

Þið hafði kannski tekið eftir því að það er viðvörunarmiði á sushi bökkum í stórmörkuðunum þar sem bent er á að bakkinn innihaldi efni sem geta haft áhrif á athygli og einbeitingu þannig að það virðist vera sem þeir séu með gerfi sósu í bökkunum, ekki mikill metnaður þar.

Ég hef ekkert kynnt mér þessa bakka eða þá sem framleiða þá, en ég vona að þeir séu metnaðarfullir með ferskan fisk og gott hráefni, því þótt svo að sushi sé ekki djúpsteikt eða löðrandi í majónesi þá er oft mikið af litar og bragðefnum, grænn í wasabi sem er gert úr piparrót því wasabi jurtin er dýr, bleiki liturinn í þangi og engifer, surimi er svona eitthvað eins og kjötfars kannski, bara með fiskafgöngum, Nori þangið getur verið mengað ef það er unnið úr þangi sem er í menguðum sjó eins og við stórborgir Kína,  arsen er í hrísgrjónum og svo gervi soyasósan, brimsölt með litar og bragðefnum.

Surimi er í flestum þessum þessum bökkum, en surimi er undarlegasti matur og ég skil ekki að fólk kaupi það til að nota í sushi þegar við eigum allan þennan hreina og góða fisk og humar.

...kannski afþví að það er ódýrt ...og afhverju er það ódýrt...?

Hér er innihaldslýsing á surimi sem ég fann á þessari síðu:

Alaska Pollock, Water, Egg Whites, Wheat Starch, Sugar, Corn Starch, Sorbitol, Contains 2% or Less of the Following: King Crab Meat, Natural and Artificial Flavor, Extracts of Crab, Oyster, Scallop, Lobster and Fish (Salmon, Anchovy, Bonito, Cutlassfish), Refined Fish Oil (Adds a Trivial Amount of Fat) (Anchovy, Sardine), Rice Wine (Rice, Water, Koji, Yeast, Salt), Sea Salt, Modified Tapioca StarchCarrageenan, Yam Flour,Hydrolyzed Soy, Corn, and Wheat Proteins, Potassium Chloride, Disodium Inosinate and Guanylate, Sodium Pyrophosphate, Carmine, Paprika. 

Æ, þá held ég að ég fái mér frekar plokkfisk... 

Ég vil ítreka að mæðrum er sterklega ráðlagt að gefa börnunum sínum 6 ára og yngri alls ekki barnamat sem inniheldur hrísgrjón, hrískökur eða hrísgrjónamjólk út af miklu magni af arsen sem finnst í þessum vörum . Barnamatur inniheldur mjög oft mat sem hefur verið maukað við grjón, lesið á umbúðir!   Að lokum þá er meira arsen í brúnum grjónum en hvítum.

Jáhá! 

Þetta voru hugleiðingar um soya sósu, sem fór úr soyasósunni í sushi í surimi í arsen, alltaf gaman að því þegar eitt leiðir svona að öðru en ég ætla að láta þetta gott heita.

Ooohh. Nú langar mig í sushi og kalt hvítvín, ég fékk svo gott sushi á Fiskmarkaðinum um daginn, það er frábært að fara þangað í sushi löns.

Í lokin ætla ég að láta fljóta með uppskrift af því sem ég geri alltaf þegar það er sushigerð í heimahúsi, ferskasta sushi-ið í bænum.

Ég er mikið fyrir sushi og þessi réttur hér klikkar aldrei.  Hann er frábær sem forréttur og á sushi hlaðborðið.

sushi 

LAX Í SKÁL

  • Lax
  • Avacado
  • Vorlaukur
  • Sesamfræ
  • Rauð silungahrogn
  • Ferskt engifer

Skerið ferskan laxinn (eða reyktan ef það hentar ykkur betur) frekar smátt, 1-2 cm ferninga, avocadoinn einnig sem og vorlaukinn.  Blandið þessu saman i litla skál. (Ein skál á mann)

Í þetta fer svo um það bil teskeið af sesamfræum og teskeið af hrognum, teskeið af rifnum ferskum engifer.  Blandið varlega saman.

(Ég nota svipað magn af lax og avacado, u.þ.b 1/4 avacado á mann)

Borið fram með "alvöru" Soya og gervi wasabi ;) og jafnvel súrsuðu engifer.

 


Food revolution

Hafið þið séð Food revolution með Jamie Oliver?  Þetta er flottir þættir, Jamie er að reyna að ná til hins dæmigerða kana sem lifir á skyndibita og hugsar ekki um afleiðingar þess að borða unninn skít.

Ef einhvernvegin væri hægt að ná til  þessa fólks sem ekki hugar að matarræði og þar með heilsunni þá væri það eflaust í gegnum raunveruleikasjónvarp. 

Það er áhugavert að sjá hann berjast við kerfið til að komast í mötuneyti skólanna.

Þróunin hér heima er að vera álíka, stórmarkaðir hérna fyllast af unnum matvörum, frosið, niðursoðið, þurrkað... 

Ég hef áður talað um það og segi það aftur, farið í stórmarkað og verslið í útjaðri búðarinnar, ferskvörunni og látið unnar og tilbúnar matvörur eiga sig.

Ef manni langar í góðan og einfaldan mat , langar helst í pizzu en  nennir ekki fyrirhöfninni þá er þetta málið!

pizza brauð 

Súrdeigsbrauð pizzastyle 

  • Ótrúlega gott súrdeigsbrauð úr bakaríi, loftkennt og létt!
  • Tómat passata
  • Ferskur mossarella
  • Ofur gott salami úr kjötborði
  • Ferskan og góðan lauk, ef þið eigið, bestur í Frú laugu!
  • Oregano, salt og pipar

*hráefnið í réttinn hér að ofan fæst í Frú Laugu, þau eru yfirleitt með salami frá Kjötpól, sem er annars bara beint á móti Frú Laugu í Laugarnesi.

Dreyfið úr tómat passata á brauðsneið, leggið ostsneiðar, salami og lauk yfir.  Bakið í ofni á grilli þar til osturinn byrjar að brúnast. Stráið oregano, salti og pipar yfir þegar brauðið kemur úr ofninum.

Ef þið eigið ferskt oregano (timian) þá er það frábært annars hefur mér fundist oregano kryddið frá Himneskt alveg ágætt.

soffia_kritar 

Ef þið eigið börn þá minni ég á heimasíðuna mína www.soffia.net með allskonar skemmtilegu og lærdómsríku efni. ég var að setja inn nýjan leik um formin.

 

 


Bráðum kemur betri tíð með ber í haga - Grænkálsflögur, gott hollustusnakk

Eitt af því sem réttlætir það fyrir mér að það sé farið að hausta eru bláberin og krækiber.  Krækiberin eru orðin ansi vænleg og ég sé fram á fína sprettu í ár, en krækiberin hjá okkur voru frekar dapurleg í fyrra.


BER 

Ég veit um svo marga sem eru meira fyrir bláber en krækiber, ég er ein af þeim.  En eftir að ég djúsaði krækiberin þá finnst mér þau ómissandi í smoothie eða bara fá sér smá í staup.

Einu sinni prófaði ég þrjár aðferðir við að djúsa krækiber, með djúsara apparati á Kitchen Aid, með Djúser og svo með því að setja í blender með ögn af vatni til að koma græjunni af stað.  Blenderinn kom best út, auðvelt að þrífa, einfalt, fljótlegt og heldur meira af djúsi meir að segja (og ég tel ekki með þennan slurk af vatni sem fór með).  
 
krækiber

Ég mæli sérlega með að tína krækiberin líka og mauka þau svo í djús, þannig losnar maður við beiskjuna sem er í hratinu.
 
 krækiberjasmoothie
 
Ég skaust út í garð síðustu helgi og náði mér í góða lúku af krækiberjum, maukaði þau og setti krækiberjasafann í smoothie, bara hressandi.

 
 
Ég hef verið að versla svolítið af grænkáli, þá má nýta það á marga vegu og mér finnst Grænkálsflögur alltaf góðar.
grænkálsflögur 
 
Grænkálsflögur
  • Grænkál
  • Svakalega góð Extra Virgin Ólífuolía
  • Sjávarsalt
 
Blandið káli, olíu og salti vel saman.  Ég set allt í lítinn plastpoka og nunna þessu vel saman.  
 
grænkálsflögur 
 
Svo dreyfið þið úr kálinu á smjörpappír í ofnskúffu og bakið í ofni á 200°c í ca 20 mín eða þar til grænkálið er orðið stökkt, fylgist vel með því svo það brenni ekki.
 
Einnig hef ég séð útfærslu með soya og sesamfræjum sem vert væri að prófa.
 
 

Sweets for my sweet, og hugsað upphátt um græðgi

Eftir sumarfrí þá er maður búinn að vera að sulla í sykri og sælgæti, ís, baka kökur, borða nammi...

Um verslunarmannahelgina keypti ég mér Freyju karamellupoka til að maula á yfir helgina, svo á þriðjudeginum finn ég hann í töskunni minni, óátekinn.  Löngunin hafði ekki verið meiri en svo að ég snerti ekki á honum.  Nokkrum dögum síðar hugsaði ég ekki um annað en þennan karamellupoka og viljið þið vita ástæðuna?  

Á mánudeginum hafði ég tekið þá ákvörðun að borða ekki sykur og sælgæti í eina viku.  Og af því að ég má ekki fá mér eina karamellu þá auðvitað langar mér þeim mun meira í hana.
 
Maðurinn minn spurði mig afhverju ég henti ekki bara pokanum, en það kemur ekki til greina.  Það væri dapur viljastyrkur að geta ekki setið á sér að borða nammi í eina litla viku!  Og miðað við hvernið tíminn líður þá er nú ekki langt í að ég geti opnað pokann, nema þá hef ég eflaust engan áhuga ;)
 
 sleikjo

Ég er nú ekkert að fara að taka sykur úr matarræðinu hjá mér, þetta er meira til þess gert að kúpla sig úr því að vera alltaf að borða sætindi og sykur.  Ég er alveg á því að sælgætisát sé ekki af hinu góða, en í ALGJÖRU hófi getur maður fengið sér ís eða karamellu öðru hvoru.

Svo held ég að hvítur sykur sé verri en hrár, ekki að hrár sé hollur, heldur er hann ekki jafn unnin. Smá lesning.

Svo er ég alfarið á móti sætuefnum og ég vona að fólk spái aðeins í sykurlausum vörum stútfullum af aspartame sem er algjör skítur og aðeins samþykkt af FDA út af peningum og völdum.  

Ágætis samantekt um Aspartame má nálgast hér...
 
Og þar sem ég er öll í samsæriskenningum þá versla ég ekki við stóru fyrirtækin (...eeemmm...eins lítið og ég get, sem er ansi lítið) og þar þarf maður að vera á tánum því þau eru sífellt að versla öll önnur fyrirtæki.  
 
Er ekki við hæfi að setja inn mynd af afmælisköku sem ég gerði með Maltesers, sem er framleitt af MARS INC,  áður en við höldum áfram...
kaka 
 
 
Tökum Nestlé sem dæmi, það eru endalausir skandalar, einn sá versti var þegar þeir urðu valdir að dauða barna í þriðja heims ríkjum því þeir mæltu gegn því að börn fengju brjóstamjólk og fengju frekar formúlu mjólk frá nestle, sell sell sell!!!  en þeir voru ekki að taka það fram að það þyrfti hreint og soðið vatn í formúluna og konur voru að blanda þetta með skítugu vatni því aumingja mæðurnar höfðu bara flestar ekki aðgang að hreinu vatni, ekki voru þeir með alla sína peninga að sjá til þess að þær fengju hreint vatn, nei þeir voru að selja þeim formúlu. DÆS...
 
Undir hatti Nestlé er ansi margt, hér er t.d listi.  
 
Lesið þetta og hugsið ykkur svo tvisvar um áður en þið verslið Nestle fyrir börnin ykkar.  Það er fullt af barnamat í boði í dag (sem oft er nauðsynlegt að geta gripið í) og kannski ögn dýrari, en það er oft ástæða fyrir því ef eitthvað er ódýrara.  
 
Jæja, þessi færsla er aldeilis komin út í allt aðra sálma en ég upphaflega ætlaði mér, það er bara þegar maður kemst á flug þá leiðir eitt að öðru. Ég get haldið áfram, gosdrykkjaframleiðendur, skyndibiti...en látum þetta gott heita í þetta sinn.
 
Ég enda þetta á orðum forstjóra Nestlé því þessi maður þarf að græða meira og hvað getur hann gert næst?
 
 Í stuttu máli er hann að segja:
 
 “Access to water should not be a public right.”

eða eins og hann orðar það:(NGO er non governmental organization)

"The NGO's bang on declaring that water is a public right. That means a human being should have a right to water. That is an extreme solution. It's a question of whether we should privatise the normal water supply for the population. Water is a food (stuff) and like any other food it should have a market value. Personally I believe it's better to give water a food (stuff) value so that we're all aware that it has it's price." 

 Spáið í þetta næst þegar þið þurfið "food stuff".

Hvað finnst ykkur?  Eiga allir að hafa rétt á vatni eða á að einkavæða allt neysluvatn? 

Endilega horfið á þessa áhugaverðu sýn hans  hér á youtube

Þetta er svona grunnt í árina tekið hjá mér, ég er bara að hugsa upphátt...

 



Hin fullkomna pizza, þriðji hluti - áleggið

Regla númer eitt, ekki troða of miklu á pizzuna, þá verður botnin slepjuelgur.  Ég veit það er stundum erfitt að hemja sig en less is more í þessu tilviki.  Ég á það sérstaklega til að setja of mikið þegar kemur að burrito og öðru sem þarf að vefja, þá er það ómögulegt því ég er búin að troða helling af öllu.

Ég er þó alveg búin að læra að hemja mig þegar kemur að pizzugerð.

pizza 

Það sem þarf að huga að þegar gera skal góða pizzu hvað varðar álegg er eftirfarandi:

 

  • Less is more
  • Nota gæða álegg
  • Nota ferskan mozzarella og ferska basiliku
  • Ekki vera hræddur við að prófa eitthvað nýtt  
pizza
Ég mæli sérstaklega með að fara í kjötborð og fá gott salami, uppáhaldið mitt er grænpipars salami í ostabúðinni, en það hefur því miður ekki fengist undanfarið.

pizza 
Mér finnst klettasalat fara með með flestum pizzum, ekki bara þessari klassísku hráskinku.
 
  
pizza 
Ég gerði pizzuáleggi ítarleg skil á síðunni minn The House by the Sea.
Þar eru nokkrar góðar hugmyndir hvað setja má á pizzur. 
 
Einnig hef ég fjallað um:

 


Rúgmjölstortillas með brakandi fersku grænmeti og frábærum heimalöguðum sósum

Það er ekki oft sem maður rekst á íslenskt rúgmjöl, (aldrei) en það gerðist þegar ég var á Flúðum um daginn. Við fórum á bændamarkaðinn þar í bæ og þar fjárfesti ég í poka af rúgmjöli frá Ískorni. 

rúgmjöl 

Það má lesa meir um Ískorn hér

Ég notaði það til að baka flatkökur og það kom mjög vel út.  Ég notaði 200 g af rúgmjöli á móti 100 g af steinmöluðu heilhveiti.  Svo nota ég venjulegt hvítt hveiti til að rúlla þeim út.

Ég hef áður minnst á það að einhverntíma skoðaði ég innihaldslýsingar á  flatkökum út í búð og þar var aldrei rúgmjöl notað í meirihluta.  Oftast var heldur ekkert rúgmjöl í flatkökunum.

flatkökur 

Ég hef verið að styðjast við uppskrift frá matarást, en hér er bloggfærsla sem ég gerði um flatkökur. Ég mæli eindregið með að þið látið vaða í flatkökugerð.  Það jafnast ekkert á við nýbakaðar heimagerðar flatkökur.

tortillas 

Síðast var ég búin að fletja út svo margar og átti enn eftir deig þannig að ég gerði nokkrar kökur eins og ég væri að gera tortilla kökur.  Svo fyllti ég þær með brakandi fersku grænmeti sem ég fékk á Flúðum ásamt svakalega góðum heimagerðum sósum.

salat 

Við vorum orðin ansi svöng eftir góðan dag á Flúðum þannig að við fundum stað til að setjast niður og fá okkur eitthvað að borða.  

Á matseðlinum var Flúðaborgari með grænmeti frá bændunum í sveitinni.  Það hljómaði vel en fannst mér lítið til hans koma og undraðist ég mjög á að fá þreyttan borgara með aumingjalegu iceberg og 2 sneiðum af fölum tómati í hjarta grænmetisræktunar á Íslandi.  

Sjálf var ég með út í bíl fullan poka af ilmandi paprikum, agúrkum, sveppum salati og fleira góðu sem ég hafði verlsað af bændum þarna í grenndinni.  Ég hefði betur nartað í það.

Rúgmjöls tortilla kökur eru fáránlega góðar!

 hvalfjörður

Uppskrift af þessum svakalega góðu tortilla kökum má finna hér ásamt myndum sem ég tók þegar þokan læddist inn Hvalfjörðinn.

Og þá er komið haust?...


Halloumi ostur, frábær forréttur ef þið ætlið út að grilla í dag

Ég er núna að lesa  bók eftir Michael Pollan sem heitir Cooked.  Ég mæli algjörlega með henni. Kaflinn um brauðgerð er sérlega áhugaverður!

sourdough 

Ég hef verið að reyna fyrir mér í súrdegisbrauðbakstri, það hefur gengið ágætlega.  Síðasta brauð sem ég gerði kom mjög vel út fyrir utan það að ég gleymdi því í ofninum 45 mínútum of lengi þannig að skorpan brann almenninlega en ótrúlegt en satt þá var brauðið undir skorpunni ljúffengt.

súrdeigsbrauð 

Ég fór í ostabúð fyrir nokkkru og spurði um Halloumi ost og afgreiðslukonan vissi ekki hvað var sem mér fannst ansi undarlegt, miðað við að ég var í búð sem sérhæfði sig í ostum og Halloumi er nokkuð vinsætt erlendis.

Nema hvað, svo er loksins hægt að fá hann í Búrinu og meir að segja hefur hann fengist í Bónus undanfarið.

Það besta við Halloumi er hvað hann er saltur, mmmmm.  Svo er hann þéttur í sér þannig að hann bráðnar ekki þegar maður skellir honum á panini grillið eða á grillpönnuna.  Það er nefnilega möst að hita þennan ost til að hann njóti sín sem best.

Ég mæli með því að þið prófið þennan ost.  HAnn er góður einn og sér eftir að hafa fengið 1-2 mínútur á grillinu.  Svo er hann líka meiriháttar í salat, Halloumi salat þar sem hann er í aðalhlutverki.

Ef þið ætlið að grilla í dag þá er fullkomið að skella ostinum á útigrillið, ásamt pizzadeiginu til að gera "flat bread". 

Ég var mikið að velta fyrir mér hvernig ég ætti að bera hann fram miðað við hvað til var og þetta var útkoman og hún var vægast sagt frábær, osturinn fékk svo sannarlega að njóta sín í þessari útfærslu.  Rauðlaukurinn rokkaði með.

halloumi 

Grillaður Halloumio með ruccola og rauðlauk og grilluðu flatbrauði

 

  • Halloumi
  • Klettasalat (Ruccola)
  • Rauðlaukur
  • Pizzadeig

 

Skerið Halloumi ostinn í sneiðar, u.þ.b hálfan cm á þykkt. Leggið klettasalat á disk, stráið fínt skornum rauðlauk yfir.  Leggið grilluðu ostsneiðarnar ofan á salatbeðið.

Berið fram með flatbrauði (flat bread).

Flatbrauðið gerði ég á eftirfarandi hátt.

Ég tók heimagert pizzadeig sem  ég átti inn í ískáp, flatti það þunnt út í kökur á stærð við pítubrauð. Síðan skellti ég þeim í panini grillið eftir að hafa penslað það létt með ólífuolíu.  Það tekur ekki nema nokkrar mínútur og elda pizzadeigið þannig.  Svo skar ég það niður eins og ég væri að skera pizzu og bar það fram með ostinum.

blom

Njótið veðurblíðunnar í dag, langþráð blíða, ég er farin út með ofninn góða að baka flatkökur.

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband