Færsluflokkur: Matur og drykkur

Meistarakokkurinn Hrefna Sætran í eldhúsinu hjá mér

Haldiði ekki að ljúflingurinn og meistarakokkurinn Hrefna Sætran hafi komið í heimsókn.  En því miður var það ekki hún sem eldaði fyrir mig heldur ég fyrir hana.

Hún er með frábæra matreiðsluþætti á Skjá Einum og hún fékk mig til að elda fyrir sig dýrindis Lahmacun, tyrkneska pizzu.

Uppskriftina má nálgast hér.

Ef þið eruð með Skjá Einn þá getið þið séð þáttinn á vefsíðu stöðvarinnar, þetta var þriðji þáttur í sjöundu seríu.

hakk

EF þið ætlið að skella í pizzu um helgina prófið þá þessa.  Finnið ykkur gott lambakjöt og hakkið það sjálf eða fáið þá í kjötborðinu til að gera það fyrir ykkur, er ekki annars svoleiðis þjónusta einhverstaðar í boði hér á Íslandi?

Svo er hægt að fylgjast með Hrefnu á Facebook, Matarklúbburinn með Hrefnu Sætran.

GÓÐA HELGI!


Engar smá súkkulaðibitakökur. Mæli með þessum!

Þessar súkkulaðibitakökur stóðust alveg undir væntingum.  Og vegna þess að þær eru frekar stórar þá verða þær mmmmmmjúkar í miðjunni. 

Þetta er svona uppskrift sem allir súkkulaðibitakökuaðdáendur

verða að prófa að minnsta kosti einu sinni. 

Ég hefði ekkert á móti því að vera að narta í eina núna í tilefni dagsins, því ég á afmæli í dag.  En ég læt mér duga að narta í afmælisgjöf, súkkulaðið frá Hafliða Ragnars...

súkkulaði

  

Það sem er lykilatriði við þessa uppskrift og verður að gera, er að geyma deigið í ísskáp í amk sólarhring.

Það er sniðugt á minni heimilum að baka 4 stk í einu því þær eru svo stórar, deigið geymist í kæli í 3 daga og svo má líka geyma það í frysti.  Ekki amalegt það :)

súkkulaðibitakökur

 Súkkulaðibitakökur

  • 3 2/3 bollar hveiti
  • 1 1/4 tsk matarsódi
  • 1 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 1/2 tsk salt
  • 1 1/4 bolli smjör
  • 1 1/4 bolli púðursykur (ljós, en ég notaði dökkan)
  • 1 bolli sykur
  • 2 stór egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 120 g 70 % súkkulaði eða annað svakalega gott súkkulaði, verður að vera gæða!
  • Sjávarsalt

Setjið þurrefni í skál.  Setjið smjör og sykur í aðra skál og hrærið saman með hrærivél þar til blandan er létt (3-5 mín). Hér er gott að vera með smjör við stofuhita.

Bætið við eggjum, einu í einu. 

Því næst vanillu.

Bætið við þurrefnum.

Setjið súkkulaðið í deigið og blandið því saman við svo það dreyfist  jafnt úr því.  Pakkið deiginu inn í plastfilmu.

súkkulaðibitakökur 

Geymið deigið í ísskáp í sólarhring eða í allt að 72 klst.

súkkulaðibitakökur 

DAGINN EFTIR: Mótið kúlur úr deiginu, hver kúla hjá mér var um 100 g.  Það er u.þ.b á við golfkúlu.  Já, þær eru svolítið stórar, það er best!

Raðið 4 kúlum á smjörpappír á ofnplötu með góðu millibili því þær fletjast út og þurfa sitt pláss.

Bakið við 180° c í 18-20 mín.

Ef þið notið ekki allt degið þá er hægt að gera kúlur úr öllu deginu og setja rest í frysti.

Passið að baka þær ekki of lengi sem þær verði ekki of harðar.

Þessi uppskrift er birtist fyrir ó nokkrum árum í New York times.


Döðlubrauð, sætt og sykurlaust

Ég fann þessa ágætu uppskrift á pressunni og ætla að henda henni hérna inn því ég á kannski eftir að gera þetta einhvern tíma aftur.

Ég er búin að færa inn vandræðalega mikið af sykruðum uppskriftum upp á síðkastið.  Og kosturinn við þessa uppskrift er að það er engin sykur í henni en þess í stað eru bæði döðlur og bananar.

döðlubrauð 

 Döðlubrauð

  • 200 gr. döðlur
  • 2,5 dl. soðið vatn
  • 2 egg
  • 2 msk. brætt smjör
  • 2 bananar
  • 1 tsk. lyftiduft (hveitilaust úr Yggdrasil eða bara venjulegt)
  • 1 tsk.Matarsódi 1/2 tsk. sjávarsalt.
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 300 gr. speltmjöl

döðlubrauð

Saxið döðlur smátt og leggið í bleyti í sjóðandi vatni.  Látið kólna.

Þeytið saman egg og smjör, bætið við bönunum og þurrefnum.

Hrærið vel.  Sigtið vatnið frá döðlum og blandið við deigið.

Bakið í kringlóttu formi í 25-30 mín eða formkökuformi í ca 40 mín við 175°c.

IMG_3233 

Ég bakaði þetta í kringlóttu formi í hálftíma og skar hana svo til helminga og því næst í sneiðar.

Best nýbakað svo smjörið bráðnar á brauðsneiðinni.


Bláberjakaka með "crumble", sérlega góð með ís

Mér finnst epla eða bláberja crumble svo gott með ís.  Ég bjó til þessa bláberjaköku um daginn og ofan á er crumble.  Í staðin fyrir að nota haframjöl eða hveiti í "crumblið" þá notaði ég musli.  Það var mjög gott.

Þetta er svolítið sæt uppskrift, ég mun eflaust minnka sykurmagnið næst, sérstaklega ef hún er borin fram með ís.

bláberjakaka

Bláberjakaka með crumble

  • 60 g smjör
  • 3/4 bolli sykur
  • 1 egg
  • 1/2 tsk vanilla
  • 2 bollar hveiti
  • 2 1/4 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 3/4 bolli mjólk
  • 2 bollar bláber, fersk eða frosin

 

"Crumble"

  • 80 g smjör
  • 1/2 bolli sykur
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/2 bolli ykkar uppáhalds musli (eða t.d 50/50 hafrar og hveiti)
  • 1/4 tsk salt

1 bolli er 2,4 dl

bláberjakaka

Blandið saman smjöri og sykri, gott að vera með smjör við stofuhita eða skera það smátt.

Bætið við eggi og vanillu.  Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti og blandið því við smjörblönduna, hellið mjólkinni saman við og hrærið saman.

Blandið berjunum varlega við deigið.

Setjið það í smurt form.  Mitt var um 20 x 30 cm. 

bláberjakaka 

Crumble:

Skerið smjörið í teninga.  Setjið allt hráefnið í skál og klípið það saman með puttunum.  Myljið það svo yfir bláberjadeigið í forminu.  

Bakið í 40 - 50 mín við 180° c.

bláberjakaka

Mér finnst þessi svo góð með ís.  Einnig hægt að bera hana fram með rjóma eða bara eina og sér.

Ef þið notið musli sem er búið að sæta, minnkið þá sykurmagnið í crumble kannski um helming eða svo, en það fer kannski líka svolítið eftir því hversu miklar "sætutennur" fólk er. 

 


Alíslenskt brauð, allt hráefnið framleitt hér á landi

Eitt af því sem ekki er hægt að kaupa ef maður er að borða íslenskan mat er alíslenskt brauð.  Því varð ég að láta reyna á að búa til eitt slíkt og var ekki mjög bjartsýn á útkomuna.  En viti menn, það var vel ætt.... :)

íslenskt brauð 

Íslenskt brauð 

  • 150 g íslenskt heilhveiti
  • 150 g íslenskt byggmjöl
  • 1 tsk íslenskt salt
  • 2 tsk íslenskt hunang
  • U.þ.b 300 g mjólk

Hrærið hunangi í mjólkina.  Þurrefnum blandað saman, svo mjólkin út í.  Öllu hrært lauslega saman með sleif. 

Setjið í bökunarform með smjörpappír í botninn.

Bakað við 200°c í 50 - 60 mín.


Hvernig bakar maður bolluvönd?

"Bolluvöndur, hvað er það?" spyr vinkona mín.  "Eru það svona bollur sem þú bakar nálægt hvor annarri svo þær festast saman?"

Það er svona að alast ekki upp á Íslandi sem barn.  En mér finnst hugmyndin hennar ekki galin og aldrei að vita nema ég bjóði henni í bolluvönd við tækifæri.  Bolluvendirnir eru sem sagt ekki svo alþjóðlegt fyrirbæri.  Ég settist á sunnudagsmorgni og bjó til bolluvönd með dóttur minni, aðalega svo ég gæti sent hana að rassskella pabba sinn sem lá sofandi inn í rúmi.

Kannski ekki alveg ástæðan.  Heldur finnst mér  gaman að halda í gamlar hefðir sem maður sjálfur ólst upp við.

Nú er ég til dæmis alveg týnd í öskudeginum, nú eru engir öskupokar fyrir krakkana.  Og ég er svo gömul að þá var ekki farið í búninga á þessum degi.  Mín minning er frí í skólanum og svo fór maður í Melabúðina að hengja öskupoka sem maður hafði föndrað alla vikuna (og aðal sportið var að beygja títuprjónana) á viðskiptavini búðarinnar.

Ég var nú ekki að senda mína tveggja ára í leikskóla með öskupoka með títuprjónum, en kannski eftir nokkur ár væri gaman að setjast niður og kenna henni að sauma öskupoka.

Hér er uppskrift af vatnsdeigsbollunum sem ég gerði og þær heppnuðst mjög vel.  

vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör
  • 2.5 dl vatn
  • 125 g hveiti
  • 3 egg
  • 1/4 tsk salt
  • 1 tsk sykur

Sjóðið saman vatn og smjör (sykur og salt ef það er notað).  Bætið við hveiti í pottinn og hræra því kekklaust saman við. Sumir hafa pottinn á hellunni á meðan þeir hræra í hveitið aðrir taka pott af hellunni á meðan.  Ég hafði hann á hellunni.

Setjið deigið í hrærivél

Hrærið við eggjum, einu í einu.

vatnsdeigsbollur 

Mótið bollur á smjörpappírsklædda ofnskúffu, um það bil 1 matskeið hver bolla með hæfilegu millibili.

Bakið við 200°c í 30 -40 mín. (35 mín hjá mér).

Þetta urðu um 20 bollur. 

Og meir um vatnsdeigsbollur hér.  


Heimagerð Thai sweet chili sósa

Alltaf minnka hjá mér innkaup á tilbúnum vörum.  Nýjasta afurðin er Thai sweet chili sósa sem mér finnst vera ómissanleg með núðluréttum og öðrum asískum mat.

Ég hélt að það væri fremur flókið að gera svoleiðis sósu þannig að hún líktist þessum sem ég er vön að kaupa.  En viti menn. Eftir 10 mínútna mall á örfáum hráefnum var komin dásamlega bragðgóð sæt chili sósa.

(Chili, chilli, chile...ég kalla þetta chile, það þykir voða fínt hjá"hard core" chile aðdáendum. En svo segi ég Thai sweet chili sauce því þannig er það yfirleitt á umbúðum sósunnar).

Fyrst er að smakka til rauðan chile.  Þeir geta verið mjög mis sterkir.  Í þessa sósu er gott að vera með fremur bragðsterkan chile. 

Ef þið eruð með mjög sterkan chile þá getið þið notað minna af fræunum eða skafið þau öll í burtu, en í þeim er mesti hitinn.

thai sweet chili sósa 

Thai sweet chili sauce

 

  • 3 hvítlauksrif, afhýdd
  • 2 rauðir chile piprar (með eða án fræja)
  • 1.2 dl sykur
  • 1.8 dl vatn
  • 0.6 dl borðedik
  • 1/2 msk salt

 

 

  • 1 msk kornsterkja eða kartöflusterkja
  • 2 msk vatn 

 

Setjið allt í blender nema kornsterkjuna og 2 msk af vatni.  Maukið vel.

Setjið maukið í pott og leyfið suðu koma upp. Lækkið hitann niður í meðalhita og látið malla þar til sósan byrjar örlítið að þykkna, um 3 mínútur.

Hrærið saman kornsterkju og vatni og bætið út í sósuna, hrærið í pottinum um leið og þið hellið sterkjunni út í og látið malla í 1 mínútu.

Kornsterkjan þykkir sósuna og gefur henni flotta áferð, annars væri þetta bara eins og þunn sósa með chile bitum fljótandi á yfirborðinu.

Kælið sósuna alveg og setjið í sótthreinsaða krukku og geymið í ísskáp.

Ef þið ætlið að gera svona sósu í einhverju magni til að geyma í lengri tíma þá er talað um að nota "Pre-gelatinized" sterkju.

Ég læt mér bara duga minna magn í einu, enda er þetta einföld og fljótleg uppskrift.  Tekur um hálftíma að skella í eina litla krukku.

thai sweet chili sósa 

Áferðin á sósunni var fullkomin, styrkleikurinn á chilebragðinu góður, fersk hvítlauks og chile lykt. Alveg frábært! 

Og best af öllu...nú er maður miklu nær því að vita hvað fer ofan í mann og sykurmagninu getur maður stjórnað sjálfur. 

Ég datt niður á blogg um tælenska matargerð shesimmers.com.  Það lítur út fyrir að vera margar skemmtilegar uppskriftir þarna.


Rauðrófusalat

Þið munið kannski, ég var að væflast með rauðrófur og epli hér um daginn.  Svo varð úr að ég ákvað að henda saman rauðrófusalati þrátt fyrir að vera ekki sérlega spennt fyrir því.  En viti menn, það var ferskt og gott og smellpassar með steiktu buffi.  Rauðrófur og epli dansa saman.

Það sem gaf mér hugmyndina að þessu var uppskrift sem ég fékk frá vinkonu sem var m.a með súrum gúrkum og ég mun fylgja þeirri uppskrift nánar síðar. Næst þegar ég fæ súra gúrku þrá.

rauðbeður

Rauðrófusalat I

  • 3 forsoðnar rauðrófur (hægt að kaupa forsoðnar í búðum)
  • 1-2 epli
  • 2-3 msk sýrður rjómi
  • Smá salt
  • Sítrónasafi úr hálfri sítrónu

Skerið rauðrófur og epli í teninga.  Setjið í skál og hrærið saman við það sýrðum rjóma, smá salti og sítrónusafa.

Flóknara var það ekki.

Rauðrófusalat II

  • 400 g rauðrófur, ekki ferskar
  • 150 g súrar gúrkur
  • 2 epli (gul-rauð)
  • 1 dl rjómi
  • 2 msk mæjónes
  • Salt og pipar

Svo er það hann Jamie Oliver, fyrst ég átti rauðrófur og alles og þar sem ég er að vinna mig í gegnum bókina hans.  Rauðbeður og balsamik edik er ágætis kombó.


Vatnsdeigsbollur - samanburður á nokkrum uppskriftum

Ég valdi af handahófi nokkrar vatnsdeigsbolluuppskriftir af netinu til að bera saman ásamt uppskriftum frá mömmu og tengdó sem hafa bakað sínar bollur í tööööttöguogfimm ár (eða kannski nær 45 árum).  Uppskrift frá Cafe Sigrún fær að fljóta með því það eru svo margir í spelt - agave - kókósolíu pælingunni.

Leiðbeiningar við bakstur eru yfirleitt mjög svipaðar.

Sjóðið saman vatn og smjör (sykur og salt ef það er notað).  Bætið við hveiti í pottinn og hræra því kekklaust saman við. Sumir hafa pottinn á hellunni á meðan þeir hræra í hveitið aðrir taka pott af hellunni á meðan.

Setjið deigið í hrærivél

Hrærið við eggjum, einu í einu.

Deigið á ekki að leka, heldur halda lögun.

Og svo þarf að muna:

  • Það er alveg bannað að opna ofninn á meðan verið er að baka bollurnar
  • Hafa gott bil á milli þeirra  á plötunni
  • Betra of lítið af eggi en of mikið, hálft egg of mikið getur eyðilagt uppskrift

Smellið á myndina til að sjá hana stærri:

vatnsdeigsbolla

Leiðbeiningamiðstöð heimilina

Mosfellsbakarí

Pressan.is

Freisting.is

Mömmur.is

Cafe Sigrún

bollur

UPPFÆRSLA FRÁ RITSTJÓRA:

Ég var að smakka bollurnar hennar mömmu, bakaðar skv. hennar uppskrift sem má sjá hér að ofan.  þær heppnuðust vel og voru mjög bragðgóðar.  Get mælt með þeirri uppskrift.


Frábærar Brownies, með smá "tjúí" áferð

Ég baka mjög sjaldan súkkulaðikökur eða Brownies, finnst þær oft verða þurrar og lítið spennandi hjá mér. 

Annað hvort er ég að skána í bakstrinum eða hef dottið niður á góða uppskrift, ég held bæði.  Þessar Brownies voru ótrúlega skemmtilegar, hvernig úskýrir maður chewy - þá er ég ekki að meina seigar heldur karamellu chewy stemmning.

Ég á eftir að gera þessar aftur.

brownies

Brownies

  • 140 g smjör
  • 280 g sykur
  • 80 g kakó
  • 1/4 tsk salt
  • 1/2 tsk vanilludropar
  • 2 egg (köld)
  • 70 g hveiti

Hitið ofninn á 160°c

Setjið smjörpappír í eldfast mót eða notið það kökumót sem þið erum vön, mitt var um 20x30 cm. Og smjörpappírinn náði upp á sitthvora brún þannig að ég gat togað kökuna upp þegar hún var bökuð.

Bræðið saman smjör, sykur, kakó og salt.

Setjið smjörblönduna í þá skál sem þið ætlið að hræra þetta saman í (ég nota Kitchen Aid) þegar smjörið hefur kólnað aðeins. Bætið við vanilludropum. Bætið við eggjum, einu í einu.

Þegar þetta er orðið vel glansandi og vel blandað saman bætið þá við hveitinu og hrærið því vel saman við. (Það tekur ekki langan tíma í hrærivél, talað var um 40 strokur með sleif)

Dreifið úr deiginu í eldfasta formið.

Bakið í 25 - 30 mínútur, þannig að þið sjáið að hún er enn rök (moist) í miðju ef tannstöngli er stungið í hana.

kaka

Takið kökuna úr forminu og skerið í hæfilega bita og borðið hana helst volga og ekki er slæmt að fá sér rjómaklessu eða vanilluís með.  Lítill hjálparkokkur var mjög hrifin af þessari köku bæði áður og eftir að hún fór í ofninn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband