Jóladagatal Soffíu - 15 dagar til jóla

Jóladagatal...15

Þetta gæti verið skemmtilegt föndur með krökkunum.  Það þarf ekki að kosta mikið að gera svona stjörnu.  Þessa stjörnu fann ég hér.

klosettstjarna

Ég hugsa alltaf um það þegar ég hendi klósettrúllum hvort ég ætti að setja þær í "föndur safnið" sem samanstendur af örfáum eggjabökkum og nokkrum glimmerlímtúbum sem ég var að kaupa, en það stendur til að stækka safnið.  Ég mun að minnsta kosti safna klósettrúllunum eitthvað fram að jólum og sjá svo til hvernig gengur á þær.

glimmer

Ég meir að segja rakst á leiðbeiningar hér þar sem maður getur búið til sitt eigið glimmer úr salti.  Ef það virkar vel þá gæti það sparað einhverja aura.  Þið finnið leiðbeiningarnar neðst á síðunni til hægri undir Non Toxic Glitter.  Til að gera svona glimmer þarf bara bökunarplötu, álpappír, salt og matarlit.  Hljómar einfalt...

Fyrri færslur jóladagatalsins...

16 dagar til jóla

17 dagar til jóla

18 dagar til jóla

19 dagar til jóla

20 dagar til jóla

21 dagur til jóla

22 dagar til jóla

23 dagar til jóla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband