Færsluflokkur: Menning og listir
19.3.2009 | 20:51
Tjúttlingur með Parmigiano
Mér finnst eiginlega orðið meira gaman að elda þegar ekkert er til. Þá verða skemmtilegir hlutir til og frumlegri. Eldum eiginlega alltaf núna í formi forrétta og þá yfirleitt til skiptis sitthvorn réttinn, stundum 2 eða þrjá í total.
Og alltaf í anda foodwaves, semsagt vitum ekki hvað hinn eldar og verður að vera án uppskrifta og helst smá frumlegheit.
Með þessu móti borðar maður minna og hægar. Þannig að þetta er alveg í anda einhverra svona tísku megrunarlífstíls dóts...En við erum svo sem ekki að þessu út af neinu öðru en að við höfum gaman að því að elda og borða. Og ég spara ekki smjör, en íslenskt smjör er líka bara hollt.
Það var einhverntíma að ég held í gestgjafanum ógeðslega góður kjúklingaréttur sem hljómaði einhvernvegin svona, næstum því.
Tjúttlingur með Parrrmigiano
- Kjúklingabringur (einn á mann eða svo)
- Smjör (eða olía) ég nota líka oft bæði
- Einn bakki sveppir eða svo
- Smá safi úr sítrónu
- Slatta skvetta af rjóma
- Eins mikinn parmigiano ost og þið nennið (a.m.k dl)
- Fersk mynta, bara smakka til og eftir smekk
- Salt og pipar
Kryddið bringur með salti og pipar og steikið í smjöri og/eða olíu í nokkrar mínótur. Bætið við sveppum og hvítlauk (Mætti kannski bæta við smá meira smjör hér). Kreistið yfir smá sítrónu og svo rjóma og þvínæst parmigiano og sjóðið þar til bringurnar eru eldaðar. Bætið saxaðri myntu út í að lokum.
Svo er alveg málið að rífa ferskan parmigiano yfir herlegheitin þegar það er komið á diskinn.
TIPS: Ég klíf bringur oft þversum, þannig eru þær þynnri og taka minni tíma í eldun og það er líka oft alveg nóg, hálft bringa á mann sérstaklega þegar meðlæti er með eins og gott baguette, hrisgrjón og stuff.
Jæja, vorjafndægur á næst leiti og komin tími til að leggja kanínunni. Já, og svo fékk ég mjög skemmtilega linsu í afmælisgjöf og flass. Oui Oui. C´est moi.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 22:05
Áfeng bananasúpa
Þessi er rosa góð í forrétt :) Frosnir bananar auka á ferskleikann.
Áfeng bananasúpa
- Passoá
- Amaretto
- Skvetta af sódavatni
- Smá appelsínusafi
- Frosinn banani
50/50 af Amaretto og Passoá, appelsínusafi eftir smekk. Öllu hent í blender, borið fram í kokteilglasi.......með skeið.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 16:46
Er ekki eitthvað skakkt við það að...
.. versla erlent kolsýrt vatn á ódýrara verði en það íslenska í matvöruverslun hér á landi?
Í fyrsta lagi er það allt of fyndið að flytja inn vatn til landsins, og í öðru lagi, að það skuli vera ódýrara en það íslenska segir sitthvað um uppsprengt verð á íslensku kolsýrðu vatni.
Það voru 79 krónur fyrir 2 lítra af innflutta vatninu en algengt verð er um 140 kr af því íslenska frá Vífilfelli, stundum fer það þó niður í 98 krónur í lágvöruverslun en það gerist svosem ekki oft.
Svo er til kolsýrt vatn framleitt af bleika svíninu sem ég veit ekki hvað kostar en það er eitthvað um 100 kallinn held ég.
Magnað!
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Menning og listir | Breytt 17.3.2009 kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2009 | 10:16
Allt er gott sem endar vel
Að lokum var boðið upp á Franska súkkulaðiköku sem ég reyndar bakaði ekki og hef því enga uppskrift af henni, en hún smakkaðist mjög vel, ég get sagt ykkur það.
En svo var líka boðið upp á Kúrbítsköku, en ég hef bloggað þá uppskrift hér fyrir nokkru. Og er tera góð! Kúrbíturinn vegur svo vel á móti sæta elementinu finnst mér.
Með þessu var boðið upp á Otard vsop og rauðvín. Þegar hér var komið við sögu var klukkan að ganga fjögur og allir saddir og sáttir.
Takk fyrir mig!
Sx
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
12.3.2009 | 17:19
Raclette
Svo var komið að Raclette. Eitthvað sem klikkar aldrei ef maður er með Racletteost og gott naut. Klukkan orðin 01.35, réttur númer fimm.
Sheep riding the mechanic bull in the raclette ring
- Raclette ostur
- Nauta fille
- Kinda fille (TERA gott!)
- Kúrbítur
- Rauðlaukur
- Paprika
- Fullt af góðum kryddu, og steikarkryddum
- Góð sósa úr sýrðum með grænum pipar, graslauk eða eitthvað gott.
Einnig er gott að skera kartöflur í tvennt og baka í ofni þar til eldaðar svo að sárið (skurðurinn) er orðinn vel brúnn, jafnvel smá brunninn og bera fram með þessu öllu.
Kúrbítur og rauðlaukur skorinn í skífur, paprikan í stóra bita og kjötið í fremur þunnar sneiðar. Svo grillar hver og einn fyrir sig.
Með þessu kom Chianti Classico, ISOLE E OLENA, 2005. Og ég verð að mæla með Johnny Cash, nokkrum greatest hits með svona rétti, amk Ring of fire, Folsom Prison Blues, Walk the line og Hurt.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2009 | 10:08
Ofsaltaður hestur
Hrossið, sem ég fékk í Ostabúðinni hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, en í þetta sinn var það allt of salt. Þrátt fyrir að vera saltfíkill þá hefði ég viljað hafa það mun ósaltara til að kjötið sjálft fengi að njóta sín betur.
Borið fram með Faustino I, 1996. Tera vín! Island in the stream með Kenny og Dolly er must með þessum rétt.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
11.3.2009 | 20:05
Ekkert til, en samt nóg til
Kannist þið ekki við það að fara inn í eldhús til að búa til kvöldmat og það er ekkert til. Lendi oft í þessu en í staðin fyrir að fara út í búð þá challenge-um við hvort annað og búum til sitthvorn réttinn.
Í kvöld var það fyrst ég og hann smakkaðist TERA vel og nú er hann að byrja á sínum rétt með hausinn inn í ísskáp að sagði. "Það er rosa challenge í gangi"
Sé hann taka jagemeister flösku úr frystinum, en vona að hann ætli bara að drekka það núna en ekki marinera humar í því eða eitthvað.
Nei, hann er búin að fá sér jagemeister í kokteilglas, verð bara að fara að taka mynd af þessu...augnablik.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Rétturinn sem ég gerði var
Túnfisks cannelone með djúpsteiktu hamborgarabrauði
- Túnfiskur í dós
- Laukur
- Kúrbítur
- Hvítlaukur
- Hakkaðir tómatar úr dós
- Heitt pizzakrydd (mjög heitt hjá mér þessa dagana, fer svo TERA vel með öllu)
- Salt og pipar
- Smjör
- Hvítvín
- Lasagna plata eða cannelone rör)
Mallið lauk, kúrbít og hvítlauk, allt smátt skorið, á pönnu í smjöri. Bætið við túnfisks og svo tómötum í dós. Svo setti ég smá hvítvín og aðeins meira smjör. Mallimall.
Setti lasagna plötu í sjóðandi vatn svo hún mýktist. Hún kólnaði aðeins og þá setti ég túnfisksfyllingunaá plötuna og rúllaði upp.
Setti smá af sósunni í eldfast mót og rúllurnar ofan (svo þær festist ekki við botninn). Og svo smá af hökkuðu tómötunum ofan á ásamt parmagiano.
Inn í ofn í 5 mín eða svo.
Á meðan cannelone-ið var í ofninum skar ég tvær sneiðar af Höfðingja, velti honum upp úr þeyttu eggi og brauðraspi, sem var hamborgarabrauð sem ég fann inn í frysti og rifinn parmagiano. Djúpsteikti þetta og bar fram með cannelone-nu.
Og í anda þess að það sé ekkert til þá mæli ég með að bera fram Solaz rauðvín úr kassa og lagið Fuzzy með Grant Lee Buffalo, flott lag sem vinur minn benti mér á fyrir stuttu og hljómar TERA vel.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Seinni rétturinn var í anda spænskrar ommelettu með kúrbít, lauk og soðinni kartöflu. Muy bien!
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2009 | 17:04
Allar uppskriftirnar so far
Þarf svo við tækifæri að koma upp einhverju skipulagi á þessar uppskriftir sem ég hef sett hér inn.
- HumarHallar (A la afmælis)
- SKARFUR
- Let the game begin (rjúpusúpa)
- Pepp (Steikt egg, ostur, pepperone)
- Austurlandahraðlestin (lambakjöt í pítu)
- Fiskurinn í sjónum (Ofnbakaður a la Halli)
- Tagliatelle og önd
- Pizza með kotasælu
- kúreka bbq sósa
- Harðfiskur með hvítlaukssmjöri
- Beikon og egg (með hrísgrjónum ofl.)
- Fullorðinsbollur (bolludags)
- Pizza með bönunum og camembert
- Tandoorikjúklingavængir
- Matchbox jeppi
- Djúpsteiktar pulsur
- Sætar fermingafranskar (Sweet bar mitzvah)
- Patchos sósa
- Inspired (kjúkl. vængir með hýðishrísgrjónum)
- Appelsínukókóssósa
- Linsubaunasósa
- Hot House fajitas
- Grindexican
- Geðsjúk köld sósa (thai, sýrður og ofnbakaður hvítlaukur)
- Karrrrtöflur
- Melt in your-mouth Súkkulaðikaka
- Kúrbíts súkkulaðikaka
- Semi-Belgískar sódavatns vöfflur
- Grænmetis Tagliatelli
- va va va vino
- Gráðosta-Jalapeno sósa
- Chile con carne
- LAX Í SKÁL
- Lax (grillaður)
- Spínat salat með rauðlauk og beikoni
- Hvítlaukssteiktar rækjur með hrísgrjónum soðnum í kókósmjólk
- Fallegasta samloka í heimi
- Lime Jalapeño aioli
- Kleinuhringir úr pizzadeigi
- Svartar baunir og kjúklingabaunir dip
- Humar á jóladag með rjómaostasósu
- Humarsúpa á annan í jólum
- Laxamauk borið fram í harðsoðnu eggi.
- Laxa-eggja salat
- Lax með rjómaosti og rauðlauk og kapers
- Lambafille með avacadomauki
- Lambakjöt með Red Curry
- Kjúklinga cannelone
- Saltfiskur með súkkíní og fleiru góðu
- Rækjutapas
- Kjúklingasúpa með núðlum
- Appelsínurjómasósa
- Hrísgrjón soðin í kókósmjólk
- Besta kombó í heimi,tapas rauðlauk pulsa ost ofl
- Fransbrauð með púðursykri
- Eggjatapas
- Ólífuolíukakódressing
- Kabab masala wannabe bollur
- Tikka Masala.
- Tvö tonn af osti... tetilla ostasamlokan
- Kartöflu-túnfisks-ítalskt salat
- Tagliatelle Bolognese eins og ég geri
- Kartaflan í örbylgjuofninum
- Bruchetta (Basic uppskrift)
- Kartöflumós
- Hunangssmjör
- Súper góð snitta með smurost og ólífum
- Papadams forréttur
- Tortilla og Krabbasalat
- Krabbasalat
- Fancy Patatas Bravas
- PATATAS BRAVAS
- Treo(Hráskinka-aspas-parmaostur)
- Tagliatelli Parma
- G&T - ekki fyrir stelpur
- Ansjósur barþjónsins
- Svartbaunasúpa
- Skinkurúlla
- Spínatpönnukökur (Gestgjafinn)
- Tinto de verano
- Húrrandi holl grænmetissúpa
- Tortilla de español
- Letingjabrauð
- Minn Hummus
- Papriku og chile sósa
- Lambið sem fór til Arabíu
- Mango Tango ( Mango curry kjúklingur með hörpudisk)
- Avacado mauk
- Manchego ostur
- Salat með Manchego og hunangsdressingu.
- Hunangsdressing
- Focaccia samloka með nautahakki
- Kúrbíts-gulrótarbrauð
- Hvítlauks-salatdressing
- Lahmacun
- Crêpes
- Sinnepssósa
- Sinneps kræklingur
- Taí kræklingur
- klettasalatspestókartöflusalat
- Verkamannaútgáfa af Paralyzer
- Humar og Avacado - match made in heaven
- Kúrbítsblóm (Zukkini flowers)
- Egyptian Walking Onions
- Rauðbeðsídýfa
- Belgbaunir með hnetum og hvítlauk
- Pizza Pizza. Nokkur ráð
- Ógeðslega einfalt (Rjómaostur og sweet and sour tai sósu)
- Gulrótar og appelsínu súpa
- Gallo Pinto
- Dürum
- Semi Raita
- Chile Olía
- DAHL úr rauðum linsum borið fram með Roti, Raita og Mango chutney
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2009 | 10:15
Humar og koníak er alveg TERA gott saman
Um kl 23.00 var komið að þriðja réttinum. Það var humar með rjómasósu. Humar og koníak er match made in heaven, þannig að setjið koniaksslurk út í sósuna ef þið eigið.
Er að hlusta á soundtrack frá Twin Peaks, held það færi mjög vel með þessum rétti ásamt Vicar´s choice chardonnay.
HumarHallar
- Humarhalar
- Paprika, mjög fínt skorin
- pressaður hvítlaukur
- Rjómaostur
- Rjómi
- Hvítvín
- Koníak
- Smjör
- Salt
- Pipar
- Heitt Pizzakrydd
Takið humarinn hálfan upp úr skelinni með að skera ofan á skelina og lyfta humrinum ögn upp. Steikið bara örstutt á pönnu upp úr smjöri og hvítlauk. Leggið til hliðar. Þá er komið smá humarfílingur á pönnuna.
Mallið á pönnunni án þess að þrífa hana hvítlauk og papriku, bætið smá smjöri við, rjómaosti og svo rjóma og hvítvíni. Látið malla, setjið svo smá koníak. Ég kryddaði með salti og pipar og smá af heitu pizzakryddi frá Pottagöldrum (TERA krydd).
Setjið humarinn aftur á pönnuna í 1 mín eða svo til að fá smá hita í hann og blanda honum við sósuna, bara passa sig að ofsteikja hann ekki.
Geymið svo skeljarnar og gerið úr þeim humarsúpu.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
10.3.2009 | 16:48
Note to self...
Fartölvur drekka ekki rauðvín.
Hálft glas sullaðist yfir lyklaborðið. Það kom að því. Tölvan fór að haga sér eins og hún væri full. Það kom ekkert nema rugl þegar maður type-aði með lyklaborðinu Það er ekki alveg runnið af henni en ég er komin með extended lyklaborð og það svínvirkar.
Þetta minnir mann á það að taka backup reglulega! Á morgun segir sá lati en þið sjáið ekki eftir því að eiga backup ef illa fer, trust me!
Þá er komið að rétti númer tvö frá afmælisdinnernum
SKARFUR
- Heitreiktur skarfur (fæst í Ostabúðinni)
- Hindberja vinegrette
- Klettasalat
Dreifið klettasalatinu á disk. Skerið skarfinn niður í þunnar sneiðar og dreypið vinegrettinu yfir.
Borið fram með Red Rooster, Meritage, 2005 frá Okanagan í Kanada og White winter hymnal með Fleet Foxes.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)