Færsluflokkur: Matur og drykkur

Ekki er allt vænt sem vel er grænt - Svínafóður!

Ég er frekar fúl út í einstaka kartöflubændur, ég hef keypt oftar en ekki poka þar sem meirihlutinn eru grænar kartöflur.  Þsð er sagt að maður eigi ekki að borða grænar kartöflur, þær hafa fengið á sig sól og mynda óæskileg efni (Sólanín) ásamt því að vera beiskar og þar af leiðandi bara óætar.

Og þótt svo þetta drepi mann ekki endilega þá er þetta ekki eitthvað sem maður á að láta bjóða sér, sérstaklega þar sem kartöfluræktun er eitt af því fá hér á landi sem þrífst vel.

Svo er maður svo mikill plebbi að maður fer aldrei í búðina til að skila svona óætum vörum, heldur sker maður hýðið af kartöflunni, svo vel að eftir stendur afhýðuð kartafla á stærð við baun.

Svo eru þessar kartöflur í gulum pokum svo það er ómögulegt að segja til um hvernig ástand þeirra er.

Þá er ég búin að létta á mér.  Á hressari nótum...  þá geri ég stundum mæjónes.  Stundum tekst það ekki sem skildi og ég sit uppi með hálfan líter af olíu og eggjarauðu.

Það er víst lykilatriði að vera með olíu og eggjarauðu við stofuhita.

Ef þið eruð með egg beint úr ísskáp þá má setja það í  volgt vatn í smá stund til að flýta fyrir að það nái stofuhita.

mæjones 

Mayo

  • 1 eggjarauða
  • 3/4 bolli ólífuolía (eða um það bil)
  • Salt, bara smá
  • 1-2 msk sítrónusafi

Nú þarf sterka hönd og eitthvað til að hræra mig, eða það þarf helst 2 hendur þannig að það er ágætt að fá einhvern í lið með sér til að skiptast á að hræra.

Blandið saman eggjarauðu, salti og sítrónusafa.  Hellið olíunni mjög hægt til að byrja með, bara í dropatali. Þegar blandan fer að ná þeirri þykkt sem líkist mæjónesi þá má hella henni hraðar.

IMG_2346 

Eins og svo oft þá má finna heilan helling um mæjónes gerð á netinu og með því að fara á Youtube þá er hægt að sjá myndbönd þar sem fólk gerir mæjó á engri stundu með matvinnsluvél eins og til dæmis hann Gordon Ramsey eins og sjá má hér

Það má nota ýmsa olíu, grænmetis, ólífuolíu eða jarðhnetuolíu.  Extra Virgin olía er bragðmeiri en mér finnst það reyndar gott.

Svo er hægt að krydda mæjónesið að vild með því að blanda saman við rauðuna t.d hvítlauk eða Dijon sinnepi. 

  Follow Me on Pinterest


Hinn dæmigerði bloggari - þræll samfélagsmiðla?

foodblogger2

THE HOUSE BY THE SEA 


Líkjör með kaffiklökum og ekki neitt fyrir 12.000 kall

Ég er alveg komin með upp í kok á að fara í matvörubúðir því ég man svo vel þegar mér blöskraði það að þurfa að borga 3500 kall fyrir ekki neitt, og enn betur man ég eftir því þegar ég borgaði 7000 kall fyrir ekki neitt.  Það er eiginlega bara í móðu þegar ég borgaði 10.000 kall fyrir ekki neitt því það tímabil stóð svo stutt yfir því það fór strax í 12.000 kall fyrir ekki neitt.  

Nú eru málin þannig að við erum að fara hægt og rólega í 17.000 kall fyrir ekki neitt, því stundum borga ég 12.000 og ef ég bæti við flösku af hlynsýrópi, pakka af 70 % súkkulaði, einum kassa af grænu tei og 3 avocadóa, fancy fancy... þá kostar það 17.000.

Svo kom ég heim áðan og ætlaði að fara yfir þennan 12.000 kr strimil því í þetta sinn keypti ég EKKERT, þá var ég með rangan strimil.  Hef gripið strimil einhvers annars.  Hann hljóðaði upp á 7000 krónur.  Það var nú ekkert gæfulegri strimill.  Fáeinir hlutri en það gaman að rúlla yfir hann og sjá hversu ólíkt maður verslar miðað við marga aðra.  Þarna mátti sjá frosnar pizzur, daloon vorrúllur og beikon lifrakæfu :)

En það sem ég fæ fyrir minn 12.00 kall í dag eru drykkjarvörur eins og trópí og mjólk, bleyjupakki, ab mjólk, egg og smjör.  Það er ekkert mikið meira.  Ég keypti engan mat, eins og fisk eða kjöt, kartöflur eða grænmeti.  Aldrei kaupi ég unnar vörur og tilbuin mat.  Ekkert bruðl, bara rán um hábjartan dag.

Snökt snökt... 

 En á léttari nótum þá er hér uppskrift af ferlega góðum drykk sem sómir sér vel eftir góða máltíð.

líkjör 

Líkjör með kaffiklökum 

 

  • Líkjör, t.d Amarula eða Bailey's
  • Gott kaffi

 

Hellið upp á eitthvað gott kaffi.  Leyfið því kólna og setjið það svo í klakabox og inn í frysti.  Þegar klakarnir eru tilbúnir setjið þá út í glas af líkjör.  Líkjörinn helst kaldur og ekkert vatnssull þegar þeir bráðna.

klaki 

 


Sítrónu kjúklingur með tagliatelle

Ég fékk þessa frábæru uppskrift frá henni Nönnu, gúmelaðe matgæðingi, þegar ég var andlaus hér um daginn.

Ég lét svo vaða og viti menn.  Þetta var frábær uppskrift.  Þetta er svona uppskrift að næst þegar ég verð með "casual" matarboð þá verður þessi réttur í boði.  Nú er bara að vona að einhver vilji koma í mat fljótlega.

 kjúklingur

"Lemon chicken – a delicious recipe.


2-4 chicken breasts (depending on how many people you have for dinner)
Cut each into two pieces, on the thicker side, i.e. thinning each.
That leaves you with 4-8 pieces which you coat with flour or spelt, liberally seasoned with black pepper.


Fry the chicken breasts in a mixture of olive oil and vegetable oil and put in a baking dish to keep in oven for about 20 minutes at 180 degrees. Due to the thinness of the slices they don’t need long.

DO NOT DISCARD THE OIL AND FLOUR! in your pan.


Press 1-2 lemons and add the lemon juice to the pan, along with some chicken stock, around a cup or so. Add more pepper to taste, and finally 250 ml. cream, full fat or other according to taste.


Pour the thickened sauce over chicken and boil some tagliatelle.


Serve piping hot with Parmesan and a good, green salad."


Brownie í bolla- tilbúin á 4 mínútum

Ég varð nú bara að prófa þessa, ekki dýrt hráefni og tók  aðeins um 4 mínútur að gera.

Hráefninu í þessa súkkulaðiköku er skellt í bolla og öllu hrært saman.  Svo setur maður bollann inn í örbylgjuofn í 1 mínútu og 40 sek.

Þá er kakan tilbúin.  En hvort þetta sé besta súkkulaðikaka sem ég hef smakkað má deila um, en hún er alveg ágæt ef maður setur góðan slurk af ís ofan á hana. 

brownie

Brownie í bolla 

 

  • 1/4 bolli sykur
  • 1/4 bolli hveiti
  • 2 msk kakó
  • 1/2 tsk salt 
  • 3 msk ólífuolía
  • 3 msk vatn

 

Setjið þurrefnin í bollann.  Bætið við olíu og vatni. Hrærið vel saman. Setjið bollann í örbylgjuofn og bakið í 1 mín og 40 sek á high. (Minn ofn er 800w).

Takið bollann út úr ofninum, passið ykkur, hann er heitur... :)

Setjið ís ofan í bollann og borðið.

brownie

 Húsið við sjóinn

Húsið við sjóinn á facebook

Pinterest 

 

 


Farro og cannellini með risarækjum

Ég fékk þó nokkrar frábærar uppskriftir eftir að ég var andlaus þarna um daginn.

Ég fékk eina uppskrift af Quinoa salati, sú sem sendi mér hana hafði fengið hana hjá öðrum bloggara, gert hana að sinni og nú tók ég hennar uppskrift og gerði að minni, því ég átti ekki Quino, en ég átti Farro, svo átti ég ekki svartar baunir heldur Cannellini baunir.  Það væri einnig hægt að nota bankabygg í staðin fyrir Farro, nú eða Quinoa.

Þið getið kíkt á uppskriftirnar og séð hvernig þær þróast og jafnvel  gert ykkar eigin útgáfu af minni uppskrift.  Ég líki þessu við hvísluleik, einn segir eitthvað orð og þegar sá síðasti í röðinni hvíslar orðið þá er það orðið að einhverju allt öðru...

Hér er upprunalega uppskriftin:
Mango and Avocado Quinoa Salad with Blackened Shrimp

Sú sem gaf mér uppskrift af sínum rétti, Trials in food:
Recipe (adapted from Daily Crave)

Hér er mín uppskrift:

farro 

Farro og cannellini með risarækjum, frá Trials in food 

  • 1 bolli Farro (soðið í 40 mín eða svo)
  • 2 rauðar paprikur
  • 3 gulrætur
  • 1 bolli Cannellini baunir (úr dós eða soðnar)
  • 3-4 vorlaukar
  • 1/2 agúrka
  • 2 tómatar
  • 1/2 bolli maískorn, lífrænt ræktuð helst
  • 2-3 msk ólífuolía
  • Safi úr 1/2 sítrónu
  • Risarækjur (ca 12)
  • Kryddblanda á rækjur, égnotaði papriku, oregano, hot pizza spice mix frá Pottagöldrum, salt og pipar.

Sjóðið baunir (ef þær eru ekki úr dós) og Farro.  Skerið grænmetið smátt.  Steikið rækjurnar, (blackened). Setjið allt í skál, blandið vel saman og berið fram eitt og sér eða sem meðlæti með t.d fiski.

Meira um Blackening hér.

- Salat í þróun -

Daily Crave

Trials in food

The House by the sea – foodwaves

(Þú) 

northern 


Ertu matarbloggari?

Ég er svo andlaus.  Mig langar í eitthvað gott, eitthvað sem ég hef ekki gert 1000 x áður en veit ekki hvað.  Kannastu við þetta? 

Ef þú átt skemmtilega eða uppáhalds uppskrift þá máttu pósta link á hana í commentakerfið á blogginu mínu hérna

 

gaffall 

En hafðið annars tekið eftir því hvað það er komið mikið af fínum íslenskum matarbloggum.  Mér finnst nokkur mjög skemmtileg og af þeim sem ég hef uppgötvað nýlega og man eftir í fljótu bragði og get mælt með má nefna:

Eldað í vesturheimi 

Modern Wifestyle

Home and Delicious 

Svo er tonn af erlendum matarbloggurum, það er ótrúlegt hvað margir hafa gaman að því að tjá sig um mat

....ég skil þá veeeel og svo er þetta frábær aðferð til að halda utan um allar uppskriftirnar sínar. 

 


Pop list - pop maís - micro greens

Það er ýmislegt annað hægt að gera við maís baunir annað en að poppa þær.  Ég gleymi því alltaf hversu lifandi þær eru þarna hreyfingalausar í  pokanum. 

pop 

The House By the Sea 

 


Sýrður rjómi - heimagerður og betri en nokkur annar...og einfalt

Eitt hráefni eins og svo oft áður en þessi sýrði rjómi eða öllu heldur Creme Fraiche er frábær.  Þú einfaldlega lætur súrmjólk leka í gegnum kaffisíu í örfáa klukkutíma, ætli það taki ekki um 1-2 klst að fá um 1 dl.

sýrður 

Þegar súrmjólkin hefur runnið í gegnum síuna ofan í bolla þá stendur þú uppi með mysuna í bollanum og þennan fína Creme Fraiche í kaffisíunni, tilbúin til notkunar.   

Það er nefnilega munur á sýrðum rjóma og creme fraiche, og ég veit ekki til þess að það sé hægt að kaupa creme fraiche í búðum hér á Íslandi. Þessi uppskrift kemst nær því að vera creme fraiche, en það má víst gera hann með því að hræra saman rjóma og súrmjólk, en alla vega þá er þetta frábær aðferð að einfaldlega sía súrmjólk.

sýrður 

 


Hið fullkomna "naan" brauð LOKSINS LOKSINS!

Ég hef verið að blogga á ensku og ætlað að þýða það íslenska yfir á ensku, þannig að sama færslan væri eins á íslensku og ensku.  Einhvervegin fer það alltaf fyrir ofan garð og neðan hjá mér. Færslurnar enda á að vera mjög ólíkar og ekki einu sinni endilega um það sama því oft er ég að þýða gamlar íslenskar færslur.  

Þannig að með tímanum þarf ég að sjá hvort það sé tilgangur að vera með tvö matarblogg á sitthvoru tungumálinu, því tilgangurinn með þessu hjá mér er aðallega að halda utan um uppskriftir. 

Ég ætla því núna að láta reyna á letina og setja inn ensku færsluna eins og hún leggur sig.  Eru ekki allir það sleipir í ensku hvort eð er?

Enska bloggið má finna hér

 

The perfect “naan” FINALLY! and gorgeous Northern Lights

The good thing about waking up every now and then to feed your baby is when you look out the window of your bedroom in the middle of the night to feed and you see the sky lit up with beautiful green Northern Lights.

My bedroom view last night

I had to go out and see the sky dance.  It was hard to get out of the warm bed after the baby was a sleep with the rest of the family members.  But it was worth it.

As some of you might know I live in the country.  Than means no traffic, no street lights and very few neighbors.  So, at 2 in the morning I was up and out to enjoy the beauty of the Northern Lights, all by myself.  The sky was filled with stars as well.  The weather was completely still, little bit cold but nice.

At one point I saw an amazing shooting star, burning up.  It was so clear and unreal.  At a point like this, where you are all by yourself, it´s totally still, not a sound around, the sky covered with a green dancing light and bright stars, some of them falling…It makes you wonder :)

My back yard last night 

How to make a good naan has also made me wonder…how do they do it, at those good Indian restaurants, they have tandoori oven I know, but I was sure I should be able to do something better than what I´ve done in the past.  I always find my naan more like a pizza crust.  Too hard.

I saw a recipe for a naan, similar to all of the ones I´ve tried.  Then browsing around that site I found a recipe for something called Onion Kulchas.  It did sound good and something worth trying…and O MY COD, yes..COD! ( I´m from a fishing nation ;) ) They were so good that the Indian dinner I did with it wasn´t eaten.  My husband and I, we stood by the kitchen Island the whole time and ate the naan as soon as they came off the pan, with raw onion mix… I have a recipe for that as well.

They were so soft that I could roll them up, that is how I like my Naan.  So this isn´t Naan but Kulchas I guess, and Kulchas is what I will be making from now on…

You can put a little pit of the onion mix into the dough while you are rolling it out, i prefer the onion mix raw…

Kulchas

  • 3 cups flour
  • 1/2 tsp Baking powder
  • 1/8th tsp Baking Soda
  • 1 tbsp sugar
  • 1 tsp salt
  • 1/4 cup oil
  • 1/2 cup Yogurt

Mix all ingredients well together, add little bit of water if you need the dough more wet.  Set a side for 1-2 hours, room temperature.

Divide the dough into small golf ball size balls.  Flat out very thin with a rolling pin.  Bake on a very hot pan on your stove, about 1 minute each side.

Raw onion mix

  • 1 onion, chopped very finely
  • 1-2 chillies, slices thinly
  • 1/2 tsp ginger,grated
  • Fresh Koriander (Cilantro)
  • Salt to taste

I made a vegetarian dish as well, even though we didn´t end up sitting down to eat it, it was really good.

Believe it or not, I used the leftovers on a pizza couple of days later!  It was a reeeeaally good pizza, I will make it again.  I had the rest of the fresh onion mix spread on top of the pizza when it came out of the oven.

The paste was onion, garlic, chili, ginger, fried in oil added canned tomatoes and a bag of cashew nuts.  I spiced this up with an Indian spice blend I have, durban curry.  I put it in a blender.  Then I fried up veggies and mixed it with the paste as well as some yogurt.  VERY TASTY!

I am all about not buying jarred stuff, get yourself a good Indian spice blend and make your own sauces.

It´s fresh and you know what you are eating.

You can find me on Pinterest

And pleace like me on Facebook, I got lots of interesting stuff there 

Facebook - The house by the sea 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband