10.2.2009 | 00:15
Oh, baby baby
How was I supposed to know? Ég alveg datt í lukkupottinn áðan. Nema hvað, þegar ég þurfti að þjóta áðan þá var það vel þess virði, haldið þið ekki að ég hafi fengið.....
Og útúrdúr. Var að hlusta á gamlan disk með Britney Spears. Gimme gimme og You wanna piece of me kemur mér alltaf í stuð. Þá vitið þið það. Ég fíla Brit. Var reyndar að skipta yfir í gamlan disk með Ash. Sem bara fær mann til að tæma flöskuna.
Nema já, ég fékk...
....Matchbox jeppa ...búnað dreyma um það svo lengi
- Nautahakk
- Chile, sterkur
- Hvítlaukur
- Pipar
- Salt
- kúrbítur, fínt skorinn, galdur í matargerð! Kúrbítur klikkarekki!!
- Smáskornir sveppir
Allt steikt á pönnu.
Sósa
Klassísk sinnepssósa sem ég hef svo oft bloggað um
Brauðostur, kemur sífellt sterkari inn, maður þarf ekkert alltaf að vera að fjárfesta í rándýrum mossarellaosti, ekki það að þessi brauðostur sé ekki nógu dýr.
Tortilla kökur, skornar með ofur hringskera pro 2000 áhaldinu. Hakk og ostur ásamt sósu á milli og inn í snilldar paninigrillið, sem ætti að vera til á hverju heimili.
Þannig að kærastinn kom með frábæra útgáfu af rétti sem ég hef bloggað um áður en á algjörlega sinn hátt og svo vel gert, úr því sem er til var á heimilinu!! Life is good!
ok, ég er alveg að klúðra myndatökunum...en bara verður að fá að fylgja með hversu awesome matchbox jeppinn leit út.
Sxxxsleeeeeeeeeeeef
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hæ Soffía.
Hef verið að skoða síðuna þína,, öfunda þig af því að vera ekki í fitubolluátaki,,,,,, skoðaði sömuleiðis foodwaves,, skemmtilegt concept og vel þess virði að prófa,,,, fallega uppsett síða og aðlaðandi... mig langar að biðja þig um pointera á ódýran en skemmtilegan stað í köben til að bjóða frænku minni út að borða á. samt semifínt,,,
Daði
Daði Hrafnkelsson, 10.2.2009 kl. 08:07
You got mail Daði.
Soffía Gísladóttir, 10.2.2009 kl. 12:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.