18.6.2008 | 20:50
Gulrótar og appelsínu súpa
Þessi súpa er ótrúlega góð...og holl. Mjög einfalt, og súpergott. Flott sem forréttur.
- Ca 6 gulrætur
- 1-2 tsk ferskt rifið engifer
- 1 shalott laukur
- Ólífuolía
- 1 bolli appelsínusafi
- Ca hálfur líter vatn
- Grænmetiskraftur.
- Salt og pipar
Bitið niður gulrætur og sjóðið í vatni með grænmetiskraftinum. Í öðrum potti, svitið shalottlauk og engifer. Þegar gulrætur eru soðnar bætið þeim þá við ásamt 1-2 bollum af soðinu, og einum bolla af appelsínusafanum ásamt shallot og engiferinu. Setjið allt í blender eða matvinnsluvél, þar til allt er orðið vel maukað. Bætið við soði í blenderinn eftir því hversu blauta þið viljið hafa súpuna. Saltið og piprið (og kryddið með einhverjum öðrum kryddum ef þið viljið) eftir smekk. Setjið súpuna í pottin og hitið aðeins ef þess þarf.
Sx
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Breytt 11.1.2009 kl. 12:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.