Jóladagatal ...5

Ég var að gera smákökur og þær eru svoooolítið ljótar hjá mér, en það er bara af því að ég gaf mér ekki tíma í baksturinn.  Því uppskriftin er frábær og þær eru alveg ótrúlega góðar.  Þær minna mig svolítið á Toffiee pops kexið sem er svooo goooott.

Ég ætla að baka þessar kökur aftur og vanda mig betur næst.  Ég á sem betur fer eina þriggja ára sem hjápaði mér við baksturinn þannig að fólk heldur þá bara að hún eigi heiðurinn að skreytingunni.  : )

Ég er að tala um smákökurnar sem unnu kökukeppni Gestgjafans nú á dögunum.  Það var stelpa sem er með síðuna Kakan mín á facebook sem vann og það má sjá uppskriftina hér.

Ég mæli með að allir setji Like á síðuna hennar "Kakan mín" og fylgist með þessum stórgóða bakara. 

Ég skal setja inn myndir af mínum kökum eftir að ég er búin að mynda þær á morgun í "natural light".  

 

Þá er það gluggi númer 19 sem segir okkur að það eru 5 dagar til jóla.

calendar19 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband