19.12.2012 | 22:05
Jóladagatal ...5
Ég var að gera smákökur og þær eru svoooolítið ljótar hjá mér, en það er bara af því að ég gaf mér ekki tíma í baksturinn. Því uppskriftin er frábær og þær eru alveg ótrúlega góðar. Þær minna mig svolítið á Toffiee pops kexið sem er svooo goooott.
Ég ætla að baka þessar kökur aftur og vanda mig betur næst. Ég á sem betur fer eina þriggja ára sem hjápaði mér við baksturinn þannig að fólk heldur þá bara að hún eigi heiðurinn að skreytingunni. : )
Ég er að tala um smákökurnar sem unnu kökukeppni Gestgjafans nú á dögunum. Það var stelpa sem er með síðuna Kakan mín á facebook sem vann og það má sjá uppskriftina hér.
Ég mæli með að allir setji Like á síðuna hennar "Kakan mín" og fylgist með þessum stórgóða bakara.
Ég skal setja inn myndir af mínum kökum eftir að ég er búin að mynda þær á morgun í "natural light".
Þá er það gluggi númer 19 sem segir okkur að það eru 5 dagar til jóla.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.