31.8.2010 | 12:47
Pizza með grísalundum og súrum gúrkum
Það kom mér á óvart hvað pizza með súrum gúrkum er góð! Það var afgangur af marineruðu grísalundinni sem ég notaði í kúbönsku samlokuna. Ég prófaði því að búa til "Kúbanska" pizzu.
Pizza með grísalundum og súrum gúrkum
- Marineruð grísalund, sjá uppskrift hér
- Ostur
- Lúxus skinka
- Súrar gúrkur, sneiddar niður
- Bráðið smjör
- Pizzabotn
Ég gerði góðan þunnann botn og gluðaði á hann smá bræddu smjöri og grísalundinni með slatta að djúsí marineríngunni og í ofn í 5 mín eða svo. Tók hana út og bætti við osti, lúxus skinku og súrum gúrkum og aftur í ofinn þar til pizzan var bökuð.
Þetta var lostæti. Ég bar fram með þessu sætt sinnep. Var að spá í hvort ég hefði átt að setja sinnepið á pizzuna sjálfa áður en hún fór inn í ofn. Í sjálfu sér þarf ekkert sinnep með þessari pizzu, bara smekksatriði.
Ég er sífellt að reka mig á það að bestu pizzabotnarnir sem ég geri sjálf eru þeir sem ég hnoða extra lítið og læt hefast extra vel.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.