Færsluflokkur: Matur og drykkur

Að elda allar uppskriftir upp úr einni matreiðslubók.

Og nú er ég komin með rauðvín í glas og hér hefst ritgerðin (og lesturinn fyrir ykkur, mæli með vínglasi  á meðan þið rúllið yfir þetta....nema þið séuð í vinnunni)

Og þá hefst lesturinn...

Það hefur verið í tísku undanfarið að taka fyrir eina matreiðslubók og elda allar uppskriftirnar sem í bókinni eru. Eins og margir kannast við m.a frá myndinni Julie and Julia.

Með metnaðarfyllri verkefnum af þessum toga er án efa þessi kona sem ætlar að elda allar uppskriftir úr Alinea.
Ég keypti mér þessa bók, Alinea, og hún er listaverk út í gegn með fullt af spennandi uppskriftum og skemmtilegum útfærslum.

Það hefur stundum hvarflað að mér að ráðast í svona verkefni.  Sérstaklega þegar ég hef verið að hjakkast í sama farinu, þ.e elda sömu réttina, nota mikið sama hráefnið og verið andlaus í eldhúsinu.

Og þá hefur valkvíðinn komið til sögunnar, hvaða matreiðslubók maður ætti að taka fyrir.

Nú finnst mér ég einmitt búin að vera að elda svipað og mig langar mikið til að fara að prófa nýjar uppskriftir.

Ég er oft hrædd við að prófa sumar uppskriftir því þær hljóma kannski ekki nógu vel eða virðast flóknar.

Ég var að kíkja á þær matreiðslubækur sem ég á og ein af þeim sem mér finnst spennandi en er ódugleg að elda upp úr er með fyrstu bókum Jamie Oliver, Kokkur án klæða. 

Uppskriftir eins og ravioli með hestabaunamauki, myntu og ricotta eða snöggmaríneraður heilbakaður leirslabbi með balsamikediki og stökku marjora hljóma spennandi en hráefni eins og brenninetlur og hjólkróna hafa gert það að verkum að ég nenni ekki að prófa þær uppskriftir. Ég hef reyndar aldrei heyrt talað um leirslabba, veit ekki ef ég hvort ég fæ hann út í fiskbúð. 

Þannig að það er bara að taka ákvörðun.  Sumar bækur sem ég á eru of einhæfar, t.d einungis fiskiréttir eða pasta eða þá frá ákveðnum löndum t.d indverskt (ég gæti nú samt alveg borðað indverskt á hverjum degi í nokkra mánuði :)

Bókin hans Jamie er með mjög fjölbreyttan mat, fisk, kjöt, súpur, pasta og grænmeti.  Það er oft skemmtileg samsetning á hráefni og oftar en ekki hráefni sem ég nota sjaldan eða aldrei.  Þannig að það væri góð áskorun að elda upp úr þessari bók.  Ég á aldrei eftir að elda allar þessar uppskriftir en ég ætla að minnsta kosti að reyna að elda helminginn og bara gefa mér góðan tíma í þetta, þess vegna nokkur ár :)

Fyrsta uppskriftin sem ég ætla að elda er hörpudiskur. Og svona fór þetta hjá mér...

Í fyrsta lagi á ég greinilega erfitt með að elda eftir uppskrift nákvæmlega, mig langaði strax að gera breytingar. EN ég ákvað að halda mig við uppskriftina, þannig myndi ég kannski læra eitthvað nýtt og leyfa því hráefni sem í uppskriftunum eru að njóta sín ...eins og kokkurinn hannaði þær.

Og viti menn.  Þessi samsetning var bragðlaukaveisla!
hörpudiskur

Hörpudiskur með salvíu, beikoni og puy baunum. (Fyrir 2)
  • 6 beikonsneiðar
  • 6 hörpudiskar
  • 1 msk ólífuolía
  • 8 fersk salvíublöð
  • Salt og pipar
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • 4 msk linsubaunir, gufusoðnar með hvítlauk og rósmarín í kjúklingasoði *
  • 2 lúkur af salati (það sem þið eigið eða ykkur finnst gott)
  • Salat olía (sjá uppskrift hér fyrir neðan

*það mætti líka sjóða puy baunirnar í vatni og sleppa öllu tilstandi!  Þetta er það bragðmikill réttur.  (Ég gerði það því ég fattaði of seint að þetta voru fyrirfram soðnar baunir úr bókinni, sem ég á því eftir að prófa síðar).

Steikið beikon á pönnu, rétt í lokin bætið þið við salvíu og steikið hana í 2 mín.  Setjið á eldhúspappír til að draga í sig fitu.  Salvían verður stökk og flott.
hörpudiskur

Steikið hörpudisk á sömu pönnu og beikonið (funheitri), skvettið smá ólífuolíu á pönnuna áður.  Steikið hörpudiskinn í 1-2 mín á hvorri hlið.  Kreistið sítrónusafa yfir hörpudiskinn í miðjum eldunartíma. (Þá á hann að brúnast betur)

puy
Hitið upp soðnu puy baunirnar á pönnunni.

Veltið salati upp úr dressingu, setjið á disk.  Raðið ofan á það hörpudiskinum, beikoni og salvíu og svo puy baunum. 
Berist fram stax.

Salatdressing
  • 1 msk sítrónusafi
  • 2 msk ólífuolía
  • Salt og pipar
Blandið vel saman.

brauð
Svo gerði ég örsnöggt brauð.  Leyfði geri, sykri og volgu vatni að freyða í 5 mín.  Bætti þá við hveiti og fjölkornablöndu.  Hrærði því saman með gaffli í eina mínútu.  Lét það hefast í tæpan hálftíma.  Hrærði upp í því með smá hveiti ...með gafflinum. (Nennti ekki að skíta út puttana).  Mótaði það eins og baguette, penslaði með eggjahvítu og stráði yfir meiri fræjum.

Bakaði í 220°c ofni í 20 mín.

Hlutföll í brauði sirka... (mældi þetta ekki nákvæmlega)
  • 2 tsk ger
  • 1 tsk sykur
  • 1/2 glas volgt vatn
  • (láta freyða)
  • Bæta við 1 glasi af hveiti og hálfu vatnsglasi til viðbótar
  • Strá út í fræjunum.  Hræra þessu saman með gaffli.  Bæta við hveiti eftir þörfum.

Og hvernig smakkaðist svo herlegheitin?  Fyrsti rétturinn af mörgum... MJÖG VEL!  Þetta var rosalega gott. 
Sumir myndu líta á þetta sem forrétt en ég bar þetta fram sem aðalrétt.  Með brauðinu sem var étið upp til agna þá dugar þetta okkur sem aðalréttur. 
Þannig að þetta er flottur forréttur, þá miðað við t.d 2 hörpudiska á mann með 1-2 sneiðum af beikoni.  Og ekki spurning, súper góður léttur aðalréttur.

beaujolais

Með þessu bar ég fram George Dubæuf, Beaujolais.  Mig langaði meir í rauðvín en hvítvín. Hvítvín fer þó sérlega vel með þessum rétti.

Og lærði ég eitthvað á þessu?
Já.  Hörpudiskur, salvína og beikon fer mjög vel saman.  Puy baunirnar fóru sérlega vel með réttinum.  Sítróna!  Þarf að nota hana meira.

Kærastinn sagði:  Þetta var fáránlega gott!
Ég á eflaust eftir að bjóða gestum upp á svipaðan rétt.

Stromboli, alveg jafn gott og það er gaman að segja stromboli

Stromboli er pizzadeig, flatt út ferkantað og fyllt með kjöti og osti og svo er því rúllað upp og bakað í ofni.  Það er engin sósa inn í rúllunni heldur er hún borin fram með þessu í skál "on the side"  Rúllan er skorin í sneiðar og sneiðinni svo dýft í sósuna.

Það sem mér finnst best við mitt stromboli er 5 kornablandan sem ég strái ofan á rúlluna. Hér kemur hugmynd að Stromboli eins og ég gerði það síðast og það smakkaðist rosalega vel.

stromboli

Stromboli

  • Pizzadeig
  • Grænpipars-salami (fæst í ostabúðinni) eða annað gott pepperoni
  • Steikt nautahakk (steikt með hvítlauk, smátt skornum lauk og pizzakryddi)
  • Skinka
  • Ferskur mossarella
  • Einhver góður brauðostur
  • Brie

Álegginu er raðað á pizzadeigið eins og sýnt er á myndinni hér fyrir neðan.

stromboli

Svo er því rúllað upp, skerið rendur í rúlluna og penslið hana með eggjahvítu.  Ef þið viljið stráið þá smá fimmkornablöndu eða sesamfræjum ofan á rúlluna. 

stromboli

Bakið í ofni við 200°c þar til það er fullbakað, um 20 mínútur.

stromboli

 stromboli

Sósan:

  • Hakkaðir tómatar í dós eða tómatsósa í dós
  • Laukur
  • Hvítlaukur
  • Oregano
  • Salt og pipar
  • Smá sýróp
  • pínku balsamik edik

Laukur og hvítlaukur svitaður í olíu. Restin sett í pottinn. Allt soðið saman.


pho

Þessi stórskemmtilega súpa er ættuð frá Vietnam og kallast Pho.  Ef ykkur vantar hugmynd fyrir næsta matarboð þá mæli ég alveg með þessari súpu.

pho

Pho er núðlusúpa, gerð úr uxahalasoði.  Þunnt skorið kjötið er svo sett út í
súpuna þegar hún er komin á borðið og eldast þar í heitu soðinu.


Ef þið viljið vita meir um Pho þá er hægt að lesa ítarlega um þessa súpu á wikipedia.


Lykilatriðið er að vera með ferskt kóriander, hrísgrjónanúðlur og gott nautakjöt.

pho

pho

Ég byrjaði á soðinu:

  • 1 uxahali
  • 4 anis stjörnur
  • 1 kanelstöng
  • 1 msk fennelfræ
  • 6 negulnaglar
  • Nokkur kóríander fræ (1 -2 tsk)

uxahali


Ég byrjaði á að sjóða uxahala í 4 tíma eða svo ásamt fersku engifer, 4 anis stjörnur
1 kanelstöng, 1 msk fennelfræ, 6 negulnaglar og nokkru kóríanderfræ. 
Fleytti af fitu og sigtaði svo soðið.

Þetta er svo meðlætið sem þið hafið á borðinu og látið matargesti um að setja sjálfir meðlætið í sinn súpdisk.

  • 1 poki af hrísgrjónanúðlum
  • Nautakjöt, skorið þunnt.  Ég notaði klumpsteik. sirloin myndi virka vel.
  • 2 lime, skorið í báta
  • 2 chili piprar
  • 2 lúkur af baunaspírum
  • Vorlaukur, skorinn í strimla
  • Ferskt kóríander
  • Scriracha sósa


Sjóðið núðlur
Skerið nautið mjög þunnt (svipað og carpacio)
Skerið lime í báta
Saxið niður kóríander
Skerið chili mjög smátt
Skerið vorlauk í strimla


Setjið nautakjöt á bakka, ásamt lime bátum, kóríander, baunum og chili.

sriracha sósa

Hafið Scriracha sósu á borðinu.

pho
Setjið núðlur í skál og hellið heitu soði yfir.  Berið strax fram og bjóðið gestum að setja sitt eigið kjöt og meðlæti í súpuna.
Þar sem hráa kjötið eldast í súpunni er mikilvægt að bera hana fram mjög heita.


Bruschetta þar sem nostrað er við tómatana.

Til að fá sem besta bragð út úr tómötunum þá er um að gera að taka af þeim hýðið og kjarnahreinsa þá.

Ég gerði baguette með tómötum um daginn með þessari aðferð og það bragðaðist einstaklega vel.

bruschetta

Bruschetta með kirsuberjatómötum og mossarella

  • Sneitt baguette
  • Kirsuberjatómatar
  • Ferskur mossarella
  • Ólífuolía
  • Smátt sneitt hvítlauksrif
  • Salt og pipar

tómatar

Svona er auðveldast að ná hýðinu af: Skerið kross í tómatana að ofanverðu (þar sem stilkurinn var).  Setjið í sjóðandi vatn í 20 sek eða svo.  Skellið þeim í ískalt vatn til að stöðva suðuna.  Fjarlægið hýðið.

Skerið þá til helminga og kjarnahreinsið en passið að þeir haldi forminu. 

Setjið flís af hvítlauk í hvern helming, dreypið yfir með ólífuolíu og bakið í ofni á 100°c í 2 klst. 

Hækkið þá ofnhitann í 200°c og takið tómatana út. 

Setjið niðurskorið snittubrauð á grind, dreypið yfir það ólífuolíu og inn í ofn í nokkrar mín.

Setjið sneið af ferskum mossarella í hvern tómathelming. 

Setjið 1 -2 tómathelminga á hverja baguett snittu og smátt skorna ferska basil.

Saltið og piprið. 

Hitið í ofni þar til osturinn bráðnar.

Tómatar, mossarella og basil er svo yndislega góð samsetning!


Fiskur, samtíningur úr ísskápnum en herramannsmatur engu að síður

Nú var tekið til í ísskápnum og það nýtt sem til var.

Ýsan tekin úr frysti, skellt á bökunarpappír í ofnskúffuna. 

fiskur 

Hráefni í fiskrétt

  • 4 frosin ýsuflök
  • 4 msk  Roasted red peppers pestó 
  • 1/4 gróft baguette
  • Nokkur lauf af ferskri basil
  • Salt og pipar

Afgangurinn af grófu baguette sem ég keypti í gær var skellt í matvinnsluvél ásamt rest af ferskri basil, salti og pipar. Ég smurði um það bil matskeið af Roasted red peppers pestó á hvert flak og brauðmylsnunni var svo dreift ofan á þessi 4 stk af ýsuflökum.

Það gæti verið gott að rífa smá ferskan parmasen ost og blanda við brauðmylsnuna. 

Inn í ofn á 200°c í ca 20 mín. 

 

 Hráefni í kartöflur
  • Soðnar kartöflur, skornar í fernt ef þær eru mjög stórar
  • Nokkrar matskeiðar af feta osti í kryddolíu 

Soðnar kartöflur fóru einnig inn í ofn, setti þær í eldfast fat með nokkrum msk af fetaosti í kryddolíu, ásamt slatta af olíunni.

 

Hráefni í sósu

  • 1/4 dós Roasted red peppers pestó
  • 1 dl chopped tomatoes í dós
  • Smá rjómi, dl eða svo...

Enn var smá eftir af Roasted red peppers pestó, það fór í pott ásamt afgangi af “chopped tomatoes” úr dós.

Deselíter af rjóma fann ég í ísskápnum og setti með. Hitað upp í potti og þar var komin sósan.

Einfalt og mjög bragðgott.



Heimildamyndir og bíómyndir um mat

Ég elska að borða mat, lesa um mat, tala um mat, hlusta á um mat, horfa á mat, hugsa um mat, rækta mat, elda mat oooooog horfa á þætti og myndir um mat, svo "fátt eitt" sé nefnt.

 

Hér er listi yfir nokkrar heimildamyndir um mat. Þetta eru áhugaverðar myndir, mér finnst ágætt að minna mig á öðru hvoru hvað það er sem ég vil láta ofan í mig og hverju ég vil sleppa. 
 

  • Food Inc, mæli með henni.
  • Fresh, er á svipuðum nótum og Food Inc.
  •  A Delicate Balance
  • Processed People
  • Fast Food nation
  • Food stamped
  • Super size me
  • Dirt! The movie
     

dennys

Ég get sagt ykkur það að Denny´s klikkar ekki.

ENDALAUST AF FRÖNSKUM fyrir 6 dollara...

 

 

 


Kúrbítsblóm í einhverskonar pönnukökudeigi

Ég var í B.C, Kanada, nú um daginn þar sem uppskeran er í fullum blóma.  Það er svo gaman að keyra um sveitina og koma við á sveitamörkuðunum sem eru stútfullir af brakandi fersku grænmeti.

farmers market

farmers market

Mér finnst svo gaman að versla mat, sérstaklega svona fallegan mat...

grænmeti

Það er mikið um kúrbít í B.C.  Kúrbítsblómin eru einnig mjög góð í eldamennskuna.  Það er virkilega gott að velta þeim upp úr pönnukökudeigi og steikja á pönnu.

blóm

Ég keypti mér kúrbítsfræ í vor og setti í nægilega stórann pott.  Ekki lét neinn kúrbítur sjá sig en blómin dafna vel.  Pottinn er ég með út í glugga þar sem hann fær næga sól.  Ég mæli alveg með því að prófa kúrbítsfræin til þess eins að fá blómin.

kúrbítsblóm

kúrbítsblóm

Kúrbítsblóm í einhverskonar pönnukökudeigi

Deigið þarf ekki að vera svo nákvæmt, bara að þykktin sé svipuð og pönnukökudeig.

  • 1 egg
  • 1 tsk salt
  • 1 dl mjólk
  • Hveiti eftir þörfum
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 msk matarolía eða smá smjör

Veltið blómunum upp úr deiginu og steikið á pönnu þar til deigið er fulleldað. (eins og pönnukökur)

 


Quinoa salat með avacado

Quinoa er voða hollt segja þeir, en mér finnst það líka voða gott. Það má nýta það á ótal vegu. Ég fékk mér einfalt quinoa salat í hádeginu. Salatið var fremur einfalt. En oft er einfaldleikinn bestur þannig að hráefnið sem maður er að nota njóti sín, eins og í mínu tilfelli, avacadoinn...með fullt af salti..mmmm...

 

quinoa salat

 

Quinoa salat með avacado

  • 1 bolli quinoa, soðið
  • 1 dós mixed beans
  • 1 avacado
  • 1/2 dl vorlaukur
  • Smá fetaostur

 

 

rauðbeðudressing

 

Rauðbeðudressing

  • 1 rauðbeða, soðin
  • Hálf dós sýrður rjómi
  • 1-2 hvítlauksrif
  • Smá salt
  • Smá kreist úr hálfri lime
  • 2-3 tsk sýróp

 

Allt maukað saman í blender eða með töfrasprota, smakkið til með lime, sýrópi og salti.

 

quinoa í pitabrauði

Svo mætti setja setja salatið með dressingu í heimagert pítubrauð. 

 

pítubrauð

Pítabrauðið hér er pizzadeig sem ég flatti út og steikti á pönnu á hvorri hlið.

 

 


Andvarp

Ég fékk þessi fínu andaregg í Borgarnesi um daginn.  Þau eru mjög bragðgóð og heldur stærri en hænueggin.

egg

Ég fæ mér oftar en ekki byggklatta með eggi í morgunmat, nema að þessu sinni voru það bláberjaskyr-byggklattar með andareggi.

Það er óþarfi að bæta við sykri í þessa uppskrift þar sem skyrið er yfirleitt vel sykrað hjá "sykursamsölunni".

skyr

Ef þið eigið smá skyr eftir í stóru bláberjaskyrdollunni (eða öðru skyri) þá er upplagt að hræra það upp með vatni eða mjólk og bæta svo út í dolluna einu eggi, 1/2 tsk af matarsóda, 1/2 tsk salt og byggmjöl og hveiti eftir þörf.  (Fer eftir því hvort þið viljið gera þynnri pönnukökur eða þykkari klatta)

Þar sem ég hrærði þetta í dollunni og notaði puttana til að mæla salt og sóda þá var eina uppvaskið ein panna, gaffall og spaði.

bygg

bygg

Ég hef alltaf miklað pönnukökugerð fyrir mér.  Núorðið set ég eitthvað af vökva, eitt egg, smá salt og smá matarsóda eða lyftiduft og hræri það til með hveiti. Og vökvinn er ýmist súrmjólk, ab mjólk, mjólk eða skyr.  Hveitið er byggmjöl, byggflögur, heilhveiti, hveitikím, haframjöl eða bara venjulegt hveiti.  Og alltaf verður úr þessu dýrindis pönnukökur, klattar, lummur eða vöfflur.

 

 

 


Samloka samlokanna

Hér er lítil myndasaga af ótrúlega góðri samloku. Þetta er ein af þessum samlokum sem ég hef gert öðru hvoru í háa herrrans tíð en þetta var í fyrsta sinn sem ég gerði nokkurs konar ciabatta brauð sjálf, og það átti vel við innihald lokunnar.

Hér er sagan á bak við þessa samloku og uppskrift af nautahakki og sósunni: Focaccia samloka með nautahakki

Bakið Ciabatta eða annað gott brauð.

ciabatta

Skerið það til helminga eins og hér er sýnt.

ciabatta

Leggið þau með skurðinn upp.

ciabatta

 Setjið á þau steikt nautahakk, sinnepssósu og ost.

ciabatta

Leggið þau saman, með skurðinn að utanverðu.

ciabatta

Ef ykkur finnst jalapeno eða chile gott, þá mæli ég með svoleiðis, ferskum eða niðursoðnum.

ciabatta með nautahakki

 Grillið á panini grilli þar til osturinn bráðnar.  Ef þið eigið ekki panini grill þá má skella þessu í ofninn

ciabatta með nautahakki

ciabatta með nautahakki

Berið fram með rauðvíni, hvítvíni eða ísköldum bjór. 

ciabatta

Ciabatta brauð er ekki ósvipað pizzadegi en maður þarf að búa til starter, og svo hnoða það vel og vandlega en hafa deigið samt fremur blautt.

Ef þið nennið ekki að dudda of við þetta þá mæli ég með því að:

1. Þið gerið nákvæmlega eins og þegar þið eruð að gera pizzu.

2. Látið deig hefast í klst og skellið því svo á smjörpappír á bökunarplötu án þess að eiga of mikið við það, nema til þess að bæta við smá fræjum, t.d þriggjakorna blöndu eða sesame fræjum ef þið viljið. Ég mæli sko með því!

3. Mótið úr deiginu brauð sem er í laginu eins og ciabatta brauð ( þ.e eins og inniskór, en ciabatta þýðir inniskór (slipper) þar sem brauðið þykir í laginu eins og inniskór). 

4. Bakið í ofni í ca 20 mín við 200°c.

Hér er linkur á uppskrift og video um það hvernig gera má Ciabatta.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband