Færsluflokkur: Lífstíll
21.10.2008 | 08:13
Hunangssmjör
Ég stóð lengi og horfði á úrvalið, reyndi að lykta í gegnum þykkar og vel einangraðar plastumbúðirnar. Liturinn á þeim er á engan hátt sambærilegur ss pulsunum heima. En svo fór ég að syngja:
I wish I were an Oscar Mayer Weiner
That is what I truly wish to be
cause if i were a oscar mayer weiner
everyone would be in love with me
þannig að ég endaði á að kaupa Oskar Mayer Weiner. Ég læt ykkur svo vita hvernig fer, þetta verður eflaust hádegismaturinn minn.
En hér er upplagður forréttur þegar boðið er í mexíkóska veislu. Smjörið er ógeðslega gott með heitu ný"bökuðu" Sopapillas. Ég hef aldrei búið til Sopapillas en það er fullt af uppskriftum á netinu
Hunangssmjör
- Íslenskt smjör, við stofuhita
- Hunang
- Salt
Setjið smjörið, salt og hunang í blender og mixið vel saman. Spurning með hlutföll, eina vitið er að setja það magn af smjöri sem þið viljið og bæta svo við hunangi og salti og smakka til.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2008 | 14:32
Bæjarins bestu
Afhverju langar manni alltaf í eina með öllu þegar maður er í útlöndum? Það er svo oft annað bragð af mat erlendis, eins og til dæmis hamborgarar. Af hverju eru spánskir hamborgara gerðir úr kjötfarsi??
Mig langar að kaupa puslupakka hérna, en veit að ég verð bara fyrir vonbrigðum því þær eiga ekki eftir að smakkast eins og SS.
Svo eru það eðlilegir hlutir eins og Heinz bakaðar baunir, finn þær hvergi og bara ekki bakaðar baunir yfir höfuð.
Súper góð snitta
- Nýtt og gott baguette skorið í sneiðar
- Svartar steinalausar ólífur
- Hvítlaukur
- Góð ólífuolía
- Smurostur
- Salt
- Dill
Maukið í blender ólífur, smá olíu, hvítlauk og salt þannig að úr verði pestó. (ólífupestó má imprúvæsera, setja t.d smá parmaost í...)
Smyrjið baguettsneiðarnar með smurosti, ofan á það fer svo ólífu pestóið og stráið pínku dilli ofan á.
Nammi gott, Sxx
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 12:16
Papadams og Vindaloo
Ég ELSKA indverskan mat, og er frekar ófrumleg þegar ég fer út að borða á indverskum, fæ mér eiginlega alltaf Tikka Malsala eða Tandoori. Sérstakega nota ég tækifærið og fæ mér Tandoori ef ég fer á staði sem eru með alvöru tandoori ofni. Naan brauð eru líka í sérstaklegu uppáhaldi, jafnast ekkert á við að fá alvöru naan úr tandoori ofninum. (Naan er fyrir mig eins og pizza, alltaf að leita að hinni fullkomnu pizzu og naan)
Er búin að ætla í indverskan síðan ég kom hingað enda úr nógu að taka, heil gata bara með indverskum stöðum. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með staðinn í gær. Ég sagði þjóninum að ég væri mikið fyrir tikka og tandoori en langaði í eitthvað sterkt. Hann mælti með Vindaloo og verð ég að segja að það var snilld. Og algjör snilld að geta setið úti í góðu veðri klukkan 21.0.
Á meðan beðið var eftir matnum var boðið up á papadams. Það var borið fram með mangó sósu, raita og laukblöndu.
Papadams forréttur
- Mangó
- Salt
- 1 Laukur
- 1/4 rauð paprika
- 1 grænn chili
- 2 bollar Ab mjólk
- 1/2 rauðlaukur
- Tæp hálf agúrka
- 1 tsk Garam masala
- Salt
Öllu blandað saman í skál og sett í kæli í ca 30 mín.
- Papadams
Svo er Papadams eldað eftir leiðbeiningum á pakka. (Yfirleitt stungið í örbylgju í einhverjar sekóntur). Með því er svo borið fram í þrem skálum, laukurinn, mangósósan og raita.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2008 | 14:22
Tortilla og Krabbasalat
Ég setti inn hér áður uppskrift af spænskri eggjaköku og krabbasalati. Það er algjör snilld að skera eggjakökuna þvert og smyrja góðu lagi af krabbasalatinu á milli (svona eins og þegar maður setur krem á milli tveggja kökubotna) Þetta er algjört rokk!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2008 | 08:48
SAGARDI & KRABBASALAT
Fyrir þá sem eiga leið um Spán þá get vel mælt með Tapas bar sem heitir Sagardi. Krabbasalatið þeirra er rosalega gott og sangrían þeirra kælir vel á heitum degi og vermir á köldum.
Krabbasalat
- 2 bollar krabbakjöt eða surimi ef þið komist ekki í krabbakjöt, hakkað
- 1 bolli sellerí skorið fínt
- 1/4 bolli rauð paprika, skorin extra fínt
- 1 msk sítrónusafi
- 3-4 msk majones
- Salt og pipar
- 3 soðin egg, bara hvítan
- Baguette
Öllu blandað saman í skál, nema eggjum og baguette. Góður slatti af krabbasalati sett á hverja sneið af nýju og góðu baguette. Eggjahvítan er rifin í kurl með rifjárni og dreift ofan á krabbasalatið.
Hér er mynd sem er dæmi um framreiðslu.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 10:32
Matur klukkan sjö.
Vil minna á viðtalið sem var tekið við mig og má lesa hér. Mjög skemmtilegt og þar uppljóstra ég þremur atriðiðum sem þið vitið ekki um mig.
En talandi um mat, hér í Madríd fara allir út að éta um 22.00, stemmari sem maður þarf að aðlagast því ég er oftar en ekki tilbúin til að fara að sofa um þetta leyti. Vildi að ég nennti að fara á fætur fyrr þó því ég fæ oftar en ekki minn 10-11 tíma svefn....aaallt of mikið!
Hefðin að borða kl 19.00 heldur sér þó þegar við eldum eitthvað hér heima.
Fékk á Tapas bar Patatas Bravas með skemmtilegu tvisti.
Fancy Patatas Bravas
- Patatas Bravas (skv. uppskrift hér á síðunni)
- Spicy ítölsk eða spænsk pulsa
Skerið pulsuna niður í munnbita, steikið þá á pönnu og dreyfið þeim með kartöflunum og setjið svo Patatas Bravas sósu yfir.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2008 | 14:32
Má setja borðtuskur í uppþvottavél?
Ég veit ekkert um uppþvottavélar en er með eina slíka þar sem ég bý núna. Eftir viku reynslu þá virðist þetta vera ágætis tæki.
Málið er, það kemur alltaf "borðtuskulykt" af borðtuskunum og því fínt að henda þeim í þvott eftir daginn. Maður nennir ekki að setja í gang þvottavél fyrir eina skitna borðtusku.
Spurningin er því, má setja borðtuskur í uppþvottavélar? (Ég er ekki að gera ráð fyrir að hún vindi, ég get alveg gert það sjálf...)
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.10.2008 | 10:25
Beckhams - wish you were here :(
Verst að Beckhams eru flutt frá Madrid, ég og Vicky hefðum nefnilega náð svo vel saman, bara eitthvað að chilla, fara út i lunch og fá okkur í glas á meðan kallarnir eru í vinnunni. Svo hefði hún getað pósað fyrir mig.
En þýðir ekki að væla um það, ég get amk verið með kærastanum þegar hann kemur heim úr vinnunni. Og núna þegar evran er svona hagstæð þá gerðum við okkur glaðan dag og fórum út að borða á Pulcinella, ítalskur staður niðrí bæ. Væntingarnar voru miklar! Er búin að bíða eftir alvöru Napoli style pizzu, eins og þeir gefa sig út fyrir að vera.
Og ég get sagt að ég varð ekki fyrir vonbrigðum og gekk svo langt að taka ekki eina mynd af dýrðinni heldur njóta matarins.
Góður matur, góð þjónusta! 50 evrur fyrir tvo með vínflösku. Ég ætla ekki að reikna út hvað það er mikið en væri gott verð ef evran væri ennþá 90 kall :P
Það var tekið viðtal við mig um daginn og fyrir þá sem hafa áhuga þá má lesa það hér
Salut! Sx
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2008 | 12:26
Alvöru markaðir
Væri ekki gaman ef það væri stórt vöruhús, til dæmis Kolaportið, stútfullt af básum sem selja ferskt grænmeti, FERSKAN FISK, kjöt, osta og bara góðan ferskan mat yfir höfuð, og með nokkrum börum inn á milli þar sem hægt væri að fá sér einn og smá tapas með?
Patatas Bravas, klassískur tapas réttur á börunum hér
PATATAS BRAVAS
- 4 stórar kartöflur
- Ólífuolía
- Hálfur laukur
- 2 rif hvítlaukur
- Hálfur bolli tómatsósa
- Hálfur bolli majónes
- Paprikuduft
- Hálf msk Tabasko sósa
Skerið kartöflur niður í teninga, og sjóðið, hellið vatni frá.
Saxið niður og steikið lauk og hvítlauk, þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið við paprikudufti, og tabaskósósu. Hrærið saman. Setjið allt í skál og bætið við tómatsósu og majónesi, saltið og piprið eftir smekk.
Takið soðnu kartöfluteningana og steikið á pönnu. Einnig er hægt að sleppa að sjóða þá og djúpsteikja, og ef þið viljið hollustu þá má setja á þá salt, pipar og olíu og elda í ofni.
Deyfið svo patatas bravas sósunni yfir kartöflurnar og berið fram með skál af tannstönglum.
Til eru ýmsar útfærslur af sósunni, og ég mæli með að googla og fara síðan eftir þeirri uppskrift sem ykkur lýst best á, eða mixa þeim saman og gera ykkar eigin útfærslu.
Þessi réttur smakkast einstaklega vel með Sangríu eða Tinto de Verano.
Aftur að markaðnum, fór á einn slíkan markað um helgina. Ætlaði nú að versla í kvöldmatinn, en við enduðum á svo fínum tapas bar (svona bás) og fengum fínt að éta og ódýrt að drekka. Svo var bara að loka þegar við loksins ætluðum að standa upp. Enda lokar flest kl 15.00 á laugardögum, og opnar ekki aftur þann daginn.
En við vorum í góðu stuði og fórum bara út að rölta, og alla leið niður í bæ, tveggja tíma ganga. En nóg af tapasbörum á leiðinni sem sá til þess að við dóum ekki úr hungri eða þorsta á leiðinni.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 11:51
Servéttumenning á Spáni
Ekki eru allir staðir komnir í ruslafötumenninguna ennþá...
Myndin er tekin á staðnum Mueseo de Jamon.
Treo
- Hráskinka
- Aspas, ferskur
- Parmagiano Reggiano
- Smjör
- Salt og pipar
Aspasinn blancheraður, og svo steiktur upp úr smjöri. Hráskinkunni vafið um nokkra aspasa og létt steikt á pönnunni. Sett á disk og nóg af rifnum parmasen osti yfir. Salt og pipar eftir smekk. Hráskinkan er yfirleitt frekar sölt.
Í framreiðslu: Einnig er hægt að léttsteikja skinkuna sér, og setja hana á disk og svo aspasinn ofan á...um að gera að imprúvæsera.
Svo má fara út í pastarétt með svipuðu þema.
Tagliatelli Parma
- Tagliatelli
- Hráskinka
- Ferskur aspas
- Tómatar
- Shallott laukur
- Parmagiano Reggiano
- Hvítvín
- Smjör
- Salt og pipar
Steikið lauk og hráskinku og aspas upp úr smjöri, bætið svo við niðurskornum tómötum, eða hökkuðum tómötum úr dós. Saltið og piprið. Látið malla, bætið við hvítvín, malla smá meir.
Blandið við Tagliatelli og nóg af parmagiano reggiano yfir.
Ég er ekki með neinar mælieiningar hér, þetta er ekki svo nojið, dash of this, dash of that... bara smakka til.
Kveðja frá Madrid, Sxx
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)