Föstudagsfjör á sunnudegi

Það var ekki við hæfi að vera með föstudagsfjör á föstudeginum langa svo ég hef það að þessu sinni á sunnudegi.  (En ástæðan er í alvöru sú að ég komst ekki í tölvu á föstudaginn...)

Áður en við skellum okkur í fjörið þá langar mig að óska ykkur gleðilegra páska.  Ég get sagt ykkur það að hér á heimilinu hefur engin orðið svangur og ég þarf að riðja út færslunum um það sem ég hef haft á borðum yfir hátíðina. 

En það sem var öðruvísi með þessa páska en svo oft áður var að ég ákvað að fara ekki í matvöruverslanir fyrir tugi þúsunda eins og ég enda oft á að gera.  En nóg um það í næstu færslu.

Skellum okkur í fjörið:

 

FÖSTUDAGSFJÖR Á SUNNUDEGI

Uppskrift vikunnar:  Ítölsku kjötbollurnar mínar eru klárlega uppskrift vikunnar.  Það verður ekki langt þangað til að ég geri þær aftur og þá verð ég að bjóða einhverjum í mat.

Vefsíðan: Vefsíðan að þessu sinni er http://www.google.com/reader  Ef þið eruð að fylgjast með bloggum og síðum sem uppfærast reglulega þá mæli ég með að þið setjið þær inn í google reader, stórsniðugt apparat.

Vínið: Roodenberg, 2008, frá Suður Afríku er fínt vín. Örugglega gott með vænum bbq burger.

Random uppskrift frá matarblogginu mínu: Þessi uppskrift er alveg handahófskennd, grænmetisréttur með marokkóskum áhrifum og er mjög góð.  Þetta er svona uppskrift sem hægt er að leika sér með miðað við það sem til er og það sem fólki finnst gott.

Tónlist:  Tónlistin sem ég býð upp á á þessum stormasama páskadegi er með hinum geðþekka Einari ormi og vinkonu hans Rósu Ísfeld  í hljómsveitinni Feldberg

Mynd vikunnar: GLEÐILEGA PÁSKA!

Páskar


Geðveikt góðar ítalskar kjötbollur, eldaðar úr páskalambinu

Gleðilegt sumar!  Í tilefni páskanna er vel við hæfi að bjóða upp á uppskrift af kjötbollum gerðum úr páskalambi, frábærlega góðum lambavöðva.

Og í framhaldi af síðustu færslu þá höldum við áfram með skrif um ítalskar kjötbollur.  Eins og ég sagði í síðustu færslu þá var ég búin að skrifa svo langa færslu um kjötbollur að slefið var farið að leka niður munnvikin. 

Það átti svo skemmtilega til að ég hafði fjárfest í fjarska fallegum lambavöðva sem gat ekki verið annað en stórfenglegur í kjötbollur.

Þannig að ég skellti honum í kitchen aid hakkarann minn, með grófari stillinguna og einhakkaði vöðvann.

Því næst blandaði ég saman við það sitt lítið af allskonar og bjó til úr því kjötbollur.  Ég hafði þær ögn stærri en ég er von eða á stærð við golfkúlu.

ítalskar kjötbollur

Ítalskar kjötbollur

  • 1/2 kg lambavöðvi
  • 2 hvítlauksgeirar
  • Salt
  • Pipar
  • 1 shallot laukur
  • Fersk steinselja, ein lúka
  • Rifinn ferskur Parmasenostur, ca ein lúka
  • 1 egg
  • Lúka af byggflögum

Hlutföllin enn og aftur ekki svo nákvæm, bara fylgja tilfinningunni.  Þessu hrærði ég öllu vel saman, mótaði bollur og steikti þær við vægan hita (5) þar til ég var búin að loka þeim á alla kanta.  Þá setti ég tómata í dós út í, balsamik edik, sýróp, rauðvín og hvítlauk, salt og pipar.

Notið ferskan parmigiano reggiano ost, ekki svona gerfiduft í dollu.

Það er mikilvægt að vera með góða tómata í sósuna, og mér finnst tómatarnir frá Eden mjög góðir, þeir smakkast mjög ferskir og ekkert edik bragð af þeim.  Diced tomatos eru meðal smátt skornir tómatar en  Crushed tomatos frá Eden er mjög maukuð sósa og ég notaði hana hér.

kjötbollur

Ég notaði þessa uppskrift í sósuna.

  • Tómatar í dós
  • Hvítlaukur, 1 rif
  • Agave sýróp 1 msk
  • Balsamic edik, ca 1 msk
  • Salt
  • Pipar
  • Skvetta af rauðvíni

Sauð í 20 - 30 mínútur og bar fram með hægelduðum tómötumog hægelduðum hvítlauk, sem við notuðum til að smyrja á baguettesneiðar.

Bollurnar voru svo góðar að ég ákvað að hafa ekkert pasta eða spagettí með þeim.  Þegar þær voru komnar á diskinn raspaði ég heilan helling af ferskum parmigiano reggiano yfir, það er eiginlega nauðsynlegt, hann fer svo vel með bollunum og sósunni.

 

 


Hægeldaðir kirsuberjatómatar og næstum því fullkomnar ítalskar kjötbollur

Gaman að segja frá því og talandi um kjötbollur.  Eftir að ég skrifaði þessa færslu fór ég að elda kvöldmat og endaði á að gera bestu kjötbollur sem ég hef gert!  Hvorki meira né minna og það er fyndið því þessi færsla fjallar um góðar kjötbollur.  Og til að hafa þessa færslu ekki of langa þá kem ég með uppskriftina af kjötbollum kvöldsins á morgun sem er næstum því hinar fullkomnu kjötbollur. 

Og þá hefst lesturinn:

Það gerir gæfumun að hægelda tómata, setja þá í ofninn á lágan hita í nokkra klukkutíma.

Það er rosalega gott með kjötbollum. Ég er alltaf að leita að hinum fullkomnu ítölsku kjötbollum. Ég hef ekki enn fundið þær og enn hefur mér ekki tekist að búa þær til sjálf.

Ég datt niður á rosalega heimilislegan ítalskan stað í New York, þetta var eins og að vera komin í eldhúsið hjá ama de la casa, ítölsku ömmu gömlu. Maður labbaði inn langan gang þar til maður kom inn í eldhús með nokkrum stólum og borðum. Þar fékk ég mjög góðar bollur og þær voru svo mjúkar, mér finnst mínar oft verða eitthvað svo steiktar...

italian

italian

Og þetta var svona kjötbollur í sub, lungamjúku brauði.

italian

Ég bjó til kjötbollur fyrir 5 rétta matarboðið, þær voru góðar, en ekki fullkomnar. Ég held að eldunartími sé stórt atriði í að fá þær mjúkar og góðar. Eins hef ég heyrt að gott sé að blanda saman kjöti, ég prófaði það, var með svínahakk, kálfalundir og nautahakk. Svo er málið að vera með góða fitu prósentu, gott krydd og bindiefni svo þær verði ekki lausar í sér.

Gamla góða uppskriftin með ritz kexi og púrrulaukssúpu er klassík, en ekki alveg þessi hefðbundna ítalska eins og ég er að leita að.

Hér er uppskriftin eins og gerði fyrir boðið góða. Ég held að málið sé að steikja þær ekki um of heldur leyfa þeim að eldast í tómatsósunni.

kjötbollur

Ítalskar kjötbollur með hægelduðum kirsuberjatómötum og baguette með hvítlauksmauki

  • 150 g svínahakk
  • 100 g kálfalundir
  • 150 g nautahakk
  • 1 egg + extra eggjarauða
  • 1 dl rifinn parmasnostur
  • 1/2 dl steinselja
  • Salt
  • Pipar
  • 1 dl brauðrasp (bleytið aðeins í því)
  • Hvítlaukur

Hakkið kjötið og blandið öllu vel saman í skál, mótið úr þessu bollur, aðeins minni en golfkúlur.  Létt steikið þær við vægan hita upp úr olíu.  Klárið að elda þær í tómatsósunni...

...sem gæti hljóðað svona...

  • Tómatar í dós
  • hvítlaukur
  • Agave sýróp
  • Balsamic edik

Allt látið malla.

tómatar

Hægeldaðir tómatar

  • Tómatar (ég notaði kirsuberjatómata)
  • Salt
  • Pipar
  • Hvítlaukur
  • Ólífuolía

Skerið tómatana til helminga, raðið þeim á bökunarplötu á bökunarpappír.  Dreypið yfir ólífuolíu, saltið og piprið.  Skellið nokkrum hvítlaukum með í ofninn, án þess að taka þá úr hýðinu.

Eldið í 120°heitum ofni í 3 klst.

tómatar

Hvítlaukinn tók ég síðan úr hýðinu og maukaði og smurði það á baguette.

Svo þegar þið eruð búin að elda tómatana þá mætti bræða saman í potti ólífuolíu og sykur og pensla tómatana með því.

Sykurgljái

  • 1 msk sykur
  • 4 msk ólífuolía
  • krydd, t.d 4 msk ferskt oregano

Bræðið sykur í ólífuolíu í potti, bætið við kryddi.  Penslið tómata með blöndunni.

 

 


Alinea, svakalega flott matreiðslubók

Ég keypti matreiðslubók út í NY, rosalega flott, algjört listaverk og heitir Alinea, Alinea er veitingastaður í Chicago sem er með 3 michelin stjörnur og kokkurinn þar er þekktur fyrir svokallaða molecular gastronomy

Matreiðslan er ofur metnaðarfull og ég hlakka til að takast á við uppskriftirnar í henni. En fyrst þarf ég að finna út hvað xanthan gum er og hvernig maður notar fljótandi nitrogen.

Inn á milli eru uppskriftir sem ég ætti að ráða við og svo er þetta frábær bók til að fá hugmyndir af skemmtilegum samsetningum og hráefnanotkun og síðast en ekki síst presentation, en útfærslunar á sumum réttum eru vægast sagt magnaðar.

 bók

Ég hef fundið nokkrar síður á netinu þar sem fólk hefur eldað allar uppskriftirnar í bókinni og bloggað um það.  Ég sé mig nú ekki vera að fara að gera neitt slíkt, en ég mun að sjálfsögðu blogga um það sem ég mun prófa.

Til dæmis þessi gaur, hann er með skemmtilega síðu sem þið getið skoðað hér.

Og að lokum er hér myndband á youtube um veitingastaðinn.  Margir myndu eflaust fussa yfir tilgerðinni, en ég hef svo gaman að þessu. 

 


Föstudagsfjör

Þá er komið að föstudagsfjörinu.  

FÖSTUDAGSFJÖR

Uppskrift vikunnar:  Ætli það sé ekki bara mánudagsdrykkurinn okkar, sem verður þá að föstudags eða laugardagsdrykki.. GINGER MOJITO

Vefsíðan:  Hér er leitarvél sem sérhæfir sig í matarbloggum: foodblogsearch.com

Vínið:   Cuvelier Los Andes, fæst reyndar ekki hér heima en mæli með því ef þið eruð á ferðinni, en hér heima mæli ég með Columbia Crest Grand Estates, Merlot frá Bandaríkjunum.

Random uppskrift frá matarblogginu mínu: Þessir er nú ekki valin hjá mér alveg af handahófi en ég er að fara að borða svona í kvöld hjá góðu fólki sem komu mér upp á bragðið. Og nú er það árlegur viðburður hjá okkur að fara í mat til þeirra í sveitakæfu.  Hættulega gott.. 

Tónlist:  Krakkarnir í Vicky koma manni í rokkara gírinn fyrir kvöldið, skellið í ykkur einum þreföldum af Ginger Mojito á meðan þið hlustið á Blizzard með Vicky.

Ljósmynd vikunnar: Það var ekki leiðinlegt að fara til New York, draumastaður þeirra sem hafa gaman að því að borða, það get ég sagt ykkur. Maður dó ekki úr hungri. Við náðum í vorið í enda ferðarinnar, það var dásamlegt.

Vor í NY


Mánudagur? Romm með engifer og myntu

Er mánudagur í þér? Þá mæli ég með þessum, hann hristir vel í manni og er frábær mánudagsdrykkur, sérstaklega í þessu óvorlega veðurfari. Hann er stútfullur af engifer sem er víst svo hollt, ekki er það nú verra.  

Það kannast flestir við Mojito, en hér er hann spæsaður upp með engifer og nóg af því. Það er rosalega gott. Og fyrir þá sem vilja sleppa áfengi þá er það líka hægt, setið þá bara meir af sódavatni...

 engifer drykkur

Mojito með engifer (fyrir 1)

 

  • 1-2 stilkar fersk mynta
  • 2 cm af fínt rifinni ferskri engiferrót
  • 1 tsk sykur 
  • 1 hluti af sódavatni 
  • 1 hluti ferskur lime safi
  • 2 hlutar ljóst romm

 

Merjið myntuna, sykurinn og engifer saman í morteli eða í glasi með skeið ef þið eigið ekki mortel. Blandið saman vökva og bætið myntu-engifers pestóinu við og hrærið vel saman.  (1 hluti getur verið t.d ca 1 skotglas)


Chilpotle in adobo sauce dósin vígð!

Ég næ að skrifa þessa færslu á meðan dóttirin leikur sér með kúrekastígvélin mín og frostpinna...eða ekki, frostpinninn er komin ofan í stígvélin..brb

 

Fyrsti rétturinn sem var eldaður var með chilpotle-inu var mjög beisik. 

chilpotle 

Baunastappa með Chilpotle in adobo sauce

  • Mixed beans frá biona organic (fæst víða)
  • 2 tsk sósan frá Chilpotle in adobo sauce dósinni
  • 1 hvítlauksrif

maís mjöl

 

Tortillur úr maís hveiti

  • Maíshveiti
  • vatn
  • salt

Gerið deig, mótið úr því litlar kúlur, fletjið kúlurnar út með því að setja þær á milli tveggja smjörpappírsblaða og þrýsta ofan á þær með t.d litlu skurðbretti.

Tómatsalsa

  • Tómatar
  • Maís úr dós
  • Ananas úr dós 
  • Salt
  • Pipar

 

Maukið allt saman í matvinnsluvél, frekar gróft samt.  Hlutföllin hér eru ekki svo nákvæm, ég notaði 2 tómata, eina ananas sneið og 3 msk maísbaunir, smá salt og pipar.

chilpotle

Ég hef ekki séð chilpotle in adobo sauce hér heima, en þetta er í svo mörgum  uppskriftum sem ég hef verið að lesa og mig hefur langað að smakka hana, en ég er mikið fyrir chile af öllum stærðum og gerðum.

Ég keypti þrjár dósir (þetta er í niðursuðudósum) og nú er að finna eitthvað af þessum uppskriftum. Ein sem ég man eftir í fljótu bragði er að gera kalda sósu með mæjónesi.  

Það er víst hægt að búa til svona frá skrats, hef ekki prófað það en það má gúggla Chilpotle Adobo sauce Recipes.

Ég fann þessa linka sem ég ætla að kíkja betur á:

http://www.inspiredtaste.net/3506/agave-salmon-burgers-with-chipotle-mayonnaise 

http://www.bigoven.com/recipe/15956/adobo-sauce

http://patismexicantable.com/2011/02/chipotle-chiles-in-adobo-sauce.html

http://www.grouprecipes.com/108319/chipotles-en-adobo-chipotles-chili-in-adobo-sauce.html 

http://www.cheftalk.com/forum/thread/31924/wanted-adobo-sauce-recipe  

 

Og víkjum okkur að listum.  Vinkona mín, Rakel Mcmahon, er með skemmtilegan gjörning á Sequence hátíðinni, hann er að Grandagörðum 16 og í dag er síðasti sýningardagur.  Mæli með því að kíkja þangað í sunnudagsbíltúrnum, þar eru líka fleiri ungir og hæfileikaríkir listamenn að sýna.

mcmahon 


Étið í New York... og sushi með hýðishrísgrjónum, mæli með þvi!

Það hefur verið fátt um færslur síðustu daga þar sem ég fór í reisu til New York.

central park 

central park 

Á to do listanum mínum var meðal annars:

- Borða kúbu samloku

- Kaupa local vín

- Fá mér New York slice

- Kaupa Chilpotle í Adobo sósu sem ég hef ekki fundið hér heima

- Kaupa maís hveiti til að gera mexikóskar tortillas (ekki maís mjöl sko)

- Fá mér sushi

- Fara á indverskan stað 

- Kaupa skemmtileg krydd

- Versla skemmtilegar matreiðslubækur, var með nokkrar vel valdar í huga

- Rölta um og njóta mannlífsins

- Skemmta mér með dóttur minni og manni á barnvænum vettvangi

- Eyða tíma með góðri vinkonu sem var svo vinarleg að taka á móti okkur og fá mér rauðvín með henni. 

ny 

Eitt af því sem ég gerði ekki á þessum lista var að fara á Indverskan, en við fórum á stað frá Sri Lanka í staðin... 

Þetta er svona sirka það sem var á listanum....minna um það að fara að skoða styttur og söfn, það verður bara að vera næst. Það er ómögulegt að sjá allt sem manni langar í einni stuttri ferð, en New Yok hefur upp á svo óendanlega margt að bjóða...ÓENDANLEGA margt.

sushi 

Fyrsta máltíðin í NY var sushi, gert úr hýðishrísgrjónum, ég mæli eindregið með að þið prófið það!

Súper dúper hollt Sushi...

 

 


Nýr liður í blogginu - Föstudagsfjör


Föstudagsfjör 

Uppskrift vikunnar: Hafragrautskex

Vín: Baron de lay

Tónlist: Ain´t no grave með Johnny Cash

Skemmtileg vefsíða (tengd mat og drykk sem ég hef dottið niður á vikunni):http://foodgawker.com/ Síða sem leggur mikið upp úr fallegum myndum af mat....og uppskrift fylgir hverri mynd.

Random uppskrift frá matarblogginu mínu: Steikarsamloka. Já, þessi er ekki af verri endanum, frábær föstudagsmatur með ííísköldum og svalandi ölsopa eða flauelsmjúku Merlot...

Ljósmynd vikunnar:  Eyddi  helgi fyrir stuttu í sumarbústaði í Borgarfirði, fór í göngutúr í góðu en köldu veðri.  Það var mikil ofankoma og óð maður snjóinn sumstaðar upp að hné. 

snjór

 

Góða helgi! 

Soffia.net

 


Gúgglaðu það!

Ég var að taka eftir nýju apparati í Google, uppskriftarleitar-hjálpartæki : RECIPES

Þegar þú slærð inn leitarorðið þitt þá birtist gluggi til hliðar þar sem þú getur einangrað leitina enn frekar eftir hráefnum ofl.

recipes

Þið getið smellt á myndina til að sjá hana stærri.

Þarna er hægt að útiloka hráefni eða segja til hvaða hráefni þið viljið, svo er hægt að velja eldunartíma og kaloríur. 

Spurning hvort þetta sé eitthvað sem maður á eftir að notfæra sér...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband