Rauðvín og Brauð

Opnaði í dag fína rauðvínsflösku. Vínið er frá Spáni, Cepa Gavilán, 2005. Mjög gott!  Og alveg perfect að opna eina og fá sér í glas á meðan maður bakar þessa uppskrift.  

Ég bakaði brauð fyrr á árinu, eftir uppskrift sem ég get ómögulega munað hvaðan ég fékk.  (Ef einhver veit það, endilega látið mig vita)  Í fyrsta skiptið sem ég bakaði það át ég hálft brauðið í hádegismat, sem er mjög saðsamt, og mér leið ekki sérlega vel á eftir.  Þannig að ég mæli ekki með að borða yfir sig af þessu brauði. 

 Kúrbíts-gulrótarbrauð

1 gulrót , lítil (75 g)
1/2 kúrbítur , lítill (75 g)
1-2 hvítlauksgeirar
100 g valhnetukjarnar
200 g hveiti , óbleikt
200 g heilhveiti
2 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 tsk hunang , þunnt (má sleppa)
1 msk olía , t.d. maís- eða sólblómaolía
400 ml ab-mjólk


Leiðbeiningar


Rífið gulrótina og kúrbítinn og saxið hvítlaukinn. Leggið þetta á milli nokkurra eldhúsrúllublaða, þrýstið létt á og setjið síðan til hliðar.

Ristið valhneturnar á þurri pönnu, setjið þær svo í sigti (helst gróft, t.d. pastasigti) og hristið hýðið frá. Kælið hneturnar og grófsaxið þær. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið ofnplötu.

Blandið saman, í stórri skál, þurrefnunum, grænmetisblöndunni og valhnetunum. Bætið hunanginu og olíunni út í og hrærið í með sleifarskafti.

Hellið síðan ab-mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið þangað til allt hefur blandast vel saman. Setjið þá deigið á hveitistráð borð og hnoðið smástund.

Skiptið deiginu í tvo jafnstóra hluta og rúllið þeim í jafnlangar lengjur, u.þ.b. 35 sm hvora. Vefjið lengjurnar varlega saman, klípið endana og stingið þeim undir. Setjið brauðið á ofnplötuna og sáldrið örlitlu hveiti yfir.

Bakið í u.þ.b. 30-35 mínútur eða þangað til brauðið er orðið ljósbrúnt. Ég reyndar baka þetta brauð alltaf í a.m.k klst.

 

 

okanagan1

 

 Á meðan brauðið er í ofninum er gott ráð að klára úr vínsflöskunni sem var opnuð í byrjun baksturs. 

Salut,

Soffia 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband