ALLT UPPTALIÐ...

Þá er ég svona nokkurn vegin búin að telja upp alla þá veitingastaði sem ég hef farið á í Kaupmannahöfn.   Ef ég man eftir einhverju sniðugu sem ég hef gleymt þá bæti ég því við síðar.

Litið til baka síðustu sex mánuði, þá ætla ég ekki að fara að reikna út eyðsluna, vínglösin með hádegismatnum eða kaloríufjöldann sem ég hef innbyrgt, þetta var skemmtilegur tími og það er það sem máli skiptir. 

Nú fer ég að einbeita mér að því að setja inn uppskriftir og ef maður kíkir eitthvað út að borða eða í drykk hér á Íslandi þá kannski skrifa ég eitthvað um það.  Eins ef ég smakka góð vín þá læt ég ykkur vita.  Er einmitt að sötra á Delicato, Merlot, 2005 frá Californiu, sem er alltaf alveg hreint ágætt vín.

Næst mun ég segja ykkur frá því sem ég fékk að borða í gær, en vinur okkar frá Indlandi kom í heimsókn og eldaði fyrir okkur.  GEGGJAÐ gott!

 kv,  Soffía

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Gaman að sjá svona mikið af Kaupmannahafnarstemmningu á blogginu þínu. Vona að þið hafið það rosalega gott. Mér fannst ég ekki hafa neitt tíma til að vera í Köben þegar ég var þar sem mest, einmitt 2001, en samt, ótrúlegt hvað samt leynist í minningunni. Þar sem ég er svo fræg að hafa róið á árabát ásamt vinkonu minni og messaguttunum á Gullfossi um umhverfi Kristjaníu 2-3 árum ÁÐUR en flutt var inn i hverfið (þá voru hipparnir á Nikolai's plads) þá tek ég sannarlega undir með þér varðandi fegurð svæðisins. Hef því miður aðeins komið einu sinni inn í byggðina í Kristjaníu, þó skömm sé frá að segja, verandi af þessari kynslóð, en London var minn staður, ekki Köben, á þessum tíma.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2008 kl. 18:18

2 identicon

Velkomin heim!
Snilldar síða hjá þér!

Hilsen,
Frikki

Frikki Guf (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 14:55

3 Smámynd: Soffía Gísladóttir

Takk Anna og Frikki

Soffía Gísladóttir, 16.6.2008 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband