Sunnudagsmorgun - sauvignon og parmigiano reggiano

Hvað gerir maður á sunnudagsmorgni þegar aðrir fjölskyldumeðlimir sofa og maður veit að maður hefur tvær klukkustundir út af fyrir sig, fer maður að vaska upp, setja í þvottavél, skúra baðið...eða sest maður í hvíta rauðvínsstólinn sinn með ískalt Vicar´s choise Sauvignon Blanc og parmigiano reggiano og skemmtileg matarblöð og bækur...check!

Larousse

Ég fékk lánaða svo skemmtilega bók hjá vinkonu sem heitir Gastronomique.  Það er mjög gaman að glugga í þá bók (sérstaklega í rólegheitum með Sauvignon Blanc og parmagiano reggiano)

Ef ég hefði átt Manchego ost þá hefði ég fengið mér hann líka með smá sýrópi og valhnetum.  Ef þið viljið fræðast meir um Manchego þá er þessi síða eingöngu um þann ost :) 

manchego-cheese.com

sauvignon blanc

- - -

Vicar´s choice, Marlborough, Nýja Sjáland, 2009, Sauvignon Blanc.

Virkilega ferskt og gott vín, sítus, smjör, ljúft, svolítið sætt.  Ætla að kaupa það næst þegar ég verð með krækling.

- - -

 

EN svo tekur raunveruleikinn við og maður fer í hádegis matargerð og þrif.  En þá er maður líka endurnærður og búin að skipuleggja næsta matarboð sem á að verða með óhefðbundnu sniði eitthvert laugardagshádegið  á næstunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ummmm nýsjálensk vín eru snilld, mæli með Cloudy Bay Sauvignon Blanc, aðeins í dýrari kantinum, en veeeeel þess virði þegar þig langar í eitthvað gott :-)

Sakni, sakn xxx

Stella Samúels (IP-tala skráð) 1.11.2010 kl. 21:57

2 Smámynd: Soffía Gísladóttir

mmmm já, nú langar mig í Cloudy Bay. Var alveg búin að gleyma hvað það var gott vín.  Ætli það detti ekki ofan í körfuna hjá mér næst.

Sakni sakn sömuleiðis. Sxxxxx

Soffía Gísladóttir, 2.11.2010 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband