Ofnbakaðar kjúklingabringur með grænpipar-sveppasósu og krydduðum kartöflubátum

Mér áskotnaðist gömul Gestgjafablöð.  Það var gaman að rifja upp tíðarandann.  Blöðin eru frá ca árunum 1980-1990.  Það sem ég tók fyrst eftir, fyrir utan hina ódauðlegu ´80 tísku voru ljósmyndnar.  Þær voru greinilega lítið fótósjoppaðar, fremur daufar og DOF ekki komið í tísku eins og er allsráðandi í matarblöðum í dag. (svona þar sem partur af myndinni er skýr og t.d bakgrunnur úr fókus)

Hvað uppskriftir varðar þá hefur svo sem ýmislegt breyst en það kom mér reyndar á óvart hvað matarúrvalið var þó fjölbreytt.  M.a auglýsing með Rajah, indversku kryddin sem eru svo góð.

Þríhyrnt skorið ristað fransbrauð var mjög í tísku...klassík.

 

Í réttinum hér að neðan er hvítlaukurinn og vorlaukurinn sem bakast með kjúklingum afbragð.

Ofnbakaðar kjúklingabringur með grænpipar-sveppasósu og krydduðum kartöflubátum

Kjúklingur:

  • Kjúklingabringur
  • Vorlaukur, slatta!
  • Hvítlaukur, slatta!
  • Dijon sinnep
  • Salt
  • Pipar

Bringur klofnar til helminga (þannig að þær verða helmingi þynnri). Kryddaður með salti og pipar og smá smá pínu oggupons af dijon sinnepi.   Settar í eldfast fat ásamt ólífuolíu, hvítlauksgeirum (afhýddum) og semi smátt skornum vorlauk.  Eldað á 200°c þar til bringurnar eru eldaðar í gegn. 

 vorlaukur og hvítlaukur

Sósa:

  • Sveppir (ca 1 box)
  • Shallot laukur , 2-3 stk
  • Rjómaostur með svörtum pipar, 1 lítil dolla
  • Græn piparkorn, 2-3 msk
  • Smjör, 2-3 msk
  • Vorlaukur, lúka eða svo
  • Hvítlaukur, eftir smekk
  • Mjólk, 1 dl ca
  • Hálfur hænsna teningur
  • Sósujafnari
Steikið sveppi með  smjöri, shallott, hvítlauk og vorlauk.  Bætið við grænpiparkornum, rjómaosti, mjólk, teningi og svo sósujafnari í lokin.  Malli mall.

Kartöflur:

  • Kartöflur
  • Salt 
  • Pipar
  • Krydd (ég notaði gyros krydd frá Tiger)
  • ólífuolía

Skerið kartöflur í báta, kryddið og dreypið olíu yfir.  Bakið í ofni við 200°c þar til crispy gullinbrúnar og eldaðar í gegn. Rótið í þeim reglulega.

kjúklingur

www.soffia.net

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband