7.8.2013 | 12:13
Hin fullkomna pizza, þriðji hluti - áleggið
Regla númer eitt, ekki troða of miklu á pizzuna, þá verður botnin slepjuelgur. Ég veit það er stundum erfitt að hemja sig en less is more í þessu tilviki. Ég á það sérstaklega til að setja of mikið þegar kemur að burrito og öðru sem þarf að vefja, þá er það ómögulegt því ég er búin að troða helling af öllu.
Ég er þó alveg búin að læra að hemja mig þegar kemur að pizzugerð.
Það sem þarf að huga að þegar gera skal góða pizzu hvað varðar álegg er eftirfarandi:
- Less is more
- Nota gæða álegg
- Nota ferskan mozzarella og ferska basiliku
- Ekki vera hræddur við að prófa eitthvað nýtt
Ég mæli sérstaklega með að fara í kjötborð og fá gott salami, uppáhaldið mitt er grænpipars salami í ostabúðinni, en það hefur því miður ekki fengist undanfarið.
Mér finnst klettasalat fara með með flestum pizzum, ekki bara þessari klassísku hráskinku.
Ég gerði pizzuáleggi ítarleg skil á síðunni minn The House by the Sea.
Þar eru nokkrar góðar hugmyndir hvað setja má á pizzur.
Einnig hef ég fjallað um:
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
En ertu búin að fara í Pylsumeistarann á Hrísateignum?
Salami-ið þar er to-die-for, sem og skinkan og beikonið og pylsurnar og sinnepin...
Sem sagt, ég er mjög hrifin og reglulegur gestur þar!
Nanna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 10:35
Já, við höfum verið að versla þar, fann meir að segja ágætis grænpipars pepperóní þar.
Við erum einmitt líka reglulegir gestir, þegar maður er búin í frú laugu þá röltum við yfir og sækjum pylsur á pizzuna... :)
Hef ekki smakkað sinnepin...
Soffía Gísladóttir, 8.8.2013 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.