23.5.2012 | 09:54
Fersk grænmetissúpa
Ég var að hlusta á Matur fyrir öllu á Rás 1. Stórfínir þættir ef þið hafið ekki enn hlustað og það er hægt að nálgast þá í Sarpinum á ruv.is.
Ég heyrði hjá viðmælanda tala um það þegar menn komu heim úr vinnunni í hádegismat, lögðu sig svo með hádegisfréttunum og fóru svo aftur í vinnuna. Það eru eflaust fáir sem tileinka sér þennan sið í dag.
En það eru víst aðrar forendur í dag og þar á meðal sú að það engin heima til að elda ofan í viðkomandi og svo er það fjarlægð til vinnu, það tæki marga eflaust þennan klukkutíma sem færi í matarhléð að koma sér til og frá vinnu. En þetta er notaleg hugmynd um hvernig var.
Ég náði mér í eins mikið íslenskt grænmeti og ég gat hjá Frú Laugu í þessa súpu og hún endaði á að vera ansi græn grænmetissúpa þrátt fyrir að vera rauð á litin. Íslenska spínatið var mjög gott.
Ég versla allt mitt grænmeti hjá Frú Laugu, og alla ávexti sem þau bjóða upp á. Svo eru þau með frábæra ólífuolíu sem ég fylli reglulega á hjá mér.
Þessi súpa er ekki með neina stæla, þannig að svona eldamennska hentar svo vel þegar maður er í því að elda allt sjálfur. Þetta er því frábær uppskrift fyrir þá sem vilja elda allt sjálfir frá grunni með lítilli fyrirhöfn.
Ég nota aldrei súputeninga. Ég sleppti því að krydda súpuna nema með salti og pipar því ég setti rósmarín í croutonið og svo er nóg bragð af hvítlauknum og ostinum, og ég tala nú ekki um öllu þessu ferska og fína hráefni.
Grænmetissúpa
- 1 dós Chrused tomatoes frá Eden
- 1 græn paprika (íslensk)
- 1/2 kúrbítur (íslenskur)
- Spínat, 2 góðar lúkur (íslenskt)
- 1/2 laukur
- 1-2 hvítlauksrif
- Óífuolía
- Salt og pipar
- 3 dl vatn
- Góð skvetta af rjóma
- Croutons
- Parmagiano Reggiano
- Nokkura daga gamalt brauð (heimabakað eða gott baguette)
- Þó nokkrar msk góð ólífuolía, bætið við eftir því sem þarf miðað við hvað brauðið dregur í sig
- Rósmarín
- Maldon salt