14.5.2012 | 10:16
Vorlaukurinn endalausi
Nú þurfiði bara að kaupa vorlauk einu sinni og aldrei aftur...stórsparnaður í því :)
Þegar þið hafið notað vorlaukin sem þið keyptuð skiljið þá eftir hvíta partinn á endanum með rótunum og skellið þeim í vatn. Svo klippið þið bara ofan af honum eftir þörfum.
Á nokkrum dögum verður laukurinn búinn að vaxa um góða 5 cm. Hann vex mjög hratt. Ég skipti út vatninu á lauknum reglulega, nánast daglega. Það er lítil fyrirhöfn þar sem ég er í eldhúsinu oftar en ekki.
Sama er svo hægt að gera við hvítlauk og svo má stinga honum í mold. Ég byrjaði á að setja eitt rif í staupglas og fljótlega var farið að vaxa hvítlauksgras sem gott er að klippa niður og krydda með mat.