1.12.2012 | 20:40
Jóladagatal ...23
Þá er komið að því að telja niður til jóla. Ég mun setja inn uppskriftir og föndur og annað sniðugt tengt jólunum næstu 24 daga og á hverjum degi munum við opna einn glugga í dagatalinu.
Ég ætla að byrja á þessari hugmynd sem ég sá á netinu, ótrúlega einfalt, ódýrt og flott.
Nánar um þessa góðu hugmynd hér sayyestohoboken.com.
Þá getum við opnað fyrsta gluggann. Fundu ekki allir glugga númer eitt? Veii.
Matur og drykkur | Breytt 3.12.2012 kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2012 | 16:57
Ekki er allt vænt sem vel er grænt - Svínafóður!
Ég er frekar fúl út í einstaka kartöflubændur, ég hef keypt oftar en ekki poka þar sem meirihlutinn eru grænar kartöflur. Þsð er sagt að maður eigi ekki að borða grænar kartöflur, þær hafa fengið á sig sól og mynda óæskileg efni (Sólanín) ásamt því að vera beiskar og þar af leiðandi bara óætar.
Og þótt svo þetta drepi mann ekki endilega þá er þetta ekki eitthvað sem maður á að láta bjóða sér, sérstaklega þar sem kartöfluræktun er eitt af því fá hér á landi sem þrífst vel.
Svo er maður svo mikill plebbi að maður fer aldrei í búðina til að skila svona óætum vörum, heldur sker maður hýðið af kartöflunni, svo vel að eftir stendur afhýðuð kartafla á stærð við baun.
Svo eru þessar kartöflur í gulum pokum svo það er ómögulegt að segja til um hvernig ástand þeirra er.
Þá er ég búin að létta á mér. Á hressari nótum... þá geri ég stundum mæjónes. Stundum tekst það ekki sem skildi og ég sit uppi með hálfan líter af olíu og eggjarauðu.
Það er víst lykilatriði að vera með olíu og eggjarauðu við stofuhita.
Ef þið eruð með egg beint úr ísskáp þá má setja það í volgt vatn í smá stund til að flýta fyrir að það nái stofuhita.
Mayo
- 1 eggjarauða
- 3/4 bolli ólífuolía (eða um það bil)
- Salt, bara smá
- 1-2 msk sítrónusafi
Nú þarf sterka hönd og eitthvað til að hræra mig, eða það þarf helst 2 hendur þannig að það er ágætt að fá einhvern í lið með sér til að skiptast á að hræra.
Blandið saman eggjarauðu, salti og sítrónusafa. Hellið olíunni mjög hægt til að byrja með, bara í dropatali. Þegar blandan fer að ná þeirri þykkt sem líkist mæjónesi þá má hella henni hraðar.
Eins og svo oft þá má finna heilan helling um mæjónes gerð á netinu og með því að fara á Youtube þá er hægt að sjá myndbönd þar sem fólk gerir mæjó á engri stundu með matvinnsluvél eins og til dæmis hann Gordon Ramsey eins og sjá má hér.
Það má nota ýmsa olíu, grænmetis, ólífuolíu eða jarðhnetuolíu. Extra Virgin olía er bragðmeiri en mér finnst það reyndar gott.
Svo er hægt að krydda mæjónesið að vild með því að blanda saman við rauðuna t.d hvítlauk eða Dijon sinnepi.
14.11.2012 | 18:06
Hinn dæmigerði bloggari - þræll samfélagsmiðla?
12.11.2012 | 16:14
Líkjör með kaffiklökum og ekki neitt fyrir 12.000 kall
Ég er alveg komin með upp í kok á að fara í matvörubúðir því ég man svo vel þegar mér blöskraði það að þurfa að borga 3500 kall fyrir ekki neitt, og enn betur man ég eftir því þegar ég borgaði 7000 kall fyrir ekki neitt. Það er eiginlega bara í móðu þegar ég borgaði 10.000 kall fyrir ekki neitt því það tímabil stóð svo stutt yfir því það fór strax í 12.000 kall fyrir ekki neitt.
Nú eru málin þannig að við erum að fara hægt og rólega í 17.000 kall fyrir ekki neitt, því stundum borga ég 12.000 og ef ég bæti við flösku af hlynsýrópi, pakka af 70 % súkkulaði, einum kassa af grænu tei og 3 avocadóa, fancy fancy... þá kostar það 17.000.
Svo kom ég heim áðan og ætlaði að fara yfir þennan 12.000 kr strimil því í þetta sinn keypti ég EKKERT, þá var ég með rangan strimil. Hef gripið strimil einhvers annars. Hann hljóðaði upp á 7000 krónur. Það var nú ekkert gæfulegri strimill. Fáeinir hlutri en það gaman að rúlla yfir hann og sjá hversu ólíkt maður verslar miðað við marga aðra. Þarna mátti sjá frosnar pizzur, daloon vorrúllur og beikon lifrakæfu :)
En það sem ég fæ fyrir minn 12.00 kall í dag eru drykkjarvörur eins og trópí og mjólk, bleyjupakki, ab mjólk, egg og smjör. Það er ekkert mikið meira. Ég keypti engan mat, eins og fisk eða kjöt, kartöflur eða grænmeti. Aldrei kaupi ég unnar vörur og tilbuin mat. Ekkert bruðl, bara rán um hábjartan dag.
Snökt snökt...
En á léttari nótum þá er hér uppskrift af ferlega góðum drykk sem sómir sér vel eftir góða máltíð.
Líkjör með kaffiklökum
- Líkjör, t.d Amarula eða Bailey's
- Gott kaffi
Hellið upp á eitthvað gott kaffi. Leyfið því kólna og setjið það svo í klakabox og inn í frysti. Þegar klakarnir eru tilbúnir setjið þá út í glas af líkjör. Líkjörinn helst kaldur og ekkert vatnssull þegar þeir bráðna.
3.11.2012 | 17:34
Sítrónu kjúklingur með tagliatelle
Ég fékk þessa frábæru uppskrift frá henni Nönnu, gúmelaðe matgæðingi, þegar ég var andlaus hér um daginn.
Ég lét svo vaða og viti menn. Þetta var frábær uppskrift. Þetta er svona uppskrift að næst þegar ég verð með "casual" matarboð þá verður þessi réttur í boði. Nú er bara að vona að einhver vilji koma í mat fljótlega.
"Lemon chicken a delicious recipe.
2-4 chicken breasts (depending on how many people you have for dinner)
Cut each into two pieces, on the thicker side, i.e. thinning each.
That leaves you with 4-8 pieces which you coat with flour or spelt, liberally seasoned with black pepper.
Fry the chicken breasts in a mixture of olive oil and vegetable oil and put in a baking dish to keep in oven for about 20 minutes at 180 degrees. Due to the thinness of the slices they dont need long.
DO NOT DISCARD THE OIL AND FLOUR! in your pan.
Press 1-2 lemons and add the lemon juice to the pan, along with some chicken stock, around a cup or so. Add more pepper to taste, and finally 250 ml. cream, full fat or other according to taste.
Pour the thickened sauce over chicken and boil some tagliatelle.
Serve piping hot with Parmesan and a good, green salad."
25.10.2012 | 11:27
Brownie í bolla- tilbúin á 4 mínútum
Ég varð nú bara að prófa þessa, ekki dýrt hráefni og tók aðeins um 4 mínútur að gera.
Hráefninu í þessa súkkulaðiköku er skellt í bolla og öllu hrært saman. Svo setur maður bollann inn í örbylgjuofn í 1 mínútu og 40 sek.
Þá er kakan tilbúin. En hvort þetta sé besta súkkulaðikaka sem ég hef smakkað má deila um, en hún er alveg ágæt ef maður setur góðan slurk af ís ofan á hana.
Brownie í bolla
- 1/4 bolli sykur
- 1/4 bolli hveiti
- 2 msk kakó
- 1/2 tsk salt
- 3 msk ólífuolía
- 3 msk vatn
Setjið þurrefnin í bollann. Bætið við olíu og vatni. Hrærið vel saman. Setjið bollann í örbylgjuofn og bakið í 1 mín og 40 sek á high. (Minn ofn er 800w).
Takið bollann út úr ofninum, passið ykkur, hann er heitur... :)
Setjið ís ofan í bollann og borðið.
Matur og drykkur | Breytt 29.10.2012 kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2012 | 12:35
Farro og cannellini með risarækjum
Ég fékk þó nokkrar frábærar uppskriftir eftir að ég var andlaus þarna um daginn.
Ég fékk eina uppskrift af Quinoa salati, sú sem sendi mér hana hafði fengið hana hjá öðrum bloggara, gert hana að sinni og nú tók ég hennar uppskrift og gerði að minni, því ég átti ekki Quino, en ég átti Farro, svo átti ég ekki svartar baunir heldur Cannellini baunir. Það væri einnig hægt að nota bankabygg í staðin fyrir Farro, nú eða Quinoa.
Þið getið kíkt á uppskriftirnar og séð hvernig þær þróast og jafnvel gert ykkar eigin útgáfu af minni uppskrift. Ég líki þessu við hvísluleik, einn segir eitthvað orð og þegar sá síðasti í röðinni hvíslar orðið þá er það orðið að einhverju allt öðru...
Hér er upprunalega uppskriftin:
Mango and Avocado Quinoa Salad with Blackened Shrimp
Sú sem gaf mér uppskrift af sínum rétti, Trials in food:
Recipe (adapted from Daily Crave)
Hér er mín uppskrift:
Farro og cannellini með risarækjum, frá Trials in food
- 1 bolli Farro (soðið í 40 mín eða svo)
- 2 rauðar paprikur
- 3 gulrætur
- 1 bolli Cannellini baunir (úr dós eða soðnar)
- 3-4 vorlaukar
- 1/2 agúrka
- 2 tómatar
- 1/2 bolli maískorn, lífrænt ræktuð helst
- 2-3 msk ólífuolía
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Risarækjur (ca 12)
- Kryddblanda á rækjur, égnotaði papriku, oregano, hot pizza spice mix frá Pottagöldrum, salt og pipar.
Sjóðið baunir (ef þær eru ekki úr dós) og Farro. Skerið grænmetið smátt. Steikið rækjurnar, (blackened). Setjið allt í skál, blandið vel saman og berið fram eitt og sér eða sem meðlæti með t.d fiski.
Meira um Blackening hér.
- Salat í þróun -
The House by the sea foodwaves
(Þú)
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2012 | 14:08
Ertu matarbloggari?
Ég er svo andlaus. Mig langar í eitthvað gott, eitthvað sem ég hef ekki gert 1000 x áður en veit ekki hvað. Kannastu við þetta?
Ef þú átt skemmtilega eða uppáhalds uppskrift þá máttu pósta link á hana í commentakerfið á blogginu mínu hérna
En hafðið annars tekið eftir því hvað það er komið mikið af fínum íslenskum matarbloggum. Mér finnst nokkur mjög skemmtileg og af þeim sem ég hef uppgötvað nýlega og man eftir í fljótu bragði og get mælt með má nefna:
Svo er tonn af erlendum matarbloggurum, það er ótrúlegt hvað margir hafa gaman að því að tjá sig um mat
....ég skil þá veeeel og svo er þetta frábær aðferð til að halda utan um allar uppskriftirnar sínar.
8.10.2012 | 17:48
Pop list - pop maís - micro greens
Það er ýmislegt annað hægt að gera við maís baunir annað en að poppa þær. Ég gleymi því alltaf hversu lifandi þær eru þarna hreyfingalausar í pokanum.
3.10.2012 | 08:50
Sýrður rjómi - heimagerður og betri en nokkur annar...og einfalt
Eitt hráefni eins og svo oft áður en þessi sýrði rjómi eða öllu heldur Creme Fraiche er frábær. Þú einfaldlega lætur súrmjólk leka í gegnum kaffisíu í örfáa klukkutíma, ætli það taki ekki um 1-2 klst að fá um 1 dl.
Þegar súrmjólkin hefur runnið í gegnum síuna ofan í bolla þá stendur þú uppi með mysuna í bollanum og þennan fína Creme Fraiche í kaffisíunni, tilbúin til notkunar.
Það er nefnilega munur á sýrðum rjóma og creme fraiche, og ég veit ekki til þess að það sé hægt að kaupa creme fraiche í búðum hér á Íslandi. Þessi uppskrift kemst nær því að vera creme fraiche, en það má víst gera hann með því að hræra saman rjóma og súrmjólk, en alla vega þá er þetta frábær aðferð að einfaldlega sía súrmjólk.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)