11.3.2009 | 10:15
Humar og koníak er alveg TERA gott saman
Um kl 23.00 var komið að þriðja réttinum. Það var humar með rjómasósu. Humar og koníak er match made in heaven, þannig að setjið koniaksslurk út í sósuna ef þið eigið.
Er að hlusta á soundtrack frá Twin Peaks, held það færi mjög vel með þessum rétti ásamt Vicar´s choice chardonnay.
HumarHallar
- Humarhalar
- Paprika, mjög fínt skorin
- pressaður hvítlaukur
- Rjómaostur
- Rjómi
- Hvítvín
- Koníak
- Smjör
- Salt
- Pipar
- Heitt Pizzakrydd
Takið humarinn hálfan upp úr skelinni með að skera ofan á skelina og lyfta humrinum ögn upp. Steikið bara örstutt á pönnu upp úr smjöri og hvítlauk. Leggið til hliðar. Þá er komið smá humarfílingur á pönnuna.
Mallið á pönnunni án þess að þrífa hana hvítlauk og papriku, bætið smá smjöri við, rjómaosti og svo rjóma og hvítvíni. Látið malla, setjið svo smá koníak. Ég kryddaði með salti og pipar og smá af heitu pizzakryddi frá Pottagöldrum (TERA krydd).
Setjið humarinn aftur á pönnuna í 1 mín eða svo til að fá smá hita í hann og blanda honum við sósuna, bara passa sig að ofsteikja hann ekki.
Geymið svo skeljarnar og gerið úr þeim humarsúpu.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
10.3.2009 | 16:48
Note to self...
Fartölvur drekka ekki rauðvín.
Hálft glas sullaðist yfir lyklaborðið. Það kom að því. Tölvan fór að haga sér eins og hún væri full. Það kom ekkert nema rugl þegar maður type-aði með lyklaborðinu Það er ekki alveg runnið af henni en ég er komin með extended lyklaborð og það svínvirkar.
Þetta minnir mann á það að taka backup reglulega! Á morgun segir sá lati en þið sjáið ekki eftir því að eiga backup ef illa fer, trust me!
Þá er komið að rétti númer tvö frá afmælisdinnernum
SKARFUR
- Heitreiktur skarfur (fæst í Ostabúðinni)
- Hindberja vinegrette
- Klettasalat
Dreifið klettasalatinu á disk. Skerið skarfinn niður í þunnar sneiðar og dreypið vinegrettinu yfir.
Borið fram með Red Rooster, Meritage, 2005 frá Okanagan í Kanada og White winter hymnal með Fleet Foxes.
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2009 | 21:35
SBOÐ 2009
Afmælisdinnerinn var snilld, vínin frábær og félagsskapurinn fallegur. Eyddi helginni með vinum í sumarbústað í Borgarfirði. Sátum frá 20.00 til að verða 04.00 að borða, enda 8 rétta matseðill. Þannig sem matarboð eiga að vera.
Spurði mömmu þegar ég var lítil hvað spoð væri, hún var ekki viss. Útskýrði þá betur, svona afmælisboð. Því jú, ég vissi hvað afmæli var en ekki sboð.
Fyrsti rétturinn var rjúpusúpa. Átti bein og ofl síðan um jólin í frysti.
Borið fram með Muga, Rioja frá 2004. Snilldarvín!
Let the game begin
- Rjúpusoð
- Smjör
- Sveppir
- Hvítlaukur
- Rjómi
- Hvítvín
Svitið pressaðan hvítlauk og sveppi, skornir fremur smátt í smjöri. Bætið við soði, svo hvítvíni og rjóma. Þegar þetta hefur mallað svoldið þá hrærði ég saman við súpuna smá þeyttum rjóma. Salt og pipar eftir smekk. Og þegar ég bar hana fram þá setti ég ofan á hana matskeið af þeyttum rjóma og fínt skorinn graslauk.
Soð: Steikið rjúpuafgangana í smjöri og olíu ásamt hvítlauk, púrru, rauðlauk, papriku og jalapeno eða hvaða grænmeti sem ykkur sýnist eða eigið til. Saltið og piprið. Bætið við vatni, ca 2 lítra, eftir því hvað þið eruð að sækjast eftir miklu magni. Látið malla í nokkra klst, munið bara að fylgjast vel með pottinum
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
Matur og drykkur | Breytt 17.3.2009 kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2009 | 12:25
Afmælismatseðillinn 2009
Það er komin mynd á afmælismatseðilinn minn. Hann var hannaður í kringum eldunaraðstöðuna sem verður á staðnum. Því mun racklette koma sterkt inn í einum réttinum.
Leiðindaskarfurinn er snilld.
a la carte
6. mars 2009
Let the game begin
Þeir koma góðir þar sem góðir eru fyrir
Útúr reyktur leiðindaskarfur
Gefðu mönnum mat, þá hlýða þeir þér
HumarHallar í hvítlauksljóma
Erfitt er að sjá í gegnum konu og melónu
Bólugrafinn foli, borið fram með hindberjavinegrette
Soltin björn dansar ekki
Ceviche de Baccalà
Det der kommer let, går let
Lamb riding the mechanic bull in the racklet ring
Þeim verður ekki bjargað sem eta þangað til þeir springa
70 % Kúrbítur
Manchego með sirop Canadien l'original de Elgin
Tvö glös eru of mikið, þrjú of lítið
Ég kem svo með nánari uppskriftir af þessum réttum næst, ekki 100% fyrirfram ákveðið hvernig þetta allt verður eldað nákvæmlega.
Eigið gleðilegan dag og góða helgi!
Kv, Soffía (35)
Soffía Gísladóttir © www.soffia.net
4.3.2009 | 14:35
Steikt
Fátt skemmtilegra en að eyða helginni í að elda góðan mat, hlusta á góða tónlist og dreypa á góðu víni. Og þá er ég að meina að degi til. Byrja með léttum rétti um morguninn og færa sig svo upp á skaftið því meir sem líður á daginn. Hér eru tveir réttir svo voru framreiddir síðustu helgi.
Pepp (morgunmaturinn)
- Egg
- Pepperoni
- Smjör
- Hvítlauks - Basil olía
- Parmagiano Reggiano
- Salt og pipar
Spælt egg, over easy. Steikt með smjöri og hvítlauksolíu sem ég gerði sjálf fyrir nokkrum dögum sem samanstendur af matarolíu, ferskri basil, salt og nóg af hvítlauk sem fór í gegnum hvítlaukspressu.
Einnig var steikt á sömu pönnu tvö stykki pepperoni. Og lagt ofan á eggið. Yfir þetta reif ég Parmasen os, og svo smá salt og pipar.
Deilt á tvo diska. Borið fram með unoaked chardonney frá Peter Lehmann og soundtrackinu frá Into the wild. Ta ta...
Svo kom kærastinn með rétt sem fór í All Star, top 10.
Austurlandahraðlestin (seinnipartinn)
- Mauksoðið lambakjöt (sem ég sauð í vikunni í vatni og engu öðru)
- Arabískt kjúklingakrydd frá Pottagöldrum
- Salt pipar
- Rauðlaukur rokkar
- Pítubrauð
Sósan
- Ab mjólk
- Sýróp
- Eðal kjúklingakryddfrá pottagöldrum
- Sætt sinnep
- Salt og pipar
Pítubrauð klofið í tvennt, penslað með chile og hvítlauksolíu og sett í panini grill í smá stund.
Steikið lambakjöt og rauðlauk í chile - hvítlauks olíu. Og setjið slatta af arabíska kjúklingakryddinu og salti og pipar.
Setjið á pítubrauðið, og svo ofan á það sósuna og smá ferskan rauðlauk.
Borið fram með Solaz rauðvíni og Elliot Smith.
Þetta var rosalega gott, og virkar frekar sem smáréttur heldur en heil máltíð. Því þá mætti vera kál og eitthvað meira, gera þá alvöru pítu með öllu.
Kv, Soffía
Matur og drykkur | Breytt 10.3.2009 kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 13:09
Fiskurinn í sjónum
Eins og titillinn ber með sér þá minnir hann á snilldina sem syndir hér allt um kring. Keyptum ýsuflak á lítinn pening.
Fiskurinn í sjónum
- Ýsuflak
- Matreiðslurjómi
- Heimalöguð chile og hvítlauks-basil olía
- Sveppir, mjög smátt skornir
- Búnki af púrrulauk
- Engifer
- Fersk basil
- Salt og pipar
Sósan
- Matreiðslurjómi
- 26 % Óðals ostur
- Sveppir, skornir í skífur
- Smjör
- Smá hvítlauksrif, skorið í skífur
- Salt og pipar
Svona var þetta, ekkert flókið. Mér fannst alveg óþarfi að hafa nokkuð meðlæti. En fyrir þá sem þurfa meiri magafylli þá er upplagt að bera þetta fram með hrísgrjónum.
Kv, Soffía
Matur og drykkur | Breytt 12.3.2009 kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 20:43
Eyddi 80.000 kalli í kvöldmat
Ég hef hugsanlega eytt 20.000 kr í föt á síðasta ári en ég get engan vegin áætlað hvað ég hef eytt í mat og vín og mér er eiginlega alveg sama. Því það er hverrar krónu virði ( og sérstaklega 4000 króna afmælisdinnerinn minn, og þá er ég að tala um 4000 kr í dönskum krónum).
Einhver spurði mig um daginn hvað ég hafði fengið að borða þetta kvöld og ætla ég að deila því með ykkur hér á netinu.
Svona hljóðaði Tradititional wine menu 6th of March
Antipasti
Cod fish wrapped in grilled squach and it´s own juice
Monk fish tail rolled in Lardo Di Colonnata over swiss chard
Dorade royal in chrispy chrust over braised savoy cabbage
Millefoglie of artichoke in love with "Marzolina" cheese and green sauce
Quails leg in a variation of wild fennel
Guinea fowl stuffed of herbs in a radicchio and balsamici combination
Rabbit salad over sundry tomatos
Soup of Cardo emphasized by a bruschetta of Parmigiano cheese
Primi Piatti
Riso al salto with saffron, liquorice tuille and spinach sauce
Cavatelli for organic broccoli and chilli
Secondi Piatto
Halibut in a Cicerchia soup and tomato leaf
Roasted lamb, eggplant pure and potato chip with cicorino salad
Formaggi di Carlo Fiore
Nico´s sorbet of coconuts
"Formaggi in controluce"
Dolce
Syrup of "Amarena" mousse praline and graniteof tangerine
Marinated pineapple and memory of passion fruit mousse and spicy chocolate sorbet
Hljómar þetta ekki bara of gott, og nú er ég einmitt að vinna í matseðlinum fyrir afmælið mitt
...to be continue :)
kv, Soffía
1.3.2009 | 18:59
Hugmynd til að fá góðar hugmyndir..
..af skemmtilegum réttum til að elda.
Lesið matseðla hjá góðum veitingastöðum út um allan heim. Var einmitt eins og sést á síðustu færslu að lesa það sem í boði er á Quails Gate. www.quailsgate.com og síða veitingastaðarins hér
Svo er bara að google sambærilegar uppskriftir og fylla í eyður með eigin hugmyndaflugi.
Og hér er ég á vínekru Quails Gate