3.1.2010 | 14:49
Einfalt ómótstæðilegt konfekt
Búin að liggja í þessu yfir hátíðar...
Marsipan konfekt
- Odense marsipan
- 100 g 70% sirius konsum súkkulaði
- Heslihnetur, hakkaðar
Rúllið út marsipaninu líkt og pizzadeigi, ca 1 cm þykkt. Skerið út litla hringi í munnbitastærð með einhverju litlu kringlóttu móti eða skerið í ferhyrninga með hníf og "reglustiku"
(Það mætti líka gera hefðbundnar kúlur, en mér finnst hitt skemmtilegri munnbitar, þetta í laginu ca eins og tveir 50 kallar ofan á hvor öðrum.)
Bræðið súkkulaði í örbylgjuofni. Dýfið marsipan bitunum í súkkulaði og veltið þeim svo upp úr heslihnetum.
Einnig prófaði ég að blanda saman marsipani og Odenese kókósmasse, það kom líka vel út fyrir þá sem finnast kókós gott.
GLEÐILEGT ÁR!
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.