21.10.2009 | 13:51
Tagliatelle með rósmarínkrydduðum kjúklingi
Þurrkuð krydd eru mjög mismunandi, geta verið svolítið beisk finnst mér stundum. Ég lét vaða á að krydda kjúklingabringu með rósmarín, óreganó og eðal kjúklingakryddi frá Pottagöldrum og það kom bara mjög vel út.
Tagliatelle með rósmarín kjúklingi (fyrir 2)
- Tagliatelle
- 1 kjúklingabringa
- Hvítlaukur
- Sveppir
- Púrra
- Ferskur chile
- Rjómi
- Paprika, fínt skorin
- Eðal kjúklingakrydd
- Rósmarín
- Oregano
- Salt
- Pipar
- Smjör
Sjóðið tagliatelle.
Skerið bringuna niður í hæfilega munnbita. Kryddið með Eðal kjúklingakryddi frá pottagöldrum og þurrkuðu rósmarín og oregano, salti og pipar. Steikið á pönnu, bætið við hvítlauk, papriku, sveppum, chile og púrru. Bætið svo við rjóma og látið malla smá.
Borið fram með hvítlauksbrauði.
www.soffia.net
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.