14.5.2009 | 16:14
Ætifíflasúpa
Ætifífill er það sem kallast á ensku Jerusalem artichoke og á dönsku er það jordskokker. Ekki sérlega fallegir en mjög bragðgóðir.
Hef búið til súpu úr þeim sem var rosalega góð.
Ætifíflasúpa
- 300 g ætifíflar (skornir í bita)
- 200 g kartöflur (skornar í bita)
- 2 laukar
- Ólífuolía
- Smá smjör
- 1 dl möndlur
- 1 1/2 L grænmetiskraftur
- Smá rjómi
- Smá hvítlaukur
- Salt
- Pipar
Steikið lauk, kartöflur og ætifífla í olíu. Bætið við grænmetiskrafti og vatni, látið sjóða, bætið við rjóma og smjöri eftir smekk. Þegar þetta er tilbúið maukið þetta í blender. Berið fram með smá sýrðum rjóma og möndlum. (Ég á sjaldnast möndlur og sleppi þeim þá bara)
Svo má breyta þessari uppskrift eins og manni dettur í hug, nota kjúklingakraft, krydda hana til , nota t.d steinselju eða sellerí osfv osfv...
Ég á reyndar ekki mynd af ætifíflum, bara rófum....
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.