10.4.2009 | 21:25
me me með meðlæti
Keyptum naut og kind í gær, entrecode og file. Nautið var fremur seigt, en þú hefðir getað logið að mér að kinde file-ið væri naut. Ég meðhöndlaði það sem það væri nauta file, kryddaði það með góðu steikar pipar kryddi og steikti það bara rare, og það var svo tender og gott. Ekki til ullarbragð af því.
Kvöldmaturinn í gær var naut, kind, piparostasósa og sweet potato mós.
Hef kannski komið með svipaða sósu hér áður. Kannski eitthvað svipað og rjómasósan sem fór yfir humarinn hér í einhverri færslunni.
- Piparostur
- Rjómi
- Rjómaostur
- Sveppir
- Hvítlaukur
- Púrra
- Salt
- Pipar
- Hvítvín
- Smjör
Og í mósinu var:
- Sæt kartafla
- Smjör
- Rjómi
- Hvítlaukur
- Parmigiano Reggiano
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Menning og listir | Breytt 11.4.2009 kl. 10:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.