17.9.2008 | 09:43
Focaccia samloka með nautahakki
Fyrir margt löngu fékkst á Aktu taktu samlokur sem kölluðust Jeppar, Fólksbílar og Sportbílar, það sem kemst næst Jeppanum í dag eru svokallaðar Kjötlokur. Eftir að þetta hætti að fást, fyrir svona 10 árum, þá hef ég verið að þróa mína eigin kjötloku.
Trixið við þessa, er að nota focaccia brauð, skera það þvert (kljúfa það) og snúa því úthverft og setja fyllinguna á milli, þannig að skurðurinn snýr út. Svo er þetta sett á panini grillið.
Um að gera að prófa allskonar focaccia, t.d með ólífum. Í Kanada fékk ég focaccia brauð með Jalapenos, sem var snilld!
Fylling: Nautahakksblanda, Sinnepssósa og Mossarella ostur.
Nautahakksblanda
- 400 g nautahakk
- 5-10 sveppir
- Hálfur laukur
- hvítlaukur
- smá ferskur chile
- Salt, pipar, smá oregano.
Allt steikt á pönnu.
Sinnepssósa
- Mjones eða sýrður rjómi
- Sinnep
- Smá Dijon sinnep
- Fljótandi hunang
- Salt
Nautahakksblanda, Sinnepssósa og Mossarella ost (eða annar góður mildur ostur) sett á aðra focaccia sneiðina og svo samlokuni lokað og grillað í panini grilli.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:48 | Facebook
Athugasemdir
Það er frábær hugmynd! Segðu mér hvernig smakkast ef þú lætur reyna á þetta.
kv, S
Soffía Gísladóttir, 18.9.2008 kl. 09:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.