2.7.2008 | 16:21
Pizza Pizza. Nokkur ráð
Þegar ég nenni ekki að gera mitt pizzadeig þá hef ég keypt þetta upprúllaða á smjörpappír í plastinu, sem maður bara rúllar út..NEMA... hér koma nokkur tips.
Ég skeri deigið í tvo jafna helminga og rúlla þeim út með kökukefli þynnra á nýja smjörpappírs örk með smá hveiti svo ekki klístrist. Svo miklu betra.
- Ég set botninn í ofninn í 30 sek til eina og hálfa mínótu (fer eftir hitanum í ofni) áður en ég set á hann sósu og álegg.
- Ég hef ofninn alltaf á heitasta hita og hita hann í 30 - 60 mínútur áður en ég set pizzu inn.
- Góður pizzasteinn kemur sterkur inn.
- Durum 00 hveiti er mjög gott, og svo jafnast ekkert á við mossarella di buffola, sem fæst því miður ekki hér en mossarella kúlurnar í vökvanum eru fínar.
Ég bæti svo við þetta þegar mér dettur meir í hug.
Ég fór til Napoli fyrir nokkrum árum í vikuferð, bara til að borða pizzur, pílagrímsferð til mekka pizzunnar, varð ekki fyrir vonbrigðum, besti staðurinn án efa var Pizzeria da Michele. Langar biðraðir eftir borði myndast á háannatíma. Okkur var skellt við borð með ókunnugum, bara gaman að því, nýta sætin.
Meginflokkur: Matur og drykkur | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Breytt 10.9.2008 kl. 19:22 | Facebook
Athugasemdir
Já, flott er og takk fyrir þetta.
Kv, Soffía
Soffía Gísladóttir, 2.7.2008 kl. 17:37
SLEF! (vantar drool smælí)
Snilldarsíða hjá þér & fastur liður á blog rúntinum mínum :)
Hilsen,
Frikki Guf
Frikki Guf (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.