6.3.2012 | 09:13
Engar smá súkkulaðibitakökur. Mæli með þessum!
Þessar súkkulaðibitakökur stóðust alveg undir væntingum. Og vegna þess að þær eru frekar stórar þá verða þær mmmmmmjúkar í miðjunni.
Þetta er svona uppskrift sem allir súkkulaðibitakökuaðdáendur
verða að prófa að minnsta kosti einu sinni.
Ég hefði ekkert á móti því að vera að narta í eina núna í tilefni dagsins, því ég á afmæli í dag. En ég læt mér duga að narta í afmælisgjöf, súkkulaðið frá Hafliða Ragnars...
Það sem er lykilatriði við þessa uppskrift og verður að gera, er að geyma deigið í ísskáp í amk sólarhring.
Það er sniðugt á minni heimilum að baka 4 stk í einu því þær eru svo stórar, deigið geymist í kæli í 3 daga og svo má líka geyma það í frysti. Ekki amalegt það :)
Súkkulaðibitakökur
- 3 2/3 bollar hveiti
- 1 1/4 tsk matarsódi
- 1 1/2 tsk lyftiduft
- 1 1/2 tsk salt
- 1 1/4 bolli smjör
- 1 1/4 bolli púðursykur (ljós, en ég notaði dökkan)
- 1 bolli sykur
- 2 stór egg
- 2 tsk vanilludropar
- 120 g 70 % súkkulaði eða annað svakalega gott súkkulaði, verður að vera gæða!
- Sjávarsalt
Setjið þurrefni í skál. Setjið smjör og sykur í aðra skál og hrærið saman með hrærivél þar til blandan er létt (3-5 mín). Hér er gott að vera með smjör við stofuhita.
Bætið við eggjum, einu í einu.
Því næst vanillu.
Bætið við þurrefnum.
Setjið súkkulaðið í deigið og blandið því saman við svo það dreyfist jafnt úr því. Pakkið deiginu inn í plastfilmu.
Geymið deigið í ísskáp í sólarhring eða í allt að 72 klst.
DAGINN EFTIR: Mótið kúlur úr deiginu, hver kúla hjá mér var um 100 g. Það er u.þ.b á við golfkúlu. Já, þær eru svolítið stórar, það er best!
Raðið 4 kúlum á smjörpappír á ofnplötu með góðu millibili því þær fletjast út og þurfa sitt pláss.
Bakið við 180° c í 18-20 mín.
Ef þið notið ekki allt degið þá er hægt að gera kúlur úr öllu deginu og setja rest í frysti.
Passið að baka þær ekki of lengi sem þær verði ekki of harðar.
Þessi uppskrift er birtist fyrir ó nokkrum árum í New York times.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.