7.12.2011 | 21:08
Jóladagatal Soffíu - 17 dagar til jóla
Jóladagatal...17
Þá eru 17 dagar til jóla, og þar af tvær helgar. Það mætti nota einn af þeim dögum í að búa til snjóboltasúkkulaðiskál. Hér geyma þau sykurpúða í skálinni. Ég er nú ekki mikið fyrir sykurpúða en það mætti kannski finna einhver önnur not fyrir skálina. Þetta er að minnsta kosti sætt. Hér er linkur með nánari leiðbeiningum.
Á meðan það er verið að dunda sér í eldhúsinu (eða hvar sem er)þá er ekki úr vegi að fara í sarpinn á rás 1 á ruv.is og finna þætti eins og Matur er fyrir öllu eða nýja jólaþætti sem hófu göngu sína nú fyrir jólin sem heita Könglar og kertaljós. Sniðugur þessi sarpur, að geta hlustað á gamla útvarpsþætti þegar manni hentar.
Og fyrst við erum í snjóköllum og sykurpúðum þá væri hægt að gera svona skreytingu á smákökurnar. Nánar um það hér.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.