6.12.2011 | 21:14
Jóladagatal Soffíu -18 dagar til jóla og Lamumba
jóladagatal...18
Þessa fallegu stjörnu rakst ég á á pinterest.com. Það fylgdi ekki slóð með henni, en svo virðist sem einhver er að selja svona á Etsy vefnum. En það mætti gera svona sjálfur og ég væri jafnvel til í að gera svipaða pæling nema jólakúlu í þrívídd. Það væri verðugt verkefni...
Eitt af því skemmtilegasta sem ég gerði í vetrarkuldanum um jólahátíðina þegar ég bjó í Kaupmannahöfn var að fara á Sporvagninn, hamborgarastað sem var innréttaður eins og sporvagn og er við Grábræðratorg, og fá mér Lamumba. Þetta fékk maður með sér í take away, og rölti um götur miðbæjarins á meðan maður gæddi sér á Lamumba sem er heitt kakó með koníaki...
Lamumba
- Heitt kakó
- Koníaksslurkur
- Þeyttur rjómi
Setjið skvettu af koníaki út í heitt kakó, toppið með þeyttum rjóma. Setjið jafnvel í pappamál eða "to go" bolla og takið með ykkur út í göngutúr.
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.