18.3.2011 | 10:30
Hafragrautskrönsí kökur og DAGUR 4
Ég hef ekki verið mikið fyrir hafragraut ...þar til ég dreifði úr honum örþunnt á smjörpappír, stráði yfir hann pistasíu dukkah og maldon salti og bakaði í ofni. Þá var ég komin með dúndurgott
krispí krönsí kex.
Hægt er að nota haframjöl en ég prófaði byggflögur, sem mér finnst rosa gott.
Hafragrautskrönsí kökur
Ég bjó til graut
- 1 dl byggflögur
- 2 dl vatn
- 2 tsk salt
Sauð saman í potti. Dreifði úr grautum fremur þunnt á smjörpappír sem ég hafði lagt í ofnskúffu.
- 2 msk Pistasíu dukkah
- 1 msk Maldon salt
Stráði Pistasíu dukkah og maldon salti yfir grautinn og bakaði í ofni í ca korter við 220°c . Skófa hann svo varlega af pappírnum og snéri honum við og bakaði á þeirri hlið í u.þ.b 10 mín. (Þar til hann var orðinn vel krönsí)
Braut grautarklessuna niður í nokkra parta.
Svo má bera þetta fram með hverju sem er, t.d rauðrófusósu, hummus, einhverjum skemmtilegum sósukenndum mat... eða bara narta í eitt og sér með salti.
Það er um að gera að prófa sig áfram í kryddunum. Hafragrautur er svo hlutlaus á bragðið að hann þolir ýmislegt.
MICRO GREENS - DAGUR 4
Það er eitthvað að gægjast undnn moldinni, og spírurnar dafna, sólblómafræin eru farin að losna frá spírunum. Það er bara að halda við raka í moldinni og hreinsa spírurnar með köldu vatni kvölds og morgna.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.