6.3.2011 | 16:54
5 réttir - 5 vín endaði á að vera 5 réttir - 11 vín
Já, þá er matarboðinu lokið. Þetta var svona "food and wine pairing" matarboð. Það heppnaðist mjög vel, maturinn var góður, einfaldur og engir stælar og passaði skemmtilega með vínunum. Gestir sátu og átu frá 15.00 - 19.00.
Það er fátt skemmtilegra en að njóta góðra vína og matar í góðum vinahóp að degi til. Ég mæli eindregið með því að þið prófið að bjóða gestum í mat svona snemma að deginum til. Og svo er hægt að fara snemma í háttinn og vakna ferskur á sunnudagsmorgni.
Til borðs sátum við gestgjafar og 6 gestir. Og eins og mér finnst svo gaman þá var setið við borðið allan tímann og borðað og drukkið í 4 tíma og vínin rædd og hvernig hann dansaði með matnum, ásamt öðrum stórskemmtilegum samræðum sem urðu bara skemmtilegri eftir því sem leið á daginn. Þegar formlegum matseðli lauk var setið í aðra góða 4 tíma.
Gestirnir komu úr sitthvorri áttinni og þekktust lítið sem ekkert en náðu vel saman og skapaðist frábær stemmning.
5 réttir og 11 vín - einhverjar krónur og nokkrir aurar
Félagsskapurinn og stemmningin - PRICELESS
Og svona hljóðaði vínlistinn og matseðillinn:
Brandade (saltfiskur) með rauðbeðusósu og brokkólíspíru
Marques de Riscal, Verdejo, Spánn 2009
Domain de granges de Mirabel, Viognier, Frakkland 2009
Nauta tataki með rótsterkri hvítlaukssósu
Peter Lehmann of the Barossa, Shiraz, Ástralía 2008
Cono sur, Pinot Noir, Chile 2009
Túnfisk tataki með svörtum sesamfræjum, soya, wasabi og radísuspíru
Castillo Perelada, Brut Reserva, Cava, Spánn
Georges Dubæuf, Beaujolais, Frakkland, 2009
Kjötbollur með hægelduðum tómötum
Brunelli di Montalcino, Baroncini, Il Bosso, Ítalía 2005
Manchego með valhnetukjörnum og agave sýrópi og Prima Donna
Lan, Crianza, Spánn 2006
Að lokum var setið og sumblað á:
Ibericos, Crianza, Spánn 2008
Silver Sage, The Flame, Ísvín frá Okanagan, Canada 2004
Og svo síðast en alls ekki síst
Faustino I, Gran reserva, Spánn 1999.
Með þessu öllu fóru svo 10 lítrar af sódavatni!
Ég hef nýlega gefið ykkur uppskrift af Brandade, en hér kemur hún eins og gerði hana í gær.
Brandade með rauðbeðusósu og brokkólíspíru (fyrsti rétturinn)
- 800 g saltfiskur
- U.þ.b 2 dl rjómi
- 2-3 hvítlauksrif
- Tellicherry pipar (svartur pipar)
- 1 dl ólífuolía
Sjóðið saltfiskinn. Roðflettið og sjáið til þess að hann sé beinalaus. Setjið olíu á miðlungs heita pönnu ásamt fiskinum og maukið hann niður. Bætið við pressuðum hvítlauk og rjóma og hrærið vel saman. Piprið eftir smekk. Ég notaði tellicherry pipar frá Jamie Oliver sem er mjög bragðmikill og bragðgóður. Maukið fiskinn í flauelsmjúkt paste í matvinnsluvél.
Setjið í glas eða á disk og skreytið með ofurlítilli doppu af rauðbeðusósu og brokkolíspíru.
Rauðbeðusósa
- 1 rauðbeða
- 3 msk sýrður rjómi
- slatti af salti (2-3 tsk)
- 1-2 tsk safi úr lime
Öllu hrært saman
Berið réttinn fram með t.d Marques de Riscal. Það vín var að dansa með matnum. "Eins og rétturinn og vínið séu góð systkin" orðaði einn gesturinn það í gær.
Domain de granges de Mirabel, Viognier var aðeins of þurrt og kryddað. Spes vín en ekki að gera sig með saltfisknum. Væri gaman að prófa það með öðruvísi mat.
Og þarna er ég í hægra horninu spræk eftir vel heppnaða veislu.
Svo koma fleiri uppskriftir í vikunni.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.