28.3.2010 | 17:47
Ýsu wok með wasabi sesame dressingu
Keypti í Melabúðinni rosa fína wasabi sesame dressingu. Marineraði ýsu í dressingunni og setti á pönnu með grænmeti. Virkilega gott og bar þetta fram með Thai sweet chili sósu sem klikkar aldrei.
Ýsu wok með wasabi sesame dressingu
- Ýsa
- Sveppir
- Vorlaukur
- Púrra
- Paprika
- Hvítlaukur
- Salt
- Wasabi sesame dressing
- Hrísgrjónanúðlur
Skerið ýsu í munnbita og veltið upp úr Wasabi sesame dressingunni. Eldið grænmetið á wokpönnunni, bætið svo fiski við og eldið í nokkrar mínútur eða þar til fiskurinn er tilbúinn. Bætið við dressingu eftir smekk. Hrærið saman við soðnum núðlum. Berið fram með Thai sweet chili sauce.
www.soffia.net
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Nammm hljómar ekkert smá vel!!
Bryndís Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.