9.5.2009 | 09:47
Ýsusúpa og karrýsa
Undanfarið höfum við verið að elda úr ýsu.
Ýsusúpa (miðað við tvo)
- Ýsa
- Kúrbítur
- Púrra
- Lime safi
- Rifinn lime börkur
- Hvítvín
- Hvítlaukur
- Salt
- Pipar
- Olía
- Smjör
- Kókósmjólk
- Tómatar í dós, 2-3 msk
- Campels tómatsúpa, 1 msk
- Karrý de lux frá pottagöldrum (gult karrý)
- Cumin
- Fersk púrra og smá sýrður on top
Steikti grænmeti úr olíu og smjöri, bætti við lime og kryddi, svo kom kókósmjólk tómatdót og hvítvín. Skar (tætti) fiskinn í munnbitastærð og steikti á sér pönnu í 1-2 mín með lime, smjöri salti, pipar og hvítlauk og bætti svo út í súpuna og sauð í nokkrar mínútur.
Þetta var fáránlega gott.
Svo var kærastinn greinilega undir áhrifum...frá mér... þegar hann kom með næsta rétt
Karrýsa
- Ýsa
- Laukur
- Púrra
- Sal y pebre (Salt og pipar)
- Kókósmjólk, en bara smá, 1 msk eða svo, miðað við fyrir tvo
- Smjör
- Karrý de lux
- Sykur
- Balsamic sýróp
Steikt á pönnu. Balsamic sýróp sett á diskinn þegar þetta er borið fram. Og það passar mjög vel við þennan rétt.