17.4.2009 | 14:58
Þrjár laxauppskriftir til viðbótar
Þá var komið að mér aftur. Þetta var vinningsréttur kvöldsins. Fullt hús, 5 M.
I´m sorry Maria
- Lax
- Humar
- Hvítlaukur
- Smjör
- Salt
- Pipar
Sjóðið lax. Maukið hann saman við humar (óeldaðan) pressaðan hvítlauk, salt og pipar. Búið til bollur og steikið á pönnu upp úr smjöri.
Sósan
- Piparostur
- Rjómi
- Hvítlaukur
- Hvítvín
- Salt
- Pipar
- Óðalsostur
Allt mallað saman í pott. Mér finnst óðalsostur gefa sósum skemmtilegan keim.
Meðlæti
- Kúrbítur
- Hvítlaukur
- Smjör
Svitað á pönnu
Allt sett á disk. Lime on the side. Ég bara sósuna fram í glasi, upp á presentation. Og eins og þið sjáið þá fór nú ekki mikið fyrir kúrbítnum, enda er þetta ekki stórir réttir. Mér finnst alltaf skemmtilegra að borða fleiri rétti í minni skömmtum.
Svo var það kærastinn. Hann kom með laxasúpu og laxasalat. (mmmn) Presentation var awesome! Rörin voru samt bara upp á skraut, við borðuðum súpuna með skeið :)
Ó María, mig langar í
- Lax
- Rjómi
- Laukur
- Hvítlaukur
- Salt
- Pipar
- Karrí
- Mjólk
Laxinn var fyrirfram soðinn. Mall í pott.
Salatið
- Lax
- Mæjó
- Hot pepper spice
- Salt
- pipar
Síðasti rétturinn kom frá Gunna.
María með morgunverði
- Lax
- Piparostur
- Musli morgunkornablanda
- Berjasulta
Hakkið laxinn og mótið kúlur utan um bita af piparosti. Salt og pipar eftir smekk. Bakið í ofni í 15 mínótur eða svo.
Hitið sultu í potti og berið laxakúlurnar fram á sultubeðinu.
Það var snilldar hugmynd af hafa piparostinn inn í!
Þá er upptalið þær 6 uppskriftir sem til urðu þetta kvöld.
Góða helgi! Sx
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)