30.9.2008 | 16:50
Klíptu mig, einhver!
Var að koma úr minni fyrstu verslunarferð í matvöruverslun. Ég hef ekkert sérlega gaman að því að versla, nema að það sé matur eða vín! Og það er alltaf svo gaman að versla í matinn í útlöndum. Nammi namm!
Það sem kallinn fær í kvöld þegar hann kemur þreyttur heim úr vinnunni er:
- Manchego ostur með hunangi
- Baguette með ólífuolíu, balsamik og salti
- Grænar ólífur
- Tinto de verano
Þetta ætti að vera ágætur forréttur áður en við kíkjum út.
GOTT RÁÐ:
Ef þið erum með rauðvín sem er ekkert sérlega gott, eða opin flaska frá deginum áður og orðin hálf oxuð, þá er um að gera að breyta henni í Tinto de verano eða Sangríu.
- Rauðvín
- Sódavatn eða Swepps Lime (eða Fanta Lemon)
- Sítróna, skorin í báta
- Appelsína, skorin í báta
- Klaki
Flóknara þarf það nú ekki að vera, öllu mixað saman í könnu (og ekki þarf að taka utan af sítrónunni eða appelsínunni). Smakkið til, ætli ein flaska af rauðvíni á móti hálfum líter af sóda sé ekki passlegt. Fer bara eftir stuði og stemmningu.....
Salut!
30.9.2008 | 09:26
Grænmetissúpa, BARA HOLL!
Vinkona mín fékk hjá mér súpu og var svo húrrandi ánægð með hana. Hún bað mig um uppskrift og hér kemur hún.
Húrrandi holl grænmetissúpa
- Tómatar í dós, ein dós (hakkaðir)
- 1/4 dós pizzasósu frá Hunts
- 5 gulrætur
- Hálfur kúrbítur
- 1 rauð paprika
- 1 dós kjúklingabaunir
- 2 shallott laukar
- 1-2 rif hvítlaukur
- Hálfur poki ferskt spínat
- Salt, pipar, oregano og basilíka
- Grænmetiskraftur og 1 L vatn
Létt steikið upp úr olíu gulrætur, kúrbít, lauk, papriku og hvítlauk.
Bætið við tómötum og pizzasósunni. (Átti ekki tomatpúrre og notaði því pizzasósu)
Kryddið með salt, pipar, þurrkuðu oregano og basil.
Svo kemur vatn og grænmetiskraftur og látið malla í 20 mín eða svo.
Bætið við kjúklingabaunum og mallið í 5 mín í viðbót.
Rétt áður en súpan er borin fram bætið þá við spínatinu.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)