16.9.2008 | 18:09
Rauðvín og Brauð
Opnaði í dag fína rauðvínsflösku. Vínið er frá Spáni, Cepa Gavilán, 2005. Mjög gott! Og alveg perfect að opna eina og fá sér í glas á meðan maður bakar þessa uppskrift.
Ég bakaði brauð fyrr á árinu, eftir uppskrift sem ég get ómögulega munað hvaðan ég fékk. (Ef einhver veit það, endilega látið mig vita) Í fyrsta skiptið sem ég bakaði það át ég hálft brauðið í hádegismat, sem er mjög saðsamt, og mér leið ekki sérlega vel á eftir. Þannig að ég mæli ekki með að borða yfir sig af þessu brauði.
Kúrbíts-gulrótarbrauð
1 gulrót , lítil (75 g)
1/2 kúrbítur , lítill (75 g)
1-2 hvítlauksgeirar
100 g valhnetukjarnar
200 g hveiti , óbleikt
200 g heilhveiti
2 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 tsk hunang , þunnt (má sleppa)
1 msk olía , t.d. maís- eða sólblómaolía
400 ml ab-mjólk
Leiðbeiningar
Rífið gulrótina og kúrbítinn og saxið hvítlaukinn. Leggið þetta á milli nokkurra eldhúsrúllublaða, þrýstið létt á og setjið síðan til hliðar.
Ristið valhneturnar á þurri pönnu, setjið þær svo í sigti (helst gróft, t.d. pastasigti) og hristið hýðið frá. Kælið hneturnar og grófsaxið þær. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið ofnplötu.
Blandið saman, í stórri skál, þurrefnunum, grænmetisblöndunni og valhnetunum. Bætið hunanginu og olíunni út í og hrærið í með sleifarskafti.
Hellið síðan ab-mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið þangað til allt hefur blandast vel saman. Setjið þá deigið á hveitistráð borð og hnoðið smástund.
Skiptið deiginu í tvo jafnstóra hluta og rúllið þeim í jafnlangar lengjur, u.þ.b. 35 sm hvora. Vefjið lengjurnar varlega saman, klípið endana og stingið þeim undir. Setjið brauðið á ofnplötuna og sáldrið örlitlu hveiti yfir.
Bakið í u.þ.b. 30-35 mínútur eða þangað til brauðið er orðið ljósbrúnt. Ég reyndar baka þetta brauð alltaf í a.m.k klst.
Á meðan brauðið er í ofninum er gott ráð að klára úr vínsflöskunni sem var opnuð í byrjun baksturs.
Salut,
16.9.2008 | 09:42
Hvítlauks-salatdressing
Brilliant salat dressing, og mjög fljótleg, og er góð með flestu salati. Sérstaklega salati með m.a avacado, kjúkling og cammebert osti skorinn í "sneiðar" og hitaður á pönnu, svo hann verður svona hálf bráðnaður.
- Sýrður rjómi ( kannski 1-2 dl)
- Hvítlaukur, 2-3 rif eða eftir smekk
- U.þ.b hálfur dl fljótandi hunang
- Salt og Pipar
Hvítlaukurinn pressaður útí. Öllu hrært saman. Ég reyndar slumpa á mælieiningar, betra að smakka þetta til. Þetta er ekki ósvipað og sinnepssósan hér að neðan, nema bara meira hunang (og ekkert sinnep.)