Menning....

Þessi er fyrir pabba.  Ég þarf að ná betri mynd samt.  Þessi verður að duga þangað til.

 

madrid servietta

 


Inside your head

"Ræktaði" samloku í nokkrar vikur sem varð frá því að vera svakalega falleg og girnileg í það að vera undarleg mygluhrúga.  Ég tók myndir af ferlinu með því að hafa myndavél á þrífæti á sama stað allt ferlið og smellti af nokkrum sinnum á dag.  Frekar krefjandi verkefni en útkoman var mjög skemmtileg og ég varð margs fróðari um myglu. 

Til að mynda var lyktin ógeð þar til á síðasta stigi ferlis þá var komin einhverskonar mygluhattur yfir lokuna þannig að lyktin hvarf. 

Þessi samloka er ögn girnilegri en Fransbrauð með púðursykri, færslan hér á undan, finnst ykkur það ekki?

 

 sam07

 

 

sam12

 

 

 Tilgangurinn með þessu var svo myndband við lagið Inside your head með Eberg

 

 

 

 


Fransbrauð með púðursykri

Smá nostalgía... eitthvað sem þú fengir mig ekki til að borða í dag.

 

Fransbrauð með púðursykri

  • 1 Fransbrauðssneið
  • Smjör
  • Púðursykur

 

Smyrjið Fransbrauð með smjöri og ofan á það dreifið púðursykrinum, því meira því "betra"

 

madird sunday

 Hressir gaurar á bar í Madrid


Bloggfærslur 18. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband