Þegar kemur að indverskum mat...

...þá er ég seld.

Fór inn í pakistanska búð hérna og keypti fullt af skemmtilegum kryddum og  Tikka paste og dal baunir og fleira.

Svo vissi ég ekki hvað af þessu öllu ég átti að elda þegar ég kom heim þannig að ég eldaði allt.  Og madre mía var þetta gott! Já!

 

Ég er ein af þeim sem freistast til að kaupa tikka masala í krukkum.  Sumar alveg ágætar.  En núna þá impruvæseraði ég og ætla að skrifa það hér áður en ég gleymi þessu.

 

Tikka Masala.

 

  • Tikka Paste
  • Kjúklingur, heill!
  • Jógúrt
  • 1 dós tómatar (heilir eða í bitum..)
  • Laukur
  • Græn Morocco paprika (er eiginlega bara eins og græn paprika á bragðið)
  • Hvítlaukur
  • Ferskt engifer

 

Trikkið við þennan rétt sem gerði hann góðan ..heeeld ég... var að ég sauð kjúklinginn í bitum með öllum beinum og það er svo rosa góður kraftur sem kemur þá.  Er svo vön að nota bara bringur að ég var búin að gleyma því.  Og held reyndar að þetta sé sérlega góður kjúklingur.  Keypti hann heilan í kjúklingaborðinu (já það er sér kjúklingaborð í búðinni hér) og lét hana chop-a hann niður fyrir mig, og taka bringurnar frá.  Þannig að ég notaði allt nema bringur í þennan rétt.

Þvínæst setti ég í skál jógúrt og nokkrar msk af tikka paste, (Pataks) smá hvítlauk og smá saxað fínt engifer, salt og pipar.  Svo velti ég kjúklingabitum upp úr þessu.

Sko, best væri að marinera hráan kjúkling upp úr þessu í svolítinn tíma segja þeir, nema ég sauð kjúkling áður því ég vissi ekki hvað ég var að fara að gera við hann, og fékk líka rosa gott soð.   Þannig að bæði virkar, ef þið eigið soðinn kjúkling þá er það alveg jafn gott.

Setti olíu í pott og hvítlauk, papriku, lauk og engifer og létt steikti.  Þvínæst kjúklinginn í 2 mín eða svo.  Svo setti ég  tómata í dós (ég setti reyndar ekki tómatana í dós, heldur setti ég "tómata í dós" í pottinn (vá hvað ég er fyndin) og lét malla, ég reyndar lét malla í meir en klst því á meðan ég fór að gera næstu rétti og kjúklingurinn varð svo meir og góður. 

 

Nennti ekki að taka mynd af matnum, en hér er ein góð.  Mynd af kærastanum, þeir sem þekkja hann vita hvar hann er...

 

madrid14


Tvö tonn af osti...

Duttum ...eins og alltaf... inn á skemmtilegan tapas bar.  Skelltum okkur á ansi girnilega samloku samkvæmt myndinni sem við sáum af henni.  Fengum okkur hálfa saman.  SEM BETUR FER! Þetta var fjall!  Og gjörsamlega minnisstæðasta samloka fyrr og síðar!

Osturinn var þokkaleg snilld og skinkan afbragð.  Já þetta var semsagt brauð með skinku og osti, "grilled cheese" eins og kanarnir myndu segja.

Osturinn sem var notaðir heitir því skemmtilega nafni Tetilla og skinkan Lacón.

 

Ef myndirnar tala ekki sínu máli þá þarf ég að fara aftur og panta aðra til að taka fleiri myndir :P

 

 

 samloka2

 

 

 

 samloka

 

 

Það er mjög gott svona spari um helgar að fá sér gott brauð, smyrja með smjöri og setja slatta af feitum osti sem bráðnar vel og góða skinku á milli.  Bræða smjör á þokkalega heitir pönnu, en samt ekki svo að smjörið brenni og steikja samlokuna á báðum hliðum þar til osturinn er bráðnaður.  Hér þarf slatta mikið af smjöri og bæta við meira smjöri þegar samlokunni er snúið við.

 


Bloggfærslur 11. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband