22.10.2008 | 12:21
Vonbrigði gærdagsins...
Hélt ég hefði dottið í lukkupottinn í gær þegar ég sá í veitingahúsaupptalningu í blaði einu að hér er Rossopommodoro. Þannig að ég fór að google-a en fann ekkert þar. Þannig að það hvarflaði að mér að þessi staður væri þá kannski ekki til. En ég er svo ofurbjartsýn að ég hélt af stað i lestarferð að götunni þar sem staðurinn átti að vera.
Shit hvað ég var búin að sjá fyrir mér mossarella di buffola í forrétt og pizzu aaalveg eins og ég fékk á sama stað í Napólí.
Nema hvað, engin Rossopommodoro, bara einhver mexíkóskur keðjustaður. Fyrst vorum komin alla þessa leið þá ákváðum við að borða þarna, enda glor. Altílagi staður, nema þegar maður er með ofur væntingar og langar bara í pizzu þá bara virkar ekki að fara að borða eitthvað annað.
En Rossopommodoro á Íslandi er samt ekki sambærilegur þessum í Napólí. En hef ekki farið á þann stað í mörg ár og veit ekkert hvernig hann er í dag. Bestu pizzurnar á Íslandi finnst mér vera á Horninu og Ítalíu.
Bruchetta (Basic uppskrift)
- Gott snittubrauð
- Tómatar
- Ólífuolía
- Fersk basil
- salt
- pipar
- Ferskur mossarella
Tómatar skornir fínt, basil skorin fínt . Sett í skál með smá ólífuolíu, salti og pipar.
Baguette skorið í sneiðar og skellt á því smá ólífuolíu og salti og sett í ofn í smá stund til að fá það smá krönsí.
Brauðið tekið út og þá er tómatmaukið sett ofan á það, 2 tsk eða svo á hvert brauð. Mossarella skorin í sneiðar og sett ofan á tómatmaukið. Smá salt og pipar stráð ofan á og sett í ofn þar til osturinn bráðnar smá.
Þetta er alltaf klassík! Svartur pipar og mossarella er rosa gott saman!
22.10.2008 | 09:27
Madrid, veitingastaðir, barir og kaffihús.
Hér mun ég halda saman einni færslu með stöðum sem ég fer á hér í Madrid.
Ég fór á stað sem heitir Gino's (Caleruega). Þetta er ítalian keðja, miljón Gino´s staðir hér í Madrid. Þessi hér í hverfinu okkar er bara með þokkalega kósí andrúmsloft, fékk mér Margaríta pizzu sem var ekkert sú besta í heimi, en þegar ég fór að líta í kringum mig þá leit pastað ágætlega út. Gæti alveg hugsað mér að borða þarna aftur, en þá fengi ég mér eitthvað annað en pizzu.
(Update, fór aftur og þá fékk ég mér bbq kjúklinga pizzu sem var bara fín.)
Kíktum á Museo del Jamón. Þetta er tapasstaður, veitingastaður og skinku og ostabúð. Þessi staður er með útibú víðar um borgina. Fengum okkur Salamanca hráskinku sem var mjög góð.
Þeir eru með tvö rauðvín hússins, Valdepenas (1.10 evrur) og Rioja (1.70 evrur). Glösin eru mjög lítil. Riojað var aðeins betra. Sangrian þeirra er mjög góð.
Mynd frá Museo del Jamón
Svo er ég búin að fara á 50 aðra staði...bæti þeim við svona smám saman...