21.10.2008 | 14:26
Pulsa
Ekki af því að ég haldi að þið hafið brjálaðan áhuga á að vita það en þá þá langar mig samt að segja ykkur að pulsurnar í hádeginu voru...
....tadatadammmmm, bara alveg hreint stórfínar. Ég sauð þær lengi og brauðið sem ég hafði keypt var mjúkt og gott, alveg stúúútfullt af rotarvarnarefnum, svona brauð sem maður hefur gaman af að pota í.
Kartöflumós (Þetta rétt dugar fyrir tvo ef kartöflurnar eru í minni kantinum)
- 8 Kartöflur, soðnar og skrællaðar
- 2-3 msk smjör
- Hálft rif hvítlaukur
- 3 msk Parmagiano reggiano
- Smá mjólk
- Salt og ferskur svartur pipar
Fínt síðan að steikja pulsu afgangana og bera fram með þessu, til dæææmis... annars fer bara svo margt vel með mósi. Finnst ykkur það ekki?
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2008 | 08:13
Hunangssmjör
Ég stóð lengi og horfði á úrvalið, reyndi að lykta í gegnum þykkar og vel einangraðar plastumbúðirnar. Liturinn á þeim er á engan hátt sambærilegur ss pulsunum heima. En svo fór ég að syngja:
I wish I were an Oscar Mayer Weiner
That is what I truly wish to be
cause if i were a oscar mayer weiner
everyone would be in love with me
þannig að ég endaði á að kaupa Oskar Mayer Weiner. Ég læt ykkur svo vita hvernig fer, þetta verður eflaust hádegismaturinn minn.
En hér er upplagður forréttur þegar boðið er í mexíkóska veislu. Smjörið er ógeðslega gott með heitu ný"bökuðu" Sopapillas. Ég hef aldrei búið til Sopapillas en það er fullt af uppskriftum á netinu
Hunangssmjör
- Íslenskt smjör, við stofuhita
- Hunang
- Salt
Setjið smjörið, salt og hunang í blender og mixið vel saman. Spurning með hlutföll, eina vitið er að setja það magn af smjöri sem þið viljið og bæta svo við hunangi og salti og smakka til.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)