Rauðvín og Brauð

Opnaði í dag fína rauðvínsflösku. Vínið er frá Spáni, Cepa Gavilán, 2005. Mjög gott!  Og alveg perfect að opna eina og fá sér í glas á meðan maður bakar þessa uppskrift.  

Ég bakaði brauð fyrr á árinu, eftir uppskrift sem ég get ómögulega munað hvaðan ég fékk.  (Ef einhver veit það, endilega látið mig vita)  Í fyrsta skiptið sem ég bakaði það át ég hálft brauðið í hádegismat, sem er mjög saðsamt, og mér leið ekki sérlega vel á eftir.  Þannig að ég mæli ekki með að borða yfir sig af þessu brauði. 

 Kúrbíts-gulrótarbrauð

1 gulrót , lítil (75 g)
1/2 kúrbítur , lítill (75 g)
1-2 hvítlauksgeirar
100 g valhnetukjarnar
200 g hveiti , óbleikt
200 g heilhveiti
2 1/2 tsk matarsódi
1 tsk salt
1 tsk hunang , þunnt (má sleppa)
1 msk olía , t.d. maís- eða sólblómaolía
400 ml ab-mjólk


Leiðbeiningar


Rífið gulrótina og kúrbítinn og saxið hvítlaukinn. Leggið þetta á milli nokkurra eldhúsrúllublaða, þrýstið létt á og setjið síðan til hliðar.

Ristið valhneturnar á þurri pönnu, setjið þær svo í sigti (helst gróft, t.d. pastasigti) og hristið hýðið frá. Kælið hneturnar og grófsaxið þær. Hitið ofninn í 200°C og smyrjið ofnplötu.

Blandið saman, í stórri skál, þurrefnunum, grænmetisblöndunni og valhnetunum. Bætið hunanginu og olíunni út í og hrærið í með sleifarskafti.

Hellið síðan ab-mjólkinni smátt og smátt saman við og hrærið þangað til allt hefur blandast vel saman. Setjið þá deigið á hveitistráð borð og hnoðið smástund.

Skiptið deiginu í tvo jafnstóra hluta og rúllið þeim í jafnlangar lengjur, u.þ.b. 35 sm hvora. Vefjið lengjurnar varlega saman, klípið endana og stingið þeim undir. Setjið brauðið á ofnplötuna og sáldrið örlitlu hveiti yfir.

Bakið í u.þ.b. 30-35 mínútur eða þangað til brauðið er orðið ljósbrúnt. Ég reyndar baka þetta brauð alltaf í a.m.k klst.

 

 

okanagan1

 

 Á meðan brauðið er í ofninum er gott ráð að klára úr vínsflöskunni sem var opnuð í byrjun baksturs. 

Salut,

Soffia 

 

 


Hvítlauks-salatdressing

Brilliant salat dressing, og mjög fljótleg, og er góð með flestu salati.  Sérstaklega salati með m.a  avacado, kjúkling og cammebert osti skorinn í "sneiðar" og hitaður á pönnu, svo hann verður svona hálf bráðnaður.

  • Sýrður rjómi ( kannski 1-2 dl)
  • Hvítlaukur, 2-3 rif eða eftir smekk
  • U.þ.b hálfur dl fljótandi hunang
  • Salt og Pipar


Hvítlaukurinn pressaður útí. Öllu hrært saman. Ég reyndar  slumpa á mælieiningar, betra að smakka þetta til.  Þetta er ekki ósvipað og sinnepssósan hér að neðan, nema bara meira hunang (og ekkert sinnep.)


LAHMACUN

Lahmacun, er eitt af mínu uppáhaldi!  GEÐSJÚKT gott!

  • Pizzadeig:
  • 350 g hveiti
  • 1 tsk salt
  • 2 msk ger
  • 250 ml volgt vatn
  • 2 msk ólífuolía

(eða hvaða pizzadeig sem er...)

Mikilvægt er að rúlla deigið út mjög þunnt! 
Hitið ofninn á hæsta.

  • 600 g lambahakk
  • 1 laukur
  • Hálf rauð paprika, hálf græn
  • 1 hvítlauksrif
  • Smá fersk steinselja
  • Smá rauður chile ( fer eftir hvað hann er sterkur)
  • 2 tsk salt og slatti svartur pipar

Saxið lauk og paprikur gróft og setjið í matvinnsluvél, þar til það er vel hakkað, en samt ekki orðið að mauki.  Sigtið burt vökva, blandið við lambahakkið ásamt hvítlauk, saxaðri steinselju, chile pipar og kryddi.  Mixið saman með höndum þar til þetta er orðið að hálfgerðu mauki.

 


Skiptið blöndunni í 12 jafna portsjónir.Skiptið pizzadeiginu í 12 skammta, og fletjið þunnt út, setjið
lambahakksblönduna á deigið og passið að hún nái vel út í alla kanta.  Bakið í 8 -10 mín í mjög heitum ofni.


Oft er þetta borið fram með extra saxaðri steinselju og sítrónusafi kreistur yfir, svo er þessu rúllað upp og borðað.


Það er líka hægt að nota nautahakk í stað lambahakks.  Einnig er gott að setja smá mintu með kjötblöndunni.  Hakkið má líka steikja á pönnu áður en það fer á pizzadeigið og inn í ofninn, ef ykkur líst ekkert á hrátt hakkið.

Svo er um að gera að þróa sig áfram, sumir setja saxaða tómata, og jafnvel smá tómat paste út í hakkið, og svo má setja ristaðar furuhnetur, og ýmis krydd, s.s cummin, cinnamon eða allspice.
Mér finnst líka gott að fínsaxa rauðlauk (RAUÐLAUKUR ROKKAR) og dreifa ofan á.

 

 

IMG 2345
 
Þetta Lahmacun fékk ég í Istanbúl í sumar. SLEF!

 

 


Hádegismaturinn

Þetta eldaði ég mér í hádeginu.

Crêpes

  • 1 pakki Vilkó pönnukökuduft. 
  • Soðin hrísgrjón
  • 1 rauð paprika
  • Púrrulaukur
  • Skinka, skorin á ræmur eða teninga
  • Ostur
  • Sinnepssósa
  • Oregano
  • Basil
  • Paprikuduft

Pönnukökur bakaðar.  Hrísgrjón soðin, skinka, paprika og púrra skorið niður, svona frekar fínt.  Ostur skorinn í sneiðar.

Ég byrja yfirleitt á að baka úr öllu pönnukökudeiginu, og baka aðeins minna aðra hliðina en venjulega.  Svo tek ég eina bakaða pönnuköku, legg hana á pönnuna með hliðina sem er minna bökuð niður. 

Set ostinn fyrst, svo skinku og sinnepssósu yfir alla kökuna og loks hrísgrjón, papriku og púrru. Kryddað með oregano og basil, og kannski smá salti.

Þá loka ég henni til helminga, og hita hana á báðum helmingum í smá stund. Sett á disk og smá paprikudufti stráð ofan á.

Sinnepssósa

  • smá majónes og slatti sýrður rjómi
  • Sætt sinnep
  • Dijon sinnep
  • Fljótandi hunang
  • Salt 

Slumpa á þetta þar til að ég er sátt við bragðið.  ( Svo má bæta við hálfu  hvítlauksrifi)

Hér er svo uppskrift af Crêpes sem ég nota oft.

  • 1 bolli hveiti
  • 2 egg
  • 1/2 bolli mjólk
  • 1/2 bolli vatn
  • 1/4 teskeið salt
  • 2 matskeiðar bráðið smjör

 


Rrrrr

Ég "sleikti frelsisbjölluna" um daginn, þ.e labbaði upp í Hvalfjörð með einni sem ég þekki, lögðum af stað frá Vesturbænum kl 10 um morgun, og vorum komnar rétt fyrir miðnætti.  Mæli þó með þessu í Júní, þegar það er bjart alla nóttina, því það var orðið allt of dimmt í restina, og engir almennilegir göngustígar.  En talandi um Hvalfjörð....


Nú er kominn mánuður með r-i, og því óhætt að fara út að tína kræklinga. Þar sem ég er að byggja í Hvalfirðinum þá fer ég alltaf þangað að tína.  (Myndin hér fyrir neðan er tekin í Hvalfirðinum)

hvalfhordurinn copy

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er góð síða til að sjá hvenær er flóð og fjara.
http://easytide.com

 

Hér eru tvær snilldar kræklingauppskriftir.  Og alveg must að vera með gott brauð með, sérstaklega rjóma-sinnepsuppskriftinni.

 

Sinneps kræklingur

  • 1/2 L rjómi
  • 2-3 dl  gott hvítvín
  • 1 shallott laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 100- 150 g smjör
  • 3-4 msk Dijon sinnep, eða eftir smekk.

 

Shallottlaukur og hvítlaukur létt steikt á pönnu í smjörinu ásamt kræklingi. Hvítvíni, rjóma, smjöri og sinnepi bætt við.  Saltað og piprað eftir smekk.

 

Taí  kræklingur

  • Ein dós kókósmjólk
  • Nokkrar msk rautt eða grænt  karrý paste (eftir smekk)
  • 1 Rauður Chile
  • Hvítlaukur(2-3 rif)
  • 1 Rauð paprika
  • 1 Rauðlaukur
  • Hálft Zukkini
  • Engifer
  • Kóríander
  • Salt og pipar
  • Íslenskt smjör

 

Paprika, rauðlaukur og zukkini skorið fremur smátt,steikt á pönnu upp úr smjöri ásamt fínt skornum rauðum chile, hvítlauk, engifer og krækling.  Því næst karrý paste og kókósmjólkin.  Að lokum salt og pipar og ferskt kóríander.

 

Munið svo að borða ekki þann krækling sem ekki opnast við suðuna.

 


Veitingastaðir í Köben

Fyrir ykkur sem eruð að fara til Köben, eða eruð þar nú þegar þá langar mig að minna á veitingastaða bloggið mitt um Köben, sem er með fyrstu færslunum hér á blogginu mínu.

 

inside01

 

 


Gúffað


Ég er í snilldar matarklúbb sem kallast guf. (Með litlu g og lesist GÚFF) Fjórir
meðlimir, algjört gourmet pakk.  Við hittumst í gærkvöldi þar sem
okkur var boðið upp á fylltar kjúklingabringur og humar, borið
fram m.a með klettasalatspestókartöflusalati. 

Sú uppskrift var í Fréttablaðinu í gær, og er fáránlega góð.


Hér kemur hún:

 

  • 400 g soðnar og stappaðar kartöflur
  • 100 g möndluhakk
  • 100 g graskersfræ
  • 1 poki klettasalat
  • 1 hnefi basilíkum
  • 2 dl græn ólífuolía
  • hvítlaukur, salt og pipar.

Allt nema kartöflur í matvinnsluvél og svo kartöflum hrært við.

 



Humarinn var steiktur upp úr hvítlaukssmjöri, í skeljunum, svo
var humar fjarlægður og smá rjóma bætt við á pönnuna svo úr varð
mjööög góða sósa! 

Síðar um kvöldið var svo drukkin verkamannaútgáfa af Paralyzer
við misgóðar undirtektir, Vodka og kókómjólk.
10


Takk fyrir okkur !
Sx

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband