Uppgjör

Síðasti dagur ársins á ansi mögnuðu ári.  30 mismunandi rúm (nei, ég er ekki að selja mig) 14 lönd og grunnur að góðu húsi.

Bjuggum fyrstu 6 mánuði ársins í Kaupmannahöfn.  (Minni ykkur á að ég bloggaði hér fyrr á árinu um alla veitingastaði og bari sem ég fór á í Köben ef þið eruð á leiðinni þangað)

Svo komum við heim í júní og steyptum grunn fyrir hús sem við keyptum og bíður okkar í tveim rándýrum gámum.

Í lok júlí fórum við í brúðkaup aldarinnar, snilldar brúðkaup sem var haldið í Sun Peaks, B.C, Kanada. Eyddum um mánuði í Kanada, með stórskemmtilegri viðkomu í Seattle.

Í September fluttum við svo til Madrid, sem er snilldar borg og ég 100% mæli með henni, sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman að mat og drykk.  Ferðuðumst mikið, drukkum góð vín, borðuðum yfir okkur af tapas og nutum lífsins.

Stoppuðum í Köben á leið heim til að fá okkur uppáhalds samloku kærastans á Salon.  Sú samloka klikkaði ekki, og við gengum svo langt að fara þangað tvisvar :P  Mun blogga sérstaklega um hana fljótlega.

Eyddum jólum á Íslandi í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum.  Brunuðum svo til Kanada þan 27.des.  24 klst ferðaleg og svo þess virði þar sem Kamloops er einn af mínum uppáhalds stöðum í heimi.  Eigum góða vini hér, snilldar vinahópur.  Þar á meðal 2 aðrir íslendingar sem bjuggu hér fyrir nokkru, en klikkuðu á að koma með okkur hingað yfir áramótin :) Við skálum fyrir ykkur!

Einnig heimsóttum við m.a Grikkland, Tyrkland,  Búlgaríu, Úkraínu, Rúmeníu, Kýpur, Ísrael og Egyptaland á árinu.

Hér sit ég svo á síðasta degi ársins á hóteli í Kamloops með laptop og rauðvín upp í rúmi, food network channel í sjónvarpinu og rifja upp þetta snilldar ár. 

Áramótunum eyðum við með góðum vinum hér í Kamloops. Þemað er Redneck New Years Eve.  Þannig að maður mætir í hettupeysu og setur upp derhúfuna... en ég ætla að sleppa budveisernum.  Í dag verður bara drukkið gæðavín frá Okanagan.

Við höldum upp á áramótin 8 klst á eftir ykkur á Íslandi.  Klukkan er 11.30 núna og komin tími á hádegismat hjá mér á meðan flest ykkar eru eflaust að ljúka við að borða hátíðarmatinn.  

Verði ykkur að góðu, takk fyrir góðar stundir á árinu.  Gleðilegt ár til ykkar allra!  

Sxx

 

 


Lambafille

Hljómar þetta ekki stórkostlega?

Lambafille

  • Lambafille
  • Engifer
  • Hvítlaukur
  • Cumin
  • Chile
  • Olía

Allt saxað örsmátt og blandað saman.  Kryddblöndunni  núið inn í lambið.  Látið standa í klst eða lengur.  Brúnið lambið á öllum hliðum og setjið svo í álpappír og látið standa í smá stund, 10 mín eða svo.  Við viljum hafa það fallega bleikt.

Avacadomauk

  • Avacado, almenninlega þroskaðann
  • Paprika, rauð
  • Rauðlaukur rokkar
  • Chile
  • Lime
  • Ferskt kóríander
  • Salt og pipar

Skerið avacado frekar gróft, papriku og rauðlauk fínt og chile örsmátt.  Bætið við lime, fersku smátt skornu fersku kóríander, saltið og pipar.  Blandið þessu vel saman. 

Skerið lambið í fínar sneiðar og berið fram með avacadomaukinu. 

TIP:  Það eru til nokkrar tegundir af Avacado, LANG bestur er HAAS.  Hann er svartleitur, krumpaður og frekar ljótur, en bara 1000 x betri en þessi fallega sletti og græni!

 

 


Lambakjöt með Red Curry

Þennan rétt þarf ég að fá mér reglulega, sérlega hressandi á köldu vetrarkvöldi.  Það er eitthvað við þennan rétt sem er að svínvirka, þannig að ætli hann sé ekki bara líka í top 10.  Eitthvað sem ég verð að fá áður en ég fer til Kanada eftir jól.

Lambakjöt með Red Curry

  • Lambaframhryggsbitar, skornir í tvennt
  • 1 laukur
  • 2-3 hvítlauksgeirar, smátt saxað
  • 2-3 cm engifer, saxað smátt
  • 3 msk Red Curry Paste
  • Salt
  • 1 dós tómatar, stewed
  • 1 rauð og 1 græn papríka
  • 1 dós kókósmjólk

 

Látið lauk krauma í olíu ásamt hvítlauk og engifer. Curry paste og svo kjötið sett útí og velt upp úr gumsinu.  Því næst koma tómatar í dós og paprikan og að lokum  kókósmjólkin og svo salt eftir smekk.

Látið malla í klst.  Svo má bæta við smá vatni eftir þörf svo sósan brenni ekki upp.

 

rioja


Cannelone - alveg top 10 uppáhalds.

Ég er búin að vera ofnlaus á Spáni síðustu 3 mánuði þannig að ég hef ekki getað gert þennan rétt lengi og hann er ógeeeeðslega góður! Sko, ÓGEÐslega góður!  En ég einmitt eldaði  þetta í gær.

 

Kjúklinga cannelone

  • 1 pakki ferskar lasagna plötur
  • 2 kjúklingabringur (hráar)
  • 1 egg
  • 1/2 dl rjómi
  • Salt og pipar 
  • 1-2 hvítlauksgeirar
  • Fersk basilíka

Ég nota lasagna plötur sem ég sker i tvennt  og rúlla svo upp frekar en að nota þurrkuð cannelone rör.  Setjið allt dótið í blender (nema nottla lasagna plöturnar) svo úr verði paste.  Setjið svo slatta á hverja lasagna plötu og rúllið upp.

 

  • Slatti ferskan mossarella sem fer ofan á
  • Parmagiano Reggiano sem fer líka ofaná rúllurnar

Sósan

  • 1 dós niðursoðin tómatsósa
  • 2 skallot laukar
  • 2 msk ólífuolía
  • 2 msk balsamik edik
  • 1 tsk hlynsýróp
  • salt og pipar

 

Mallið lauk og hvítlauk á pönnu, bætið við tómatsósunni og öllu hinu, látið malla.  Setjið hana í eldfast mót, svona helminginn.  Leggjið lasagnarúllurnar í mótið, hellið yfir næstum því restinni af sósunni svo helling af ferskum mossarella.  Bakið í ofni í 25 mín eða þar til lasagna plötunnar eru til.

Borið fram með súpergóðu hvítlauksbrauði og jafnvel smjörsteiktu spínati.

Ég bý yfirleitt til tvöfalda sósuuppskrift því það á það til að minnka magnið í ofninum..þorna. Og svo ber ég fram restina í skál (heita) svo fólk getur bætt á að vild. Hún mætti reyndar alveg vera þreföld sósan, var étin upp til agna í gær...

Þetta er alveg óheyrilega gott!  

 

IMG 8678

 

 

 

 

 

 

 


Dýrasta pulsa ever

Kom ógeðslega svöng úr vélinni frá Madrid.  Ákvað þrátt fyrir óhagstætt gengi að fjárfesta í einni með öllu á Kastrup.

Pulsan kostaði 27 kr danskar, og ég borgaðu með 10 evru seðli og fékk 48 danskar krónur til baka. Það þýðir að pulsan hafi kostað mig 590 íslenskar krónur! 

Lyktin frá pulsuvagninum (þar sem maður sækir töskunar) var svo dásamleg að ég gat ekki staðist hana og var tilbúin að borga uppsett verð!  

Og svo var gegnið á krónunni svo hagstætt:

IMG 1719

 


Besta rjúpu uppskriftin?

Það er stjanað í kringum rassgatið á mér og svo ég fái ekki hamborgarahrygg 24. og 25.des (hamborgarahryggur 24 hjá tengdó, og 25. hjá foreldrum) þá var mér gefin rjúpa sem mun ég matreiða fyrir mig á meðan hinir borða svínið.

Ég er algjör nýgræðingur í rjúpu eldun svo að nú er bara spurning hvað sé besta rjúpu uppskriftin.

Ég er svona aðeins byrjuð að googla. Eina er að ég er ekki mikið fyrir gráðost en það virðist vera mjög vinsælt í rjúpu uppskriftum.

 

 

IMG 9596

 

 


Saltfiskur

Ég ætlaði að gefa ykkur uppskriftina af saltfiskinum, sniðugt að hafa saltfisk á Þorláksmessu fyrir þá sem ekki borða skötu.

 

Saltfiskur með súkkíní og fleiru góðu

  • Saltfiskur, nokkur stykki (ca 2 flök)
  • Hveiti
  • 1 dl. ólífuolía
  • 1/2 eggaldin
  • 1/2 súkkíní
  • 1 dós tómatar, stewed
  • Smá hvítlauksrif
  • Basil, ferskt
  • Steinselja, fersk
  • Sérrí edik
  • Hlynsýróp
  • 1 dl gott hvítvín
  • Salt og pipar

 

Veltið fiski upp úr hveiti og steikið ca 2 mín á hvorri hlið á pönnu eða þar til hann er eldaður.  Leggið til hliðar

Steikið upp úr olíu eggaldin, súkkíní sem er skorið í fremur smáa teninga og hvítlauk.  Bætið við tómötum og kryddi, svo sérrí ediki (sem ég reyndar sleppi því ég á það aldrei) hvítvíni (aldrei nota vont hvítvín í matargerð).  Látið malla.

Setjið svo allt í eldfast mót og salfisksstykkin ofan á og berið fram með t.d litlum smjörsteiktum kartöflum.

 


Seinkun

Sit í VIP lounge á Barajas flugvelli.  3 klst seinkun svo vid brugdum á thad rád ad ad skella okkur a svona VIP lounge, thar sem manni er thjónad med raudvini og sódavatni eins og thu í thig getur látid á medan madur hangir i tolvunni og facebookast, bubble shootast og bloggar, ekki jafn slaemt ad hanga a flugvollum og thad var hér i den.

Lagdi mig ádan og sá á tolvuskjá hjá mjog MJOG feitum og sveittum gaur  ad hann var ad skoda mega klám.  Hann hélt ad engin vaeri ad horfa thví hann lokadi glugganum i hvert sinn sem einhver labbadi framhjá og thóttist vera ad gera eitthvad annad. 

Nú sit ég hér og blogga um hann á medan hann er enn ad.  Nice.

En thrátt fyrir ad thad fari vel um okkur hér thá langar mig gjarnan ad komast til Copenhagen og bjóda kallinum upp á ofursamlokuna sem ég bloggadi um fyrir longu sídan.  A stadnum sem ég baud kaerastanum á á 35 ára afmaelinu hans, Salon. 

Jaeja, var bara ad taka eftir ad thad snjóar úti!  Fyrsti snjórinn okkar í Madrid :)

Annad bladur blogg, en ég er med rosa góda uppskrift heima ad saltfiski frá Sigga Hall, Nýkaupsbókinni.  Set hana inn vid taekifaeri. 

Í Logroño var haegt ad fá íslenskan saltfisk, ekkert merkilegt thad, flest allur saltfiskur hér frá Íslandi ...

saltfiskur

Farin ad spila smá poker vid kaerastann...

Salut frá Madrid og Copenhagen here we come!

Sx

 

 

 


Flottastur

Ef þessi er ekki bara flottur þá veit ég ekki hvað:  Linkur hér! 

Mig langar svo ííí

Góða helgi, Sxx

 


ADIOS MADRID

Síðasti dagurinn í Madrid.  Búið að vera skemmtilegur tími.  Get 100% mælt með Madrid, ein af mínum uppáhalds borgum.  Sit núna við tölvuna og er að velta því fyrir mér hvernig mig langar að eyða síðasta deginum.  Er svo kvefuð, en búin að dæla í mig asperin og C vítavíni (ok, ætla ekki að laga þessa prentvillu...vítavíni!!  freaudískt slip?)

Það minnir mig á rosa gott vín frá Okanagan í British Colombia, Kanada sem hét Freudian Sip frá  Therapy Vineyards.

Nema hvað síðasti dagurinn hér.  Ætli ég fari ekki á Reina Sofia listasafnið.  Svo er spurning með hvað maður fær sér að borða í lunch og svo í kvöld.  Það er svo mikið af stöðum hér að það er ómögulegt að hugsa um eitthvað sem maður á eftir að prófa því það er óteljandi, og samt hefur maður farið á óteljandi staði síðan við komum hingað.

Indverski stendur uppúr, án þess endilega að vera besti inverski staðurinn í Madrid þá var hann alltaf góður og fín þjónusta.

Svo er lítill bar með svaka góðum djúpsteiktum saltfisk, svona í tapas útgáfu.

Svo er slatti að dýrum og fínum mishelin stöðum, nema bara þegar krónan hefur verið svona erfið þá hef ég ekki tímt því, finnst nóg að vera að borga 60 evrur á pizza stað og sinnuma það með 170.

Svo er eitt sem ég endaði aldrei á að prófa og það er lítill heill grís, rétturinn heitir Cochinillo Asado. (Roast Suckling Pig).  

Það er bara af svo mörgu að taka að ég fæ valkvíða við að reyna að ákveða hvað mig langar að borða í kvöld.  

Svo verðum við eina nótt í Köben á morgun og þar eru nú nokkrir staðir sem mig langar að kíkja á, nr.1 er Salon, samlokustaðurinn góði sem ég bloggaði um hér einu sinni.

Jæja, þetta er nú bara röfli færsla sem engin nennir að lesa nema kannski tengdó.   Ætli maður fái sér ekki eitt hvítvínsglas af góðu Blume og skelli sér svo á listasafnið.

Sxx

 

 

 

 lorgrono03

 La Rioja rokkar alveg eins og rauðlaukur

 

ps. Munið bara að drekka hóflega :)

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband