Það kom að því..

Ég eldaði vondan mat.  Sko mér fannst hann alveg fínn en kærastinn var ekki alveg sáttur.  Var aðallega útaf því að ég gleymdi að rífa kjúklinginn af beinunum áður en ég bar matinn fram, s.s kjúklingurinn var í súpunni með beinum og skinni og fjöðrum ...liggur við og eftir á að hyggja þá var þetta mjög ógirnilegt :P

Minnir mann á það að presentation is everything.

Þessi er flottur og góður:

 tapas


Rækjutapas (Verkamannaútgáfan)

 

  • Tigris rækja
  • Egg
  • Túnfiskur úr dós
  • Majónes

 

Steikjið rækju upp úr smá smjöri og kælið.  Harðsjóðið eggið.  Takið túnfiskinn úr dósinni og setjið smá af honum á disk.  Skerið eggið til helminga og setjið ofan á túnfiskinn.  Setjið rækjuna ofan á og setjið tannstöngul í gegnum allt.  Slettið svo smá mayjonesi ofan á þetta og jafnvel smá svörtum pipar.

Og útgáfan fyrir ríka og fallega.  (Ég á reyndar eftir að prófa en bara datt hún svona í hug rétt í þessu)

  • Humar
  • Egg
  • Ferskur túnfiskur
  • Aiioli

 

Steikjið humar upp úr smjöri og smáááá hvítlauk.  Harðsjóðið eggið. Steikið túnfiskinn á pönnu með salti og pipar þar til hann er eldaður RARE.

Ég veit ekki alveg samt með að hafa harðsoðið egg með þessu, kannski frekar spælt svona pínulítið egg. 

Er svona að spá, þetta er ekki alveg að gera sig, en humar og túnfiskur, kannski hægt að blanda því skemmtilega saman, jafnvel út í japanskt þema. OOH Soffía.. Þarf aðeins að hugsa þetta betur Shocking

En verkamannaútgáfan var alveg að virka, og ágætis presentation.


Rioja, part ll

Við eyddum seinni nóttinni í Haro.  Við komum við í Laguardia en ákváðum svo að halda áfram aðeins lengra og fórum til Haro.  Doldið furðulegur bær, einhver vetrarstemmning í fólki, enda var ógeðslega kalt. 

 

IMG 9441

Culinary highlight:  Pimiento picante.  Sterk paprika.  Hún er sæt eins og paprika og sterk eins og chile.  Fullkomið! Ég er fegin að hafa farið til Haro, hefði ekki viljað missa af því að smakka þessa papriku.

Cultural highlight:  Eins og í svo mörgum borgum þá var Haro draugabær þegar við komum.  Engin á ferli og rennihurðir fyrir öllum stöðum en svo um kvöldmat lifnaði yfir bænum.  Allir tapas barir og veitingastaðir opnuðu og götur og staðir fylltust af fólki.  Við fórum á tapasbara rölt, og það virðast flestir gera.  Þar sem þetta er lítill bær þá var maður farin að þekkja fólk, og hitta sama fólkið á mörgum börum.

 IMG 9489

Það voru fuglar í milljónatali þegar við vorum að keyra um Rioja, stoppuðum og tókum myndir. Einn skeit á kærastann fallegum vínberjakúk.

Fleiri myndir frá þessu Hitchcock atriði á FLICKR

 

Á heimleiðinni komum við við í Burgos og fengum okkur burger.  Þar var "tapas og vín"  hátíð á börum borgarinnar. Burgos minnir svolítið á Salamanca. Örugglega skemmtileg borg í hlýrra veðri.

 


LAVINIA

Fór í stærstu vínbúðina hér í Madrid, ef það er til himnaríki þá lítur það svona út.  Það er rosa flottur veitingastaður sem er opin á dagin frá 13.00 - 16.00.  Við fórum kl 20.00 þannig að hann var lokaður en barinn var opinn.  Fengum að smakka hin og þessi vín, og það var ekkert verið að spara að hella í glösin hjá okkur.

 rioja

RIOJA, 2008

Við keyptum 3 flöskur, ég er ekki búin að opna þær, þannig að ég læt vita síðar hvernig smakkast.



 


Overdose á tapas og rauðvíni

Nei, kannski ekki overdose á rauðvíni (er það hægt?) en held ég eldi venjulega máltíð í kvöld þar sem ég er búin að lifa á tapas alla helgina.   Við fengum svona smjörþefinn af Rioja og okkur langar að fara aftur að sumri til.

Við fórum til Logroño, Laguardia og Haro.  Það var ágætis veður í Logroño en skíta skíta kuldi í Haro.  Stemmningin í þessum borgum er örugglega allt önnur í sól og sumri og þegar allar bodegurnar eru opnar.

Fyrsta stoppið okkar á leið til Rioja frá Madrid var á bensínstöð um 150 km frá Madrid.  Við fórum þar inn til að kaupa vatn, en þegar inn var komið blasti við glæsilegur veitingastaður og tapasbar.  Ég stóðst nú ekki mátið og fékk mér rauðvínsglas. Callejo, Crianza 2005.  Þetta var góð byrjun á vel heppnaðri ferð.  

Logroño var mesta snilldin.  Nokkrar götur þar með tapasbörum og veitingastöðum hurð við hurð.  Þar hittum við tvo innfædda, kalla á sextugsaldri og þeir voru hressari en ég veit ekki hvað.  Drógu okkur með sér á stað eftir stað og virtust þekkja annan hvern mann þarna.  Það var drukkið og borðað tapas.

 

logrono

Culinary highlight: Bar sem selur ekkert nema drykki og grillað kjöt á teini, í tapas útgáfu.  Það var óheyrilega gott.

 

logrono

 

Cultural highlight:  Eldgamall og tannlaus kall sem sat einmannalega út í horni á einum bar.  Þegar við svo komum inn með nýju gömlu vinum okkar þeim Jose og Victor, og Jose byrjaði að syngja Flamengo þá lifnaði yfir gamla.  Hann stóð upp og byrjaði að syngja með, og nema hvað, gamli söng eins og engill.  Þvílík rödd!  Já og þegar hann tók af sér húfuna átti maður von á að sjá silfurlitaðan koll. En aldeilis ekki, ég trúi ekki að hann liti á sér hárið, ekki alveg metró týpa.

 

 logrono

 

 

Ég samviskusamlega byrjaði að skrá niður nöfn og árgang á öllum vínunum sem ég smakkaði, en sú skrif fóru fyrir ofan garð og neðan þegar leið á kvöldin.

Puerta Vieja, Crianza 2003 var nokkuð gott

Alcorta, Tempranillo, Crianza 2003 var gott

 Vina Vial, Reserva 1998, Patenina var mjög gott

Banda Oro, Crianza 2004, Pasternina var mjög got

 

...To be continue


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband