Hið FULLkomna eldhús

Þar sem ég bý í íbúð með húsgögnum og "fullbúnu" eldhúsi þá þarf maður að aðlaga sig að hlutunum. 

Fullbúna eldhúsið samanstendur af 2 göflum og hnífum, tvær skeiðar, skurðabretti, 2 pottar, 4 diskar, 2 skálar og fjögur glös og ein trésleif og uppþvottavél og tappatogari sem ég kom með frá Íslandi.  Hvað meira þarf maður?

Ýmislegt hægt að gera við örbylgjuofn annað en að poppa :)

Tengdó er reyndar snillingur í að elda í örbylgjuofni, og hér er eitt gott ráð sem ég lærði hjá henni þegar maður þarf að "sjóða" kartöflur á no time.

 Kartaflan í örbylgjuofninum

  • 1 kartafla
  • 1 blað af blautum eldhúspappír
  • álpappír

Stingið göt á kartöfluna.  Vefjið  blauta eldhúspappírnum utan um kartöfluna og setjið í örbylgjuofn á HIGH í 3 mínótur, takið eldhúspappírinn af kartöflunni og vefjið henni inn í álpappír og geymið hana þannig í ca 5 mínútur.

Þá er hún tilbúin, þetta er hægt að gera við eins margar kartöflur og þarf.  Ef þið setjið fleiri kartöflur í ofninn í einu þá hækkar eldunartíminn, t.d 5 ekki svo stórar kartöflur eru ca 8 mín.

P.S  Og passa sig að setja ekki álpappír í örbylgjuofn :)

 

 


Vonbrigði gærdagsins...

 Hélt ég hefði dottið í lukkupottinn í gær þegar ég sá í veitingahúsaupptalningu í blaði einu að hér er Rossopommodoro.  Þannig að ég fór að google-a en fann ekkert þar.  Þannig að það hvarflaði að mér að þessi staður væri þá kannski ekki til.  En ég er svo ofurbjartsýn að ég hélt af stað i lestarferð að götunni þar sem staðurinn átti að vera.

Shit hvað ég var búin að sjá fyrir mér mossarella di buffola í forrétt og pizzu aaalveg eins og ég fékk á sama stað í Napólí.

Nema hvað, engin Rossopommodoro, bara einhver mexíkóskur keðjustaður.  Fyrst vorum komin alla þessa leið þá ákváðum við að borða þarna, enda glor.  Altílagi staður, nema þegar maður er með ofur væntingar  og langar bara í pizzu þá bara virkar ekki að fara að borða eitthvað annað.

En Rossopommodoro á Íslandi er samt ekki sambærilegur þessum í Napólí. En hef ekki farið á þann stað í mörg ár og veit ekkert hvernig hann er í dag.   Bestu pizzurnar á Íslandi finnst mér vera á Horninu og Ítalíu.

Bruchetta (Basic uppskrift)

  • Gott snittubrauð
  • Tómatar
  • Ólífuolía
  • Fersk basil
  • salt 
  • pipar
  • Ferskur mossarella

 

Tómatar skornir fínt, basil skorin fínt .  Sett í skál með smá ólífuolíu, salti og pipar.

Baguette skorið í sneiðar og skellt á því smá ólífuolíu og salti og sett í ofn í smá stund til að fá það smá krönsí.

Brauðið tekið út og  þá er tómatmaukið sett ofan á það, 2 tsk eða svo á hvert brauð.  Mossarella skorin í sneiðar og sett ofan á tómatmaukið.  Smá salt og pipar stráð ofan á og sett í ofn þar til osturinn bráðnar smá.

Þetta er alltaf klassík!  Svartur pipar og mossarella er rosa gott saman!

 

madrid18

 

 


Madrid, veitingastaðir, barir og kaffihús.

Hér mun ég halda saman einni færslu með stöðum sem ég fer á hér í Madrid. 

 

Ég fór á stað sem heitir Gino's (Caleruega).  Þetta er ítalian keðja, miljón Gino´s staðir hér í Madrid.  Þessi hér í hverfinu okkar er bara með þokkalega kósí andrúmsloft, fékk mér Margaríta pizzu sem var ekkert sú besta í heimi, en þegar ég fór að líta í kringum mig þá leit pastað ágætlega út.  Gæti alveg hugsað mér að borða þarna aftur, en þá fengi ég mér eitthvað annað en pizzu.

(Update, fór aftur og þá fékk ég mér bbq kjúklinga pizzu sem var bara fín.)

 

Kíktum á Museo del Jamón.  Þetta er tapasstaður, veitingastaður og skinku og ostabúð.  Þessi staður er með útibú víðar um borgina.  Fengum okkur Salamanca hráskinku sem var mjög góð. 

Þeir eru með tvö rauðvín hússins, Valdepenas (1.10 evrur) og Rioja (1.70 evrur). Glösin eru mjög lítil. Riojað var aðeins betra.  Sangrian þeirra er mjög góð.

 jamon

 

 

 

 

 

 

 

 

 Mynd frá Museo del Jamón

 

Svo er ég búin að fara á 50 aðra staði...bæti þeim við svona smám saman...


Pulsa

Ekki af því að ég haldi að þið hafið brjálaðan áhuga á að vita það en þá þá langar mig samt að segja ykkur að pulsurnar í hádeginu voru... 

....tadatadammmmm, bara alveg hreint stórfínar.  Ég sauð þær lengi og brauðið sem ég hafði keypt var mjúkt og gott, alveg stúúútfullt af rotarvarnarefnum, svona brauð sem maður hefur gaman af að pota í.

 

Kartöflumós (Þetta rétt dugar fyrir tvo ef kartöflurnar eru í minni kantinum)

  • 8 Kartöflur, soðnar og skrællaðar
  • 2-3 msk smjör
  • Hálft rif hvítlaukur
  • 3 msk Parmagiano reggiano
  • Smá mjólk
  • Salt og ferskur svartur pipar

Fínt síðan að steikja pulsu afgangana og bera fram með þessu, til dæææmis... annars fer bara svo margt vel með mósi. Finnst ykkur það ekki?

 

flying


Hunangssmjör

Ég stóð lengi og horfði á úrvalið, reyndi að lykta í gegnum þykkar og vel einangraðar plastumbúðirnar.  Liturinn á þeim er á engan hátt sambærilegur ss pulsunum heima.  En svo fór ég að syngja:

I wish I were an Oscar Mayer Weiner
That is what I truly wish to be
cause if i were a oscar mayer weiner
everyone would be in love with me

þannig að ég endaði á að kaupa Oskar Mayer Weiner.  Ég læt ykkur svo vita hvernig fer, þetta verður eflaust hádegismaturinn minn.

En hér er upplagður forréttur þegar boðið er í mexíkóska veislu.  Smjörið er ógeðslega gott með heitu ný"bökuðu" Sopapillas.  Ég hef aldrei búið til Sopapillas en það er fullt af uppskriftum á netinu

Hunangssmjör

  • Íslenskt smjör, við stofuhita
  • Hunang
  • Salt

Setjið smjörið, salt og hunang í blender og mixið vel saman.  Spurning með hlutföll, eina vitið er að setja það magn af smjöri sem þið viljið og bæta svo við hunangi og salti og smakka til.

 


Bæjarins bestu

Afhverju langar manni alltaf í eina með öllu þegar maður er í útlöndum?  Það er svo oft annað bragð af mat erlendis, eins og til dæmis hamborgarar.  Af hverju eru spánskir hamborgara gerðir úr kjötfarsi??

Mig langar að kaupa puslupakka hérna, en veit að ég verð bara fyrir vonbrigðum því þær eiga ekki eftir að smakkast eins og SS.

Svo eru það eðlilegir hlutir eins og Heinz bakaðar baunir, finn þær hvergi og bara ekki bakaðar baunir yfir höfuð.  

 

Súper góð snitta

 

  • Nýtt og gott baguette skorið í sneiðar
  • Svartar steinalausar ólífur
  • Hvítlaukur
  • Góð ólífuolía
  • Smurostur
  • Salt
  • Dill

 

Maukið í blender ólífur, smá olíu, hvítlauk og salt þannig að úr verði pestó.  (ólífupestó má imprúvæsera, setja t.d smá parmaost  í...)

Smyrjið baguettsneiðarnar með smurosti, ofan á það fer svo ólífu pestóið og stráið pínku dilli ofan á.

 

olifusnitta

Nammi gott, Sxx


Papadams og Vindaloo

Ég ELSKA indverskan mat, og er frekar ófrumleg þegar ég fer út að borða á indverskum, fæ mér eiginlega alltaf Tikka Malsala eða Tandoori.  Sérstakega nota ég tækifærið og fæ mér Tandoori ef ég fer á staði sem eru með alvöru tandoori ofni.  Naan brauð eru líka í sérstaklegu uppáhaldi, jafnast ekkert á við að fá alvöru naan úr tandoori ofninum.  (Naan er fyrir mig eins og  pizza, alltaf að leita að hinni fullkomnu pizzu og naan)

Er búin að ætla í indverskan síðan ég kom hingað enda úr nógu að taka, heil gata bara með indverskum stöðum.  Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með staðinn í gær.  Ég sagði þjóninum að ég væri mikið fyrir tikka og tandoori en langaði í eitthvað sterkt.  Hann mælti með Vindaloo og verð ég að segja að það var snilld.  Og algjör snilld að geta setið úti í góðu veðri klukkan 21.0.

Á meðan beðið var eftir matnum var boðið up á papadams.  Það var borið fram með mangó sósu, raita og laukblöndu.

 

Papadams forréttur

  • Mangó
  • Salt
Mangó skorinn gróft og settur í blender þar til að hann er orðinn að sósu.  Saltað eftir smekk.  Passa að mangóinn sé sætur, ef hann er ekki nógu sætur þá má setja smá sykur út í.  Ég á aðeins eftir að þróa þessa sósu, spurning hvort gott sé að setja pínku pons af ferskum appelsínusafa út í, hef ekki prófað enn...

  • 1 Laukur
  • 1/4 rauð paprika
  • 1 grænn chili
Allt skorið alveg ör ör örmsmátt, 2 mm eða svo, blandað saman í skál og sett í kæli í svona 30 mín.

  • 2 bollar Ab mjólk
  • 1/2 rauðlaukur
  • Tæp hálf agúrka
  • 1 tsk Garam masala
  • Salt

Öllu blandað saman í skál og sett í kæli í ca 30 mín.

 

  • Papadams

Svo er Papadams eldað eftir leiðbeiningum á pakka. (Yfirleitt stungið í örbylgju í einhverjar sekóntur).  Með því er svo borið fram í þrem skálum, laukurinn, mangósósan og raita.

 

 

 

 

 

 


Tortilla og Krabbasalat

Ég setti inn hér áður uppskrift af spænskri eggjaköku og krabbasalati.  Það er algjör snilld að skera eggjakökuna þvert og smyrja góðu lagi af krabbasalatinu á milli (svona eins og þegar maður setur krem á milli tveggja kökubotna)  Þetta er algjört rokk!

 

 

 madrid10

 


SAGARDI & KRABBASALAT

Fyrir þá sem eiga leið um Spán þá get vel mælt með Tapas bar sem heitir Sagardi.  Krabbasalatið þeirra er rosalega gott og sangrían þeirra kælir vel á heitum degi og vermir á köldum.

 

madrid11

 

  Krabbasalat

 

  • 2 bollar krabbakjöt eða surimi ef þið komist ekki í krabbakjöt, hakkað
  • 1 bolli sellerí skorið fínt
  • 1/4 bolli rauð paprika, skorin extra fínt
  • 1 msk sítrónusafi
  • 3-4 msk majones
  • Salt og pipar
  • 3 soðin egg, bara hvítan
  • Baguette

Öllu blandað saman í skál, nema eggjum og baguette.  Góður slatti af krabbasalati sett á hverja sneið af nýju og góðu baguette. Eggjahvítan er rifin í kurl með rifjárni og dreift ofan á krabbasalatið.

Hér er mynd sem er dæmi um framreiðslu.

 

madrid12

 

 

 

 


CENTRE OF THE UNIVERSE 2007

Ég gaf út Centre of the Universe 2007 í dag.  Ég get bókað það að þú þekkir einhvern á verkinu, enda margir íslendingar og margir kunnuglegir.

Verkið  má sjá í góðri upplausn   hér

 

 

cotu2007web


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband