Matur klukkan sjö.

Vil minna á viðtalið sem var tekið við mig og má lesa hér.  Mjög skemmtilegt og þar uppljóstra ég þremur atriðiðum sem þið vitið ekki um mig.

En talandi um mat,  hér í Madríd fara allir út að éta um 22.00, stemmari sem maður þarf að aðlagast því ég er oftar en ekki tilbúin til að fara að sofa um þetta leyti. Vildi að ég nennti að fara á fætur fyrr þó því ég fæ oftar en ekki minn 10-11 tíma svefn....aaallt of mikið!

Hefðin að borða kl 19.00 heldur sér þó þegar við eldum eitthvað hér heima.

raekja

 

 

Fékk á Tapas bar Patatas Bravas með skemmtilegu tvisti.  

Fancy Patatas Bravas

  • Patatas Bravas (skv. uppskrift hér á síðunni)
  • Spicy ítölsk eða spænsk pulsa

 

Skerið pulsuna niður í munnbita, steikið þá á pönnu og dreyfið þeim með kartöflunum og setjið svo Patatas Bravas sósu yfir.

 


Má setja borðtuskur í uppþvottavél?

Ég veit ekkert um uppþvottavélar en er með eina slíka þar sem ég bý núna.  Eftir viku reynslu þá virðist þetta vera ágætis tæki.  

Málið er, það kemur alltaf "borðtuskulykt" af borðtuskunum og því fínt að henda þeim í þvott eftir daginn.  Maður nennir ekki að setja í gang þvottavél fyrir eina skitna borðtusku.

Spurningin er því, má setja borðtuskur í uppþvottavélar? (Ég er ekki að gera ráð fyrir að hún vindi, ég get alveg gert það sjálf...)

 


Beckhams - wish you were here :(

Verst að  Beckhams eru flutt frá Madrid, ég og Vicky hefðum nefnilega náð svo vel saman, bara eitthvað að chilla, fara út i lunch og fá okkur í glas á meðan kallarnir eru í vinnunni. Svo hefði hún getað pósað fyrir mig.

 

madrid01

En þýðir ekki að væla um það, ég get amk verið með kærastanum þegar hann kemur heim úr vinnunni.  Og núna þegar evran er svona hagstæð þá gerðum við okkur glaðan dag og fórum út að borða á Pulcinella, ítalskur staður niðrí bæ.  Væntingarnar voru miklar!  Er búin að bíða eftir alvöru Napoli style pizzu, eins og þeir gefa sig út fyrir að vera.

Og ég get sagt að ég varð ekki fyrir vonbrigðum og gekk svo langt að taka ekki eina mynd af dýrðinni heldur njóta matarins. 

Góður matur, góð þjónusta!  50 evrur fyrir tvo með vínflösku. Ég ætla ekki að reikna út hvað það er mikið en væri gott verð ef evran væri ennþá 90 kall :P

 Það var tekið viðtal við mig um daginn og fyrir þá sem hafa áhuga þá má  lesa það hér

 

Salut!  Sx

 

 


Alvöru markaðir

Væri ekki gaman ef það væri stórt vöruhús, til dæmis Kolaportið, stútfullt af básum sem selja ferskt grænmeti, FERSKAN FISK, kjöt, osta og bara góðan ferskan mat yfir höfuð, og með nokkrum börum inn á milli þar sem hægt væri að fá sér einn og smá tapas með?

madrid06

 

 madrid05

  Patatas Bravas, klassískur tapas réttur á börunum hér

 

PATATAS BRAVAS

  • 4 stórar kartöflur
  • Ólífuolía
  • Hálfur laukur
  • 2 rif hvítlaukur
  • Hálfur bolli tómatsósa
  • Hálfur bolli majónes
  • Paprikuduft
  • Hálf msk Tabasko sósa

Skerið kartöflur niður í teninga, og sjóðið, hellið vatni frá.

Saxið niður og steikið lauk og hvítlauk, þar til laukurinn er orðinn mjúkur.  Bætið við paprikudufti, og tabaskósósu.  Hrærið saman.  Setjið allt í skál og bætið við tómatsósu og majónesi, saltið og piprið eftir smekk.

Takið soðnu kartöfluteningana og steikið á pönnu.  Einnig er hægt að sleppa að sjóða þá og djúpsteikja, og ef þið viljið hollustu þá má setja á þá salt, pipar og olíu og elda í ofni.

Deyfið svo patatas bravas sósunni yfir kartöflurnar og berið fram með skál af tannstönglum.

 

Til eru ýmsar útfærslur af sósunni, og ég mæli með að googla og fara síðan eftir þeirri uppskrift sem ykkur lýst best á, eða mixa þeim saman og gera ykkar eigin útfærslu.

Þessi réttur smakkast einstaklega vel með Sangríu eða Tinto de Verano.



Aftur að markaðnum, fór á einn slíkan markað um helgina.  Ætlaði nú að versla í kvöldmatinn, en við enduðum á svo fínum tapas bar (svona bás) og fengum fínt að éta og ódýrt að drekka.  Svo var bara að loka þegar við loksins ætluðum að standa upp.  Enda lokar flest kl 15.00 á laugardögum, og opnar ekki aftur þann daginn. 

 

 

 

 En við vorum í góðu stuði og fórum bara út að rölta, og alla leið niður í bæ, tveggja tíma ganga.  En nóg af tapasbörum á leiðinni sem sá til þess að við dóum ekki úr hungri eða þorsta á leiðinni.

 


Servéttumenning á Spáni

Ekki eru allir staðir komnir í ruslafötumenninguna ennþá...

servettur

 

Myndin er tekin á staðnum Mueseo de Jamon.

 Treo

  • Hráskinka
  • Aspas, ferskur
  • Parmagiano Reggiano
  • Smjör
  • Salt og pipar

 

Aspasinn blancheraður, og svo steiktur upp úr smjöri.  Hráskinkunni vafið um nokkra aspasa og létt steikt á pönnunni.  Sett á disk og nóg af rifnum parmasen osti yfir.  Salt og pipar eftir smekk.  Hráskinkan er yfirleitt frekar sölt. 

Í framreiðslu:  Einnig er hægt að léttsteikja skinkuna sér, og setja hana á disk og svo aspasinn ofan á...um að gera að imprúvæsera.

Svo má fara út í pastarétt með svipuðu þema.

Tagliatelli Parma

  • Tagliatelli
  • Hráskinka
  • Ferskur aspas
  • Tómatar
  • Shallott laukur
  • Parmagiano Reggiano
  • Hvítvín
  • Smjör
  • Salt og pipar

 

Steikið lauk og hráskinku og aspas upp úr smjöri, bætið svo við niðurskornum tómötum, eða hökkuðum tómötum úr dós. Saltið og piprið.  Látið malla, bætið við hvítvín, malla smá meir.

Blandið við Tagliatelli og nóg af parmagiano reggiano yfir.

 

Ég er ekki með neinar mælieiningar hér, þetta er ekki svo nojið, dash of this, dash of that... bara smakka til.

 

Kveðja frá Madrid,  Sxx 

 

 


Ansjósur og kartöfluflögur....

Hittum á lókal pöbbnum mjög indæla spánverja, spjölluðum vel og lengi, þeir buðu kærastanum upp á drykk.

 

hendricks

 

G&T -  ekki fyrir stelpur

  • Hendrick´s Gin
  • Tónik
  • Klaki
  • Appelsína
Og hér kemur svo mynd af drykknum fræga.


bar

Barþjónninn bauð upp á tapas með drykkjunum, þar á meðal Ansjósur...

ansjosur

Ansjósur barþjónsins

  • Ansjósur
  • Kartöfluflögur með edik bragði (eða salti)

Setjið snakkið á lítinn disk og dreyfið ansjósum ofan.

 


Borð fyrir einn - Mesa para una...

Þá er maður dottin í "mesa para una" pakkann.  Ég er þó nokkuð vön eftir að hafa búið í hinum og þessum löndum, og verandi listamaður þá er það víst í starfslýsingu að sækja bari og kaffihús og þar sem kallinn er í 9-5 vinnu, þá á ég það til að fara ein í lunch eða kíkja á kaffihús.  Og ég get alveg mælt með því að fara einn út, svona af og til.

 www.soffia.net

Hver þekkir það ekki úr bíómyndum hversu vandæðalegt það var þegar einhver fór einn út að borða.  Þjónn sem fjarlægði hnífapör af borðinu með látum, svo allir á staðnum litu við.  Það er nú ekki svona slæmt, þótt svo það hafi nú komið fyrir á fínni stöðum.

Ég hef tekið eftir því að  þeir sem eru einir á veitingarstöðum, en augljóslega að bíða eftir einhverjum eru allir voða mikið að fikta í símanum sínum.  Fólk á svo erfitt með að sitja og gera ekki neitt, þegar það er eitt og yfirgefið á stað þar sem tíðkast að vera í félagsskap.

Mannleg hegðun er alltaf áhugaverð.  Og talandi um mannlega hegðun þá er þetta mjög góð svartbaunasúpa.

 

Svartbaunasúpa

  • 1 dós svartar baunir (eða þurrkaðar og lagðar í bleyti í 8 klst)
  • Hálfur rauðlaukur
  • Chile pipar, eftir smekk og styrkleika
  • 1 dós tómatar
  • hálf paprika
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 L vatn
  • 1 grænmetisteningur eða kjúklinga
  • smá smjör
  • salt og pipar
Létt steikið grænmetið upp úr smjöri, bætið svo við restinni og sjóðið í 20 - 30 mín.  Eins og margir gera við mexíkóskar súpur þá er gott að setja nachos og ost í þessa, þegar hún er borin fram.
Einnig er gott að setja ferskt kóríander út í.

 


Verðsamanburður

Það er ýmislegt ódýrt hérna í Madrid og annað bara ekki svo ódýrt, og miðað við gengið á evrunni þá er ekkert stórkostlegt verðlagið hér.  Það er af sem áður var.

 

Keypti:

Maldon salt  5.95 €  (900 kall, HALLÓ!)

750 ml ólífuolía, extra virgin 1.73 € (260 kall, góð olía og gott verð!)

Baguette, nýbakað  1.00  €  (150 kall)

12 egg 1.69 € ( 256 kall)

Tagliatelli frá Barilla 2.05 € (300 kall)

 

Hvað kostar t.d Maldon salt heima?

 

Fór ein út að borða í hádeginu, fékk margaríta pizzu, eitt sódavatn og eitt rauðvínsglas. Með smá þjórfé var þetta 14 €  ( 2100 kall)

 

 


Fylltar spínatpönnukökur

Eitt það besta á veisluborðum er aspas í skinku, á pinna.  Flestir kunna nú þessa uppskrift en ég læt hana fljóta svona til að minna mig og aðra á hana.

Skinkurúlla

  • Grænn aspas í dós
  • Skinka í sneiðum (góð skinka, ekki ofurvatnsþynnt brauðskinka)
  • Rjómaostur

 

Smyrjið smurosti á  skinkusneiðar, leggið aspas svo á og rúllið upp, stingið tannstöngli í gegnum rúlluna.

 

 

ttv1

 

Fann í Gestgjafanum eitt sinn mjög góða uppskrift að spínatpönnukökum.  Algjör veislumatur.  Get alveg 100 % mælt með þessari uppskrift.

 

Spínatpönnukökur (Gestgjafinn)

 

  • 250 g spínat , fryst
  • 3 egg
  • 150 ml mjólk
  • 1 msk olía
  • 100 g hveiti
  • salt á hnífsoddi
  • 1 dós sýrður rjómi (18%)
  • 100 g skinka , söxuð smátt
  • 1 paprika , rauð, fræhreinsuð og söxuð smátt
  • pipar , nýmalaður
Spínatið þítt og saxað gróft. Egg, mjólk og olía þeytt saman. Hveiti og salt sett í skál og eggjablöndunni hrært saman við smátt og smátt. Þegar soppan er slétt er spínatinu blandað saman við. Pönnukökupanna hituð og meðalþykkar pönnukökur steiktar ljósbrúnar við meðalhita. Þegar pönnukökurnar eru kaldar er sýrðum rjóma, skinku, papriku og pipar blandað saman og smurt þunnt á pönnukökurnar. Vafðar upp og skornar í sneiðar. Geymt í kæli í a.m.k. hálftíma.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband