Þurrkaður chili pipar og markaðsetning fyrir börn

Chili piparinn frá Engi er svo góður, hæfilega sterkur.  Ég kaupi sjaldan þurrkuð krydd, þessi í stórmörkuðum eru bragðlausari en Fréttablaðið.

Ég tók mig til og þurrkaði nokkra chili pipra og setti þá í mortel og hamraði á þeim þar til þeir voru orðnir að dufti.  Það væri eflaust hægt að mala þá í kaffikvörn. Þetta var svo gott krydd að ég er komin með 4 aðra í þurrkun.  Ég bjó til Indverskan mat um daginn þar sem ég notaði engin krydd nema ferskan hvítlauk, ferskt engifer og chiliduftið mitt og smá túrmerik.  Þetta var ótrúlega bragðgóður og bragðmikill réttur.

chili duft 

Ég fór í Krónuna, um leið og maður gekk inn var búið að setja parísar hoppileik á gólfið og dóttir mín hoppaði eftir tölunum í leiknum þar til hún stoppaði við stóra stæðu af Orkumjólk frá Latabæ. Frábær markaðsetning.  Hún ætlaði að taka sér kippu en ég tók fyrir það.  Mér er svo illa við svona markaðsetningar fyrir börn og versla ekkert með Latabæ.  Innihaldslýsing Orkumjólkur er sú sama og á sykurskertri kókómjólk. Það stendur meira að segja orðrétt að mjólkursykurinn sé klofinn eins og stendur á kókómjólkinni.

Þannig að ég er að velta fyrir mér hvort þetta sé sama mjólkin og frá MS, þótt svo að Vífilfell sé framleiðandi?

 

Svona þurrkaði ég chilipiparinn 

chili 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

þeir sem markaðsetja vöru með svona fullyrðingum verða að athuga nákvæmni hennar- þ.e - skráningar. margir eru með ofnæmi- sem getur valdið dauða se u upplysingar villandi !

Erla Magna Alexandersdóttir, 13.2.2013 kl. 20:30

2 identicon

Sæl, Soffía.

Hvernig þurrkaðirðu chilipiparinn? Ég keypti svona þurrkaðan chili í Ungverjalandi fyrir nokkrum árum og náði ekki að nota hann allan því hann myglaði hjá mér. Sennnilega hef ég bara verið með of mikið og maður er ekki alltaf að elda með chili...

Nanna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 14.2.2013 kl. 11:19

3 Smámynd: Soffía Gísladóttir

Nanna, ég bara hengi hann upp með bandi á einhverja sleif sem ég nota aldrei, setti inn mynd af því :) Það tekur nokkrar vikur að hann verði svo þurr að hann brotni auðveldlega.

Erla, stundum er gróðinn mikilvægari en neytandinn...

Soffía Gísladóttir, 17.2.2013 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband