Rúgbrauð og vorlaukurinn endalausi

Ég er búin að vera að baka í alla í nótt....þannig séð.  Ég setti rúgbrauðið í ofninn um 9 leytið í gærkvöldi og tók það út kl 7 í morgun.

En viljiði fyrst sjá hvað vorlaukurinn hefur vaxið mikið á einni viku? Sá til vinstri var jafn lítll og þessi til hægri, og þessi til hægri var orðin jafn stór og sá til vinstri, ég var að klippa af honum til að nota...

vorlaukur 

 

rúgbrauð 

Rúgbrauð

  • 375 g rúgmjöl
  • 125 g heilhveiti
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk salt
  • 1/2 l AB mjólk
  • 325 ml síróp

 

Öllu hrært saman. Deigið var fremur blautt.  Ég setti það í Ikea pottinn mitt sem er úr steypujárni og glerhúðaður að innan.  

 rúgbrauð

Ég var ekki viss um hvort það myndi klessast við pottinn þannig að ég setti smá bökunarpappír inn í pottinn.

Bakaði í ofni við 100°c í 10 klst.   

Svo er auðvitað hægt að nota mjólkurfernur eða kökubox. 

 Brauðið heppnaðist mjög vel og smakkaðist eins og seytt rúgbrauð :)

rúgbrauð 

Ég er ekki mikið fyrir rúgbrauð í morgunmat, en þetta er frábært með léttum hádegis brunch. Mmmmm, rúgbrauð með kæfu og agúrku eða steiktu eggi.  Og best af öllu, með plokkfiski.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Soffía ég baka rúgbrauð í mjólkurfernum ýmist 1eða 2 lítra, heppnast mjög vel við 100gráður í ca 11 tíma, smyr fernuna aðeins að innan með smjöri

Hrafnhildur Árnadóttir (IP-tala skráð) 21.5.2012 kl. 17:24

2 Smámynd: Soffía Gísladóttir

Já,ég verð að prófa það næst. Hef bara notast við niðursuðudósir og soðið í potti, en kann vel við það að nota ofninn.

Soffía Gísladóttir, 21.5.2012 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband